Morgunblaðið - 05.05.2019, Page 1
M Á N U D A G U R 6. M A Í 2 0 1 9
Stofnað 1913 105. tölublað 107. árgangur
ÍSLANDS-
MEISTARAR
SEX ÁR Í RÖÐ
SEXTÍU SÓLAR-
STUNDIR Á
SIGLUFIRÐI
GRIÐASTAÐUR
GRAFÍKLISTA-
MANNA
NÁMSKEIÐ 10 VERKSTÆÐI Í TOSKANA 36ÍÞRÓTTIR 32-35
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Útgjaldaauki sveitarfélaganna, sem
leiða má af yfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar vegna kjarasamninganna,
nemur um tólf milljörðum króna á
samningstímanum. Þessu til viðbót-
ar koma áhrif á launakostnað hjá
sveitarfélögunum, sem verða meiri
en hjá ríkinu, og nema um fjórum
milljörðum króna. Þetta kemur fram
í ítarlegri umsögn Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga um fjármála-
áætlun 2020-2024.
Sambandið bendir m.a. á að skatt-
ar ríkissjóðs af tekjum og útgjöldum
muni hækka meira en launakostnað-
ur vegna kjarasamninga, en þessu
verði öfugt farið hjá sveitarfélögun-
um. Laun séu lægri hjá sveitarfélög-
um en ríkinu og kjarasamningar með
krónutöluhækkunum verði dýrari
fyrir sveitarfélögin en ríkið.
Sveitarfélögin segjast ekki geta
unað við þau áform ríkisins að fram-
lög til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
verði óbreytt að krónutölu árin 2019,
2020 og 2021. Það valdi sveitarfélög-
unum tekjutapi upp á 3,3 milljarða
yfir tveggja ára skeið. Sveitarfélögin
krefjast þess að Alþingi dragi þessi
áform til baka.
„Það veldur okkur áhyggjum ef
ríkið dregur ekki til baka áform um
að frysta framlög í Jöfnunarsjóð
sveitarfélaga,“ sagði Aldís Haf-
steinsdóttir, formaður Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga. „Við það
skerðast tekjur sveitarfélaga og sér-
staklega þeirra sem síst mega við
því.“
Gagnrýna fjármálaáætlun
Samband íslenskra sveitarfélaga unir ekki við óbreytt framlög í jöfnunarsjóð
næstu ár Skerðir tekjur þeirra sveitarfélaga sem síst mega við tekjuskerðingu
MSegja samstarfið … »2
Morgunblaðið/RAX
Snæfellsjökull Hann hopar hratt og gæti verið alveg horfinn árið 2058.
Rýrnun jöklanna er stærsta ein-
staka landbreytingin á Íslandi um
þessar mundir, að sögn Landmæl-
inga Íslands. Flatarmál jöklanna
minnkaði um 215 km2 milli áranna
2012 og 2018. Frá árinu 2000 hefur
flatarmál þeirra minnkað um 647
km2 eða um 36 km2 á hverju ári að
meðaltali. Það er 5,8% rýrnun á
þessu 18 ára tímabili.
Síðujökull, skriðjökull sem geng-
ur suður úr vestanverðum Vatna-
jökli, hefur hopað jafnt og þétt sam-
kvæmt CORINE-kortlagningu sem
byggð er á gervitunglamyndum.
Snæfellsjökull hefur einnig minnk-
að stöðugt frá árinu 2000. Rýrni
jökullinn áfram með sama hraða
verður hann alveg horfinn árið
2058. »6
Rýrnun jöklanna
Hop jökla veldur mestri breytingu
á landi á Íslandi um þessar mundir
Um 430 eldflaugum var skotið frá
Gasaströndinni yfir landamærin til
Ísraels á laugardaginn með þeim af-
leiðingum að fjórir Ísraelar létu lífið.
Ísraelski herinn svaraði árásinni
með eigin eldflaugaárásum á skot-
mörk á Gasaströndinni. Að minnsta
kosti 23 Palestínumenn létu lífið í
gagnárásinni, þeirra á meðal nokkr-
ir meðlimir í Hamas og hryðjuverka-
samtökunum Íslamskt jihad. Einnig
létu almennir borgarar lífið, þeirra á
meðal ólétt kona og eins árs stúlka.
Ísraelski herinn segir að þær hafi
farist í misheppnaðri eldflaugaárás
Hamas-liða. Benjamín Netanjahu
forsætisráðherra heitir fleiri árás-
um. »13
AFP
Palestína Eldflaugar Ísraelshers
dynja á Gasaborg um helgina.
Árásir á
árásir of-
an í Gasa
Vopnahléið við
Palestínu viðkvæmt
Margt hraustasta fólk heims kom saman og
svitnaði þegar Reykjavík Crossfit-mótið fór
fram í Laugardalshöll um helgina.
Íslendingar stóðu erlendum keppinautum
sínum framar í einstaklingsflokki karla þar
sem Björgvin Karl Guðmundsson varð hlut-
skarpastur, en silfrið tók Hinrik Ingi Ósk-
arsson. Hraustasta kona heims árið 2013,
Samantha Briggs, sem sést á myndinni hér að
ofan, sigraði ásamt félögum sínum í liða-
keppninni sem fram fór í gær á lokadegi
mótsins.
Heimsins mestu hreystimenni sýndu hvað í þeim býr
Morgunblaðið/Hari
Nýir kjarasamningar starfs-
manna hins opinbera verða í höfn
fyrir mánaðarlok ef markmið
Sverris Jónssonar, formanns samn-
inganefndar ríkisins, gengur eftir.
Hann segir að stytting vinnuviku
muni taka lengstan tíma.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formað-
ur BSRB, er með sama markmið, en
segir að það þurfi að fara að „setja í
gang“ ef það á að nást að semja fyr-
ir sumarleyfi. Ósamið er við um
þriðjung allra launamanna á Íslandi
skv. Samtökum atvinnulífsins. »6
Markmiðið að semja
fyrir mánaðamót
Áætlað er að
sjö nýjar lyftur
verði reistar á
skíðasvæðinu í
Bláfjöllum fram
til ársins 2030 og
að sú fyrsta verði
risin strax á
næsta ári. Upp-
bygging snjó-
framleiðslukerfis
gæti aukið heild-
araðsókn um 50% að því er fram
kemur í umfjöllun Morgunblaðsins í
dag. Framkvæmdirnar eru sagðar
óháðar umhverfismati. »9
Bláfjöll Byggja á
upp skíðasvæðin.
Búist við 50%
aukningu í Bláfjöll