Morgunblaðið - 05.05.2019, Side 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. MAÍ 2019
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Láttu drauminn rætast.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Nú í vikubyrjun hefst sala SÁÁ á
Álfinum, en sem endranær er
ágóðanum varið til þess að styrkja
vímuefnameðferð fyrir ungt fólk.
Nærri lætur að á bak við um 2200
innritanir á sjúkrahúsið Vog sé
helmingurinn fólk 35 ára og
yngra. Er þá ekki talið með fólk
sem eingöngu nýtir sér göngudeild
eða aðra þjónustu.
„Síðustu ár höfum við leitast
við að efla þjónustu okkar við
yngsta aldurshópinn,“ segir Val-
gerður Rúnarsdóttir, yfirlæknir
SÁÁ. „Í hópi sjúklinga hefur fólki
18 – 25 ára þó verið að fækka sem
ég þakka meðal annars öflugu for-
varnarstarfi. Árin 2017-2018 kom
bakslag vegna aukningar í notkun
ópíóíða, það er sterkra ávanabind-
andi verkjalyfja sem hluti fólks
sprautar í æð. Var það að hluta or-
sök nokkurra dauðsfalla ungs
fólks. Þar var talað um fíkni-
faraldur sem góðu heilli virðist
hafa gengið til baka að nokkru, að
minnsta kosti frá síðasta sumri.“
Ópíóðafaraldur spegilmynd
af ástandi erlendis
Fíknifaraldurinn segir Val-
gerður að hafi verið spegilmynd af
ástandinu erlendis. Í Bandaríkj-
unum hafi notkun ávanabindandi
ópíóíða að undanförnu verið far-
aldur sem stráfelli unga fólkið þar.
Hér heima hafi verið brugðist við
þessu með ýmsum ráðum, m.a. hafi
SÁÁ sem fyrr haft yngsta fólkið í
algjörum forgangi og vilji gera
slíkt hið sama fyrir alla að 25 ára
aldri. „Unga fólkið á ekki að þurfa
að bíða eftir innlögn eða annarri
hjálp,“ segir Valgerður. „Ópíóíðar
sem fólk sprautar í æð eru ýmist
komnir frá læknum eða með ólög-
legum innflutningi og eru seldir
ólöglega. Flestir hérlendis sem
fara í svo alvarlega neyslu að
sprauta ópíóíðum, hafa áður gert
hið sama með örvandi vímuefnum
eins og amfetamíni, methylpheni-
date og kókaíni. Til er gagnreynd
lyfjameðferð gegn alvarlegri
ópíóíðafíkn sem hefur sannað gildi
sitt og fleiri lausnir sem við störf-
um samkvæmt. Lyfjameðferðin
hefur verið veitt hjá SÁÁ frá
göngudeild á Vogi síðan 1999 og
verið aukning í henni síðustu ár
vegna þessarar auknu neyslu.“
Yngsti hópurinn
í blandaðri neyslu
Á sjúkrahúsið Vog kemur fólk
í misjöfnum vanda og er það af
báðum kynjum og á öllum aldri. Að
gefnu tilefni hefur þótt þörf á
meiri aðgreiningu í hópnum. Í
fyrra ákvað SÁÁ að hætta að taka
börn yngri en átján ára í vímuefna-
meðferð á Vog en þó ekki fyrr en
önnur lausn væri fundin fyrir
þennan hóp sem heilbrigðis-
ráðherra hefur boðað að verði um
mitt þetta ár. Þangað til eru börnin
tekin inn og eru þau níu talsins það
sem af er líðandi ári.
„Algengast er að yngsti
hópurinn sé í kannabisneyslu en
langoftast er neyslan blönduð. Stór
hluti notar einnig örvandi vímuefni
– og ópíóíðar og áfengi geta líka
verið í dæminu. Ungmennin eru
oft upp á foreldra sína komin, þá
gjarnan hætt í vinnu eða skóla og
neysla komin á hættulegt stig. Inn-
grip og aðstoð er því mikilvæg, svo
unga fólkið geti nýtt sína hæfileika
og möguleika á að skapa sína eigin
framtíð,“ segir Valgerður sem tel-
ur umræðu dagsins um vímuefni
vera áhyggjuefni. Sá áróður sé
rekinn að neysla á kannabis sé
ekki skaðleg og jafnvel gagnleg og
læknandi. Þó skorti mikið á vís-
indaleg gögn sem sýni fram á
gagnsemi. Neikvæðar afleiðingar
séu dagljósar.
Viðhorf breytt
en skaðsemi söm
„Viðhorf almennings hafa
breyst en skaðsemi efnanna er hin
sama. Neysla á kannabis skerðir
vitsmunalega getu fólks, það er
ávanabindandi fíkniefni og getur
valdið geðröskunum,“ segir Val-
gerður sem undirstrikar mikilvægi
Álfsins fyrir fjárhag SÁÁ. Fram-
lag ríkisins til samtakanna og
starfs þeirra sé á ári hverju liðlega
900 millj. kr. og nú í ár verði 100
millj. kr. bætt við, fjármunum sem
fara til göngudeildarþjónustu. Álf-
urinn skili svo framlagi sem fari
sem endranær til verkefna í þágu
ungs fólks.
„Mikilvægt er að sinna ungum
foreldrum. Einnig hefur verið veitt
árum saman sálfræðiþjónusta fyrir
börn fólks með fíknisjúkdóma, án
framlags frá ríkinu, og það er ein-
mitt sá hópur sem mikilvægast er
að beina að forvörnum og sinna. Í
fíknilækningum eru alltaf að koma
fram nýjungar; lyf og önnur inn-
grip. En það skiptir líka máli að
efla áhugahvöt fólks; mæta ein-
staklingnum þar sem hann er og
hjálpa til breytinga sem hann sér
fyrir sér sjálfur. Hjálpa fólki til að
axla ábyrgð á lífi og heilsu í krafti
getu og styrks. Sé það ekki gert sé
hætta á bakslagi og að sjúkdóm-
urinn nái tökum á viðkomandi að
nýju,“ segir Valgerður.
Álfasala SÁÁ er að hefjast
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Yfirlæknir Hjálpa á fólki til að axla ábyrgð á lífi og heilsu í krafti eigin
getu og styrks, segir Valgerður Rúnarsdóttir um meðferðarstarfið.
Fíknifaraldur
gengur til baka
Valgerður Rúnarsdóttir fædd-
ist árið 1964. Lauk prófum frá
læknadeild Háskóla Íslands ár-
ið 1992. Nam í framhaldinu lyf-
og fíknilækningar í Bandaríkj-
unum. Hefur starfað hjá SÁÁ í
19 ár, yfirlæknir frá 2017.
Hver er hún?