Morgunblaðið - 05.05.2019, Blaðsíða 9
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Áætlað er að eftir næstu mánaðamót
verði hægt að hefja útboð vegna
uppbyggingar skíðasvæðisins í Blá-
fjöllum. Fyrirhugaðar framkvæmdir
geti þá vonandi hafist sem fyrst, en
stefnt er að því að ný stólalyfta verði
risin á næsta ári. Um er að ræða
nýjan Gosa, 400 metra langa stóla-
lyftu, sem kemur í stað núverandi
lyftu. Þá á að hefja framkvæmdir við
uppbyggingu snjóframleiðslukerfis,
sem verður þó ekki tilbúið fyrir
næsta vetur. Uppbygging svæðisins,
sem áætluð er allt til ársins 2030, er
ekki háð umhverfismati samkvæmt
ákvörðun Skipulagsstofnunar. Alls
er gert ráð fyrir að reisa sjö nýjar
lyftur á svæðinu fram til ársins 2030.
Í fyrra var tilkynnt að sveit-
arfélögin á höfuðborgarsvæðinu
myndu á næstu árum ráðast í end-
urnýjun á skíðasvæðum sem sveit-
arfélögin reka sameiginlega. Kostn-
aður var áætlaður 3,6 milljarðar.
Auk nýs Gosa á að reisa nýja
Drottningu árin 2021-2022, 900
metra stólalyftu og verður núver-
andi lyfta tekin niður í kjölfarið. Þá
verður sett upp 480 metra löng
diskalyfta við brettasvæðið. Tvær
diskalyftur verða settar upp í Eld-
borgargili í stað núverandi lyftu og
mun önnur nýtast sem tengilyfta yf-
ir í Kóngsgil. Einnig verður reist ný
diskalyfta fyrir byrjendur við Blá-
fjallaskála og Borgarlyfta verður
lengd um allt að 70 metra. Þá er gert
ráð fyrir að snúa byrjendalyftu í Sól-
skinsbrekku og staðsetja aðra sams-
konar diskalyftu við hlið hennar.
Samhliða nýjum skíðalyftum er
gert ráð fyrir að stækka svæðið und-
ir skíðabrekkur. Núverandi svæði er
um 53 hektarar og gert er ráð fyrir
að bæta 15 hektara svæði við á fram-
kvæmdatímanum. Þá á að leggja
nýja tvöfalda skíðagönguleið í um 2
km langan hring sem verður tíu
metra breið og áætlað er að hún
verði raflýst. Og gert er ráð fyrir að
setja upp snjóframleiðslukerfi í
tveimur áföngum, fyrst á Heima-
torfu og síðar við Suðurgil.
Aðsókn gæti aukist um helming
Alls bárust 14 umsagnir til Skipu-
lagsstofnunar um fyrirhugaðar
framkvæmdir. Meðal þess sem lýst
var yfir voru áhyggjur vegna ná-
lægðar við vatnsverndarsvæði. Í
svörum framkvæmdaraðila kom
meðal annars fram að í útboðs-
gögnum yrðu gerðar kröfur til verk-
taka um meðferð olíuefna á svæðinu.
Einnig yrði aflað leyfis frá heilbrigð-
iseftirliti um notkun efna í vegstæði,
tímasetningu framkvæmda og stað-
setningu vinnubúða svo eitthvað sé
nefnt. Þá verða borholur sem gerðar
verða vegna vatnsöflunar til snjó-
framleiðslu rannsakaðar og mæl-
ingar á ábyrgð rekstraraðila skíða-
svæðisins, en ólíklegt er talið að
framkvæmdir hafi neikvæð áhrif á
grunnvatn á svæðinu.
Áætlað er að með tilkomu snjó-
framleiðslu muni heildaraðsókn
aukast um 50% miðað við núverandi
aðstæður og að gestir á skíðasvæð-
inu verði um 60 þúsund að meðaltali
á ári. Þrátt fyrir það er óvíst hvort
heildarfjöldi gesta yfir staka daga
verði meiri, en með fleiri opnunar-
dögum geti aðsóknin dreifst og orðið
jafnari. Hætta á umhverfisslysum
þurfi því ekki að aukast þrátt fyrir
aukna umferð um svæðið.
Ef mengunarvarnir við aðkomu
og á bílastæðum skíðasvæðisins
verði tryggðar sé vandséð að aukin
aðsókn að svæðinu breyti miklu
hvað varðar líkur á mengun grunn-
vatns.
Sjö nýjar lyftur
í Bláfjöllum á
næstu árum
Framkvæmdir vegna uppbyggingar
á skíðasvæði ekki háðar umhverfismati Framtíðarsvæði
Bláfjalla 2024
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. MAÍ 2019
Til í mörgum
stærðum og ge
Nuddpottar
Fullkomnun í líkamlegri vellíðan
rðum
Vagnhöfða 11 | 110 Reykjavík | www.ofnasmidja.is | sími 577 5177
Ein öflugustu meltingarensím ámarkaðnum í dag
● Ensím eru nauðsynleg fyrir meltingu og
öll efnaskipti líkamans.
● Betri melting, meiri orka!
● Inniheldur ATPro (ATP (orkuefni líkamans),
Magnesíum Citrate, Coensime Q10, Phytase).
● Söluhæsta meltingarvaran í Bandaríkjunum.
● 100% vegan hylki. Án fylliefna, bindiefna eða
annarra flæðiefna.
Fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og og í heilsuhillum stórmarkaða
Mér finnst gott að fá mér bjór með pizzu
en því miður þá verð ég alltaf útþaninn
eftir það. Ég að prófaði að taka „Digest
Gold“ fyrir máltíðina og viti menn, það bara
svínvirkaði!
Haraldur Egilsson, 47 ára sjómaður og
ævintýragjarn matgæðingur
Það bara svínvirkaði!
Digest Gold
Ensím geta hjálpað til við að slá á óþægindi svo sem,loftmyndun,
uppþembu, meltingartruflanir og meltingaróreglu
Yfir hundrað ungir hestamenn
komu saman í TM-reiðhöllinni í
Víðidal um helgina þegar sýningin
Æskan og hesturinn var haldin þar.
Börn á öllum aldri og á öllum stig-
um hestamennskunnar komu þar
saman og sýndu ýmis atriði. Hesta-
mannafélögin á höfuðborgarsvæð-
inu, Fákur, Hörður, Máni, Sprettur
og Sörli, sendu öll sitt sýningarfólk.
Sýningin er haldin árlega og er há-
punktur vetrarstarfsins hjá ungum
og upprennandi knöpum.
Æskan ann
hestinum
Ljósmynd/Aðsend
Tölvuteiknuð mynd/Landslag