Morgunblaðið - 05.05.2019, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. MAÍ 2019
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI
Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn
og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda.
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Sjúktratryggingar Íslands (SÍ) eru
langt komnar með undirbúning að
formlegu innkaupaferli vegna auga-
steinaaðgerða, en grunnsamningur
um slíkar aðgerðir við einkareknar
augnlækningastofur rann út 1. maí. Í
umfjöllum Morgunblaðsins um málið
á laugardag heyrðust gagnrýnis-
raddir frá einkastofum í garð SÍ,
sem sendi í kjölfarið frá sér tilkynn-
ingu þar sem mátti sjá samanburð á
greiðslum við aðgerðirnar.
Þar kom meðal annars fram að
greiðslur hins opinbera vegna kaupa
á augasteinaaðgerðum á einkastof-
um væru 30% meiri en á sjúkrahús-
um. Einkareknar stofur fengju um
146 þúsund krónur fyrir hverja að-
gerð, þar sem greiðslur hins opin-
bera eru að lágmarki 128.600, en
Landspítalinn fengi greiddar ríflega
97 þúsund krónur frá hinu opinbera
fyrir hverja aðgerð sem framkvæmd
væri umfram þær aðgerðir sem rúm-
ast innan almenns rekstrargrunns.
Kostnaðarþátttaka sjúklinga væri
aftur á móti hin sama og á einka-
stofu.
„Ég hefði haldið að munurinn væri
miklu meiri,“ segir Jónmundur
Gunnar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Sjónlags sem var aðili
að grunnsamningnum við SÍ. Hann
kallar eftir því að Landspítalinn sýni
fram á það hvernig þessi tala sé
fundin er varðar kostnað á aðgerð-
um. Eflaust sé margt sem einkastof-
ur þurfi að taka með í reikninginn
sem ekki þurfi hjá sjúkrahúsunum.
„Til að fá samanburðarhæfa tölu
þyrfti að taka kostnað við húsnæð-
isrekstur, allan fastakostnað, öll
áhöld og tæki og alla yfirstjórn. Það
er flókið verkefni í aðferðafræði að
deila slíku út innan Landspítalans,“
segir Jónmundur og ítrekar virðis-
aukaskattinn sem einkareknu stof-
urnar greiði og renni í ríkissjóð.
Í tilkynningu SÍ kom einnig fram
að eftir átak í styttingu biðtíma væri
hann nú kominn niður í 2,1 mánuð
eftir augasteinsaðgerðum á Land-
spítalanum. Hjá Sjónlagi væri hins
vegar biðtíminn um 15 mánuðir eftir
samþykki um styrk frá SÍ.
Hendur einkastofa bundnar
„Við stýrum því ekki hvar fólk
óskar eftir að fá aðgerðina gerða.
Það fer eftir eftirspurninni. Þegar
því er haldið á loft að við höfum ekki
staðið okkur er um að ræða mikinn
misskilning á því hvernig kerfið virk-
ar,“ segir Jónmundur. Sjónlagi hafi
aðeins verið úthlutað 400 aðgerðum,
um 33 á mánuði, sem annar ekki
þeirri eftirspurn sem er eftir að
komast að hjá stofunni. Hendur stof-
unnar hafi verið bundnar.
„Þær voru bundnar af því að við
vorum bara með 33 aðgerðir á mán-
uði en eftirspurnin eftir aðgerðum
hjá okkur var mun meiri. Það er gat í
kerfinu, sem verður ekki uppfyllt
með þeim aðgerðafjölda sem verið er
að fjármagna,“ segir Jónmundur, en
eftirspurn eftir augasteinaaðgerðum
á landsvísu er talin vera um 3.300 að-
gerðir á ári.
Ef til vill ekki líkað svörin
Í umfjöllun blaðsins á laugardag
gagnrýndi Jónmundur samskipta-
leysi við SÍ og að óskum Sjónlags um
viðræður samnings hefði ekki verið
svarað. „Svörin hafa verið veitt, en ef
til vill hefur viðkomandi ekki líkað
þau,“ segir María Heimisdóttir, for-
stjóri SÍ, í samtali við Morgunblaðið.
Báðir aðilar ættu að vita að samning-
urinn hafi verið að renna út og SÍ
hafi ekki borið nein upplýsinga-
skylda til þess að láta vita af því um-
fram það sem þegar var gert.
María segir að aðilar hafi verið
látnir vita af undirbúningi formlegs
innkaupaferlis, en sú vinna hefur að
nokkru leyti strandað á upplýsinga-
leysi frá einkareknu stofunum. Til
dæmis er varðar innkaup á augnlins-
um.
