Morgunblaðið - 05.05.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. MAÍ 2019
FYRSTA FLOKKS RÁÐSTEFNU- OG
FUNDARAÐSTAÐA UM ALLT LAND
– ÁRSHÁTÍÐIR, SÖLUFUNDIR,
NÁMSKEIÐ, VEISLUR OG VIÐBURÐIR –
Nánari upplýsingar: islandshotel.is/fundir
Bókanir: fundir@islandshotel.is
Á fimmtudagskvöld í liðinniviku voru 100 ökumenn sekt-
aðir fyrir stöðubrot við Seljaskóla.
Tilefnið var að ÍR og KR kepptu í
körfuknattleik og svo ánægjulega
vildi til að
áhugi var
mikill og
áhorfendur
fjölmargir.
En þaðskyggði
heldur á
ánægjuna hjá
þessum ríflega 100 áhorfendum
þegar þeir komu að bílum sínum
og fundu þar 10.000 króna sekt-
armiða. Og þó að hægt sé að fá
sektina lækkaða um fjórðung með
því að greiða tafarlaust er upp-
hæðin engu að síður töluverð.
Það er þó ekki aðeins upphæðinsem skiptir máli heldur ekki
síður viðhorfið. Býsna algengt er
þegar einhverjir viðburðir eiga
sér stað í Reykjavík, hvort sem
það eru fjölskylduskemmtanir á
vegum borgarinnar í Húsdýra-
garðinum, kappleikir í íþróttum
eða annað sem dregur að sér mik-
inn fjölda manna, að gestir fái
sekt.
Ekki þarf að efast um að sektiner réttmæt í ströngum skiln-
ingi, en getur ekki verið að óþarfi
sé að sekta fólk fyrir að sækja
skemmtanir eða samkomur, þó að
það leggi frjálslega, ef engin
hætta er á ferðum og aðrir kom-
ast greiðlega um?
Afar óvíst er, þó að almennt sémikilvægt að halda uppi lög-
um og reglu, að það bæti mann-
lífið að eltast af kappi við öku-
menn sem neyðast til að leggja
utan þeirra svæða sem almennt
eru viðurkennd, vilji þeir sækja
mannamót.
Kapp er best
með forsjá
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Ísland er á meðal fárra landa sem
hafa hagnast fjárhagslega vegna
hnatthlýnunar síðustu áratuga.
Þetta kemur fram í rannsókn frá
Stanford-háskóla sem birt var í
tímariti bandarísku vísindaaka-
demíunnar, PNAS.
Í frétt finnska miðilsins Yle er
fjallað um rannsóknina en þar seg-
ir að í henni séu hitasveiflur bornar
saman við hagvöxt yfir hálfrar ald-
ar tímabil. Kemur m.a. fram að
verg landsframleiðsla Íslands hafi
vaxið um 92% á árabilinu 1961-
2010, og tengist það hlýnun jarð-
arinnar.
Heitari lönd tapa
Í fréttinni segir að hlýnun jarðar
hafi valdið umtalsverðu falli í efna-
hag hlýrri og fátækari landa, en
svalari og auðugri lönd hafi hins
vegar hagnast.
Segir jafnframt að auk Íslands
hafi verg landsframleiðsla Finn-
lands aukist um 48% og verg fram-
leiðsla Noregs um 34%, en íbúar
beggja landa megi að hluta til
þakka hnattrænni hlýnun. Þá
merkja rannsakendur einnig hag-
vöxt tengdan hnatthlýnun í Kan-
ada, Svíþjóð og Rússlandi
Á hinn bóginn myndi hagkerfi
Indlands vera um þriðjungi stærra
ef ekki væri fyrir áhrif hnatthlýn-
unnar, að því er fram kemur í
niðurstöðum rannsóknarinnar.
teitur@mbl.is
Íslendingar hagnast á hnatthlýnun
Rannsókn unnin af Stanford-háskóla
Morgunblaðið/Valli
Sólskin Íslendingar eru sagðir
hagnast á hnattrænni hlýnun.
Flestir 10. bekkingar á landinu vilja
hefja nám við Verzlunarskóla Ís-
lands (VÍ) næsta haust, en næst-
flestir vilja komast í Menntaskólann
við Sund (MS). Þetta kemur fram í
færslu fésbókarsíðunnar Ráðgjöf
vegna innritunar í framhaldsskóla
þar sem birtar eru tölur úr forinn-
ritun 10. bekkinga í framhaldsskóla
fyrir haustönn 2019. Þar sem ein-
ungis er um forinnritun að ræða
sýna tölurnar ekki alla heild-
armyndina, en þær gætu breyst eft-
ir að nemendur staðfesta umsóknir
sínar síðar í vor. Þá vantar einnig
inn í tölurnar annað val nemenda,
en í umsókn setja nemendur
skólana sem þeir vilja sækja um í
fyrsta og annað sæti.
Umframeftirspurn víða
Eins og mörg fyrri ár sækja mun
fleiri um en komast að í mörgum af
stærri skólum Reykjavíkur. Sem
dæmi setja 527 VÍ í fyrsta val, þar
sem eru 330 laus nýnemapláss. Þá
setja 281 MS í fyrsta val, en þar eru
laus pláss 234. Svipaða sögu er að
segja um Kvennaskólann í Reykja-
vík þar sem 243 velja hann sem
sinn fyrsta kost, en laus pláss eru
225.
Hjá langstærstum hluta skólanna
eru þó færri sem sækja um heldur
en komast að en sem dæmi völdu
190 Menntaskólann í Reykjavík
sem fyrsta val, þar sem laus pláss
eru 262 og 229 völdu Mennta-
skólann við Hamrahlíð sem fyrsta
val, en þar eru laus pláss 310.
Einn í Fisktækniskólann
Ekki taka þó allir framhalds-
skólar landsins við hundruðum
nemenda en sem dæmi settu 11
Menntaskóla í Tónlist, MÍT, í fyrsta
val fyrir komandi skólavetur. Þá
setti einn nemandi Fisktækniskól-
ann í fyrsta val. teitur@mbl.is
Flestir vilja hefja
nám við Verzló
Tölur um forinnritun liggja fyrir
Morgunblaðið/Golli
Busar Þeir sem byrja í MR í haust
verða líklega tolleraðir við komuna.