Morgunblaðið - 05.05.2019, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. MAÍ 2019
a.
595 1000
Sólarlandaferðir á betri verðum
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a
y
y
Heimsferða
NÁNAR Á HEIMSFERDIR.IS
Frá kr.
79.995
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Samband íslenskra sveitarfélaga
bendir á það í umsögn sinni um fjár-
málaáætlun 2020-2024 að efnahags-
rammi áætlunarinnar sé þegar orð-
inn töluvert skekktur. Frá gerð
þjóðhagsspár Hagstofunnar, sem
ramminn byggist á, hafi WOW air
orðið gjaldþrota, skrifað hafi verið
undir kjarasamninga sem ná til
nærri helmings vinnumarkaðarins
og loðnubrestur hafi orðið. Eftir sé
að semja við stóran hluta vinnu-
markaðarins, þar á meðal opinbera
starfsmenn.
Sambandið segir að til þessa
hnökralausu samstarfi sveitarfélag-
anna og ríkisins um gerð fjármála-
áætlana sé nú stefnt í bráða hættu.
„Fjármálaráðuneytið tilkynnti for-
svarsmönnum sambandsins þá fyr-
irætlan sína að framlög ríkisins til
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga skyldu
vera óbreytt að krónutölu árin 2019,
2020 og 2021,“ segir í umsögninni.
„Við þessa tekjuskerðingu og þessa
háttsemi ríkisins geta sveitarfélög
landsins ekki unað, enda um að ræða
tekjutap yfir tveggja ára skeið sem
nemur um 3,3 ma.kr.“
Bent er á umfjöllun um Borgar-
línu og uppbyggingu samgöngu-
innviða á höfuðborgarsvæðinu sam-
kvæmt svonefndum „höfuðborgar-
pakka“. Hann samanstendur af
framkvæmdum á stofnvegum höfuð-
borgarsvæðisins, í Borgarlínu og á
hjólastígum. Sambandið segir að
skilgreina þurfi nýja tekjustofna rík-
is og sveitarfélaga til að fjármagna
framkvæmdir sem boðaðar eru í
pakkanum.
Fjármunir þurfa að fylgja
Sambandið segir einnig að fjár-
munir þurfi að fylgja sjúklingum
sem fara úr hjúkrunarrýmum á
sjúkrahúsum á hjúkrunarheimili.
Það gangi ekki að ríkið skammti svo
naum daggjöld að sveitarfélögin
þurfi að greiða á annan milljarð með
hjúkrunarheimilunum á ári.
Samband íslenskra sveitarfélaga
fagnar því að fæðingarorlof verði
lengt í áföngum úr níu mánuðum í
tólf frá 2020. Ljóst sé að þess verði
krafist að sveitarfélögin tryggi börn-
um dagvist á leikskóla til tólf mánaða
aldurs. Það að bjóða öllum börnum
tólf mánaða og eldri leikskólavist sé
mikil áskorun fyrir sveitarfélögin og
mjög dýr aðgerð. Sé gengið út frá því
að eyða verði öllum biðlista á leik-
skóla yrði nettó rekstrarkostnaður
sveitarfélaga á hverju ári 3,8 millj-
arðar án innri leigu og 4,2 ma.kr.
með innri leigu. Miðað við áætlanir
Reykjavíkurborgar um stofnkostnað
á barn í ungbarnaleikskóla fæst að
stofnkostnaður fyrir öll börn á bið-
listanum verði 11,5 milljarðar kr.
Tapa á leiðréttingunni
Í kafla um húsnæðisstuðning segir
að vaxtabætur hafi lengi verið helsta
tæki ríkisvaldsins til að létta undir
með íbúðakaupendum og greiðist úr
ríkissjóði. Skattfrjáls nýting sér-
eignarsparnaðar hafi nú tekið við.
Með því að færa áhersluna frá vaxta-
bótum til séreignarlífeyrissparnaðar
hafi ríkið velt stórum hluta af kostn-
aðinum á sveitarfélögin, eða allt að
helmingi. Tekjutap sveitarfélaganna
vegna þessa er metið vera samtals
8,2 milljarðar á árunum 2014-2018.