„Þetta er formlegra ferli og liður í
að undirbúa það er að fá skýringar á
kostnaði. SÍ hafa áður verið gagn-
rýndar fyrir að fylgja ekki lögum um
opinber innkaup og við erum að
reyna að laga það. Almennt er betra
að geta valið um tíu aðila sem selja
okkur þjónustu en bara tvo,“ segir
María. Formlegt innkaupaferli sé
langt komið, en ekki hægt að segja á
þessari stundu hvenær það geti haf-
ist. Þó innan mjög skamms tíma.
Varðandi innkaupsverð á augn-
linsum segir María greinilegt að
einkareknu stofurnar hafi ekki keypt
slíkt á sambærilegu verði og Land-
spítalinn. Það sé þó líklegt að sam-
hliða nýjum samningum um þessar
aðgerðir verði leitað allra leiða til
þess að fá hagstæðara verð á lins-
unum. Munurinn á greiðslum SÍ fyr-
ir aðgerðir sem minnst var á hér áð-
ur skýrist þó ekki eingöngu af
misdýrum linsum. Aðalatriðið sé að
þjónustan sé góð á samkeppnishæfu
verði og að biðin sé ekki of löng.
Hærri greiðslur en lengri bið
Greiðsluþátttaka Sjúktratrygginga Íslands í augasteinaaðgerðum á einkastofum er 30% meiri en á
sjúkrahúsum, auk þess sem biðin er lengri Kallað eftir sundurgreiningu kostnaðar frá sjúkrahúsum
Ljósmynd/Ólafur Már Björnsson
Augnaðgerðir Grunnsamningur um augasteinaaðgerðir við einkareknar augnlækningastofur rann út 1. maí.
Samkvæmt tilkynningu sem Sjúkratryggingar Íslands sendu frá sér í
kjölfar umfjöllunar SunnudagsMoggans á laugardag um stöðu auga-
steinaaðgerða er þörfin talin vera nálægt 3.300 aðgerðum á ári.
Landspítalinn hefur fjárveitingu fyrir 800 aðgerðum, en aukafé hef-
ur verið veitt til þess að fjölga aðgerðum um 1.200 og eru þar nú
gerðar um 2.000 aðgerðir á ári. Þá hefur Sjúkrahúsið á Akureyri einn-
ig tekið að sér 100 aðgerðir ofan á þær sem gerðar eru fyrir hina
föstu fjárveitingu.
Grunnsamningar hafi verið í gildi við tvær augnlækningastofur um
að gera 400 aðgerðir á ári hvor um sig, sem er um 20% af þeim
fjölda sem gerður er á Landspítala. Sá samningur rann út 1. maí, en SÍ
vinnur nú að formlegu innkaupaferli um nýjan samning.
Þorri aðgerða á sjúkrahúsum
AUGASTEINAAÐGERÐIR Á ÍSLANDI
Samkeppniseftirlitið hefur sam-
þykkt kaup Nýju kaffibrennslunnar
ehf. á kaffihúsakeðjunni Kaffitári
ehf. Kaupverðið er ekki gefið upp,
en tilkynnt var um kaupin í nóv-
ember síðastliðnum. Það var þá með
fyrirvara um samþykki Samkeppn-
iseftirlitsins, sem svo fékkst nú í lok
síðasta mánaðar.
Þetta staðfestir Ólafur Ó. John-
son, framkvæmdastjóri Ó. Johnson
& Kaaber ehf., en Nýja kaffi-
brennslan er systurfyrirtæki þess.
Hann segir um spennandi verkefni
að ræða og með tíð og tíma verði
rekstur Kaffitárs samþættur við
systurfyrirtækin tvö. Aðalheiður
Héðinsdóttir, stofnandi Kaffitárs,
mun starfa áfram með nýjum eig-
endum í kjölfar viðskiptanna.
Aðspurður segir Ólafur að rekst-
urinn verði að mestu óbreyttur, en
það megi þó búast við einhverjum
breytingum í bakaríishluta fyrir-
tækisins. Hann er undir merkjum
Kruðerís á Nýbýlavegi í Kópavogi
og þar fer fram framleiðsla á öllu
bakkelsi fyrir kaffihúsakeðjuna.
Ólafur segir þær breytingar ekki
komnar á hreint og vildi ekki stað-
festa hvort gripið yrði til uppsagna í
kjölfar þeirra. yrkill@mbl.is
Kaffitár komið
til nýrra eigenda
Morgunblaðið/Eggert
Kruðerí Bakaríishluti Kaffitárs gæti tekið breytingum eftir kaupin.