Framlenging heimildar til notkunar
séreignarsparnaðar til húsnæðis-
kaupa í nýgerðum kjarasamningum
muni kosta sveitarfélögin um fjóra
milljarða til viðbótar.
Segja samstarfið við ríkið í hættu
Samband íslenskra sveitarfélaga segir efnahagsramma fjármálaáætlunar hafa skekkst Fjölgun
leikskólaplássa mjög kostnaðarsöm Tapa tekjum vegna nota séreignarsparnaðar til húsnæðiskaupa
„Það veldur okkur áhyggjum ef ríkið dregur ekki til baka
áform um að frysta framlög í Jöfnunarsjóð sveitar-
félaga,“ sagði Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga. „Við það skerðast tekjur
sveitarfélaga og sérstaklega þeirra sem síst mega við
því.“ Hún kvaðst hafa átt fund með fjármálaráðherra og
var ákveðið að funda mjög fljótlega um málið. „Okkar
stærsta baráttumál er að fá fjölbreyttari tekjustofna.
Einn er gistináttagjaldið. Í stjórnarsáttmálanum segir
að það eigi að renna til sveitarfélaganna og við erum
orðin langeyg eftir að fá það,“ sagði Aldís. Hún sagði
þörf á að ræða mörg önnur mál varðandi tekjuskiptingu við ríkið.
Funda fljótlega með ríkinu
SAMBAND ÍSLENSKRA SVEITARFÉLAGA
Aldís
Hafsteinsdóttir
Árleg kirkjureið hestamanna til Seljakirkju var í
gær. Lagt var upp úr Víðidalnum og komið við á
Heimsenda. Þaðan var svo riðið sem leið lá niður
í Seljahverfi og að kirkjunni þar sem guðsþjón-
usta hófst klukkan 14.00.
Séra Valgeir Ástráðsson predikaði. Brokkkór-
inn söng undir stjórn Magnúsar Kjartanssonar.
Búið var að útbúa gerði fyrir hestana utan við
kirkjuna. Eftir messu var boðið upp á kaffi.
Morgunblaðið/Hari
Hestamenn riðu til kirkju í góðu veðri
Veður verður í kaldara lagi á land-
inu um og eftir miðja vikuna, að
sögn Einars Sveinbjörnssonar veð-
urfræðings. Ástæðan er kalt heim-
skautaloft sem berst hingað úr
norðri. Éljagangur getur orðið á
Norður- og Austurlandi og jafnvel
verður hitastig undir frostmarki
meira og minna allan daginn þar
um slóðir.
Á fimmtudag og föstudag er spáð
frosti á Akureyri yfir daginn og élj-
um. Því gæti jörð hvítnað. Næt-
urfrost verða um mikinn hluta
landsins en helst að það sleppi suð-
vestan- og vestanlands.
Kuldi í veð-
urkortunum
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Kuldi Spáð er köldu veðri í vikunni.
Hatari æfði í fyrsta skipti á stóra
sviðinu í Tel Aviv í gær og gekk æf-
ingin eins og í sögu, sagði Felix
Bergsson, fararstjóri íslenska Euro-
visionhópsins, í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi. Hann sagði að
stemningin hefði verið góð að æfingu
lokinni en hópurinn ætti meira inni.
Aðspurður sagði Felix hópinn
hafa fengið góðar viðtökur og mikla
athygli og bætti við: „Þau eru gríðar-
lega mikið í viðtölum.“
Taka fréttunum með ró
Öryggisráðstafanir voru hertar
eftir að vígasamtökin Íslamskt jihad
sendu frá sér hótun gegn Eurovisi-
on-hátíðinni.
Felix sagði hópinn þó ekkert hafa
fundið fyrir því og engar opinberar
breytingar hefðu verið gerðar á
áætlun hátíðarinnar. „Á meðan allt
er rólegt tökum við þessu með ró,“
sagði hann. teitur@mbl.is
Stemningin góð að fyrstu
æfingu í Tel Aviv lokinni
Hert öryggi hefur
ekki haft áhrif
Ljós-mynd/?Eurovisi-on.tv/?
Sjónarspil Hatarar æfðu í fyrsta skipti á stóra sviðinu í Tel Aviv í gær.