Morgunblaðið - 05.05.2019, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. MAÍ 2019
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosamargrett@gmail.com
Sextíu stundir af sólskini erþriggja daga námskeið semaðdáendum samnefndrarverðlaunabókar stendur nú
til boða. Verður námskeiðið haldið á
Siglufirði, á söguslóðum bókarinnar,
dagana 16.-19. maí. Höfundur bók-
arinnar, Hallgrímur Helgason, mun
sjálfur leiða námskeiðið og fjalla um
bókina og sögusvið hennar. Sextíu
kíló af sólskini hefur vakið mikla at-
hygli og vann til Íslensku bók-
menntaverðlaunanna 2018 í flokki
fagurbókmennta en bókin byggist á
sögu Siglufjarðar.
Margrét Jónsdóttir Njarðvík,
eigandi og stofnandi ferðaskrifstof-
unnar Mundo, skipuleggur nám-
skeiðið. Hún segir Siglufjörð eiga
sérstakan stað í huga margra Ís-
lendinga. „Saga Siglufjarðar er
þannig að það er varla til sá Íslend-
ingur sem ekki tengir við hana. Hver
á ekki frænku, frænda eða ömmu og
afa sem voru á vertíð í síldinni á sín-
um tíma? Siglufjörður er enn þann
dag í dag staður sem er sveipaður
ævintýraljóma,“ segir Margrét sem
segist finna fyrir miklum áhuga á
námskeiðinu og segir að þegar hafi
margir skráð sig, en enn sé hægt að
slást í hópinn.
Hún segir að námskeiðið muni
gera söguna í bókinni ljóslifandi fyr-
ir fólki. Meðal annars verður siglt
um Siglufjörð undir leiðsögn Örlygs
Kristfinnssonar sem stofnaði Síld-
arminjasafnið og gengið um Héðins-
fjörð þar sem snjóflóðið í upphafi
bókarinnar átti sér stað. Gestir
munu svo snæða á Hótel Siglunesi
þar sem gist verður í þrjár nætur.
„Þökk sé kokkinum þar var Siglu-
fjörður tilnefndur mataráfanga-
staður Norðurlanda í fyrra,“ segir
Margrét og bætir við að veitinga-
húsið sé uppbókað á hverju einasta
kvöldi og að Íslendingar hafi þurft
að „læra að panta borð“ til að kom-
ast að. Hún segir hótelið vera inn-
réttað með húsgögnum frá Siglufirði
á þeim tíma sem sagan í Sextíu kíló
af sólskini á að gerast, nokkuð sem
bæti við upplifunina.
Lífsbreytandi ferðaskrifstofa
Margrét segir að Mundo gefi
sig út fyrir að vera ferðaskrifstofa
sem leggi áherslu á menntun,
skemmtun, menningu og þjálfun en
námskeiðið Sextíu stundir af sólskini
er gott dæmi um þessar áherslur.
Sjálf er Margrét doktor í spænsku
máli og bókmenntum og kenndi
lengi við Háskóla Íslands og Háskól-
ann í Reykjavík. „Svo fékk ég MBA-
gráðu og fattaði að ég átti ekki að
vera í akademíunni. Ég er bara
frumkvöðull,“ segir Margrét og
hlær.
Hún segist nota menningar-
legan bakgrunn sinn til að búa til
skemmtilegar og öðruvísi ferðir og
námskeið en sumarbúðir og skipti-
nám Mundo fyrir unglinga er vel
þekkt á Íslandi. Margrét hefur til að
mynda séð um ferðir í tengslum við
Don Kíkóta, farið með fólk á staði
sem tengjast spænsku konungsfjöl-
skyldunni og verið með pílagríms-
ferðir um Jakobsveginn á Spáni.
Þessar ferðir segir Margrét að
breyti oft lífi fólks, en það sé eitt af
því sem Mundo vill standa fyrir; að
vera lífsbreytandi ferðaskrifstofa.
Nú segist hún vera að skipuleggja
gönguferð í tengslum við bækur
Ragnars Jónassonar sem gerist
einnig á Siglufirði. Hún segir að
Mundo hafi verið að leggja meiri
áherslu á að fá íslenska ferðamenn á
Siglufjörð en ferðaskrifstofan hefur
staðið fyrir skíðagöngunámskeiðum
þar í allan vetur.
„Siglufjörður er svo frábær
bær. Þetta er svona staður sem Ís-
lendingar eiga enn. Hann er ekki
bara fyrir túristana,“ segir Margrét.
Sextíu sólarstundir á Siglufirði
Bókelskum Íslendingum
stendur nú til boða að
taka þátt í námskeiði á
Siglufirði í tengslum við
verðlaunabókina Sextíu
kíló af sólskini eftir
Hallgrím Helgason.
Ljósmynd/Síldarminjasafn Íslands
Gamlir tímar Leifar gömlu síldarbryggjunnar á Siglufirði minna á síldarárin góðu sem verðlaunabókin Sextíu kíló af sólskini fjallar um.
Hjón Margrét og eiginmaður hennar Hálfdán Sveinsson frá Siglufirði.
„Ég tók ritstjórnina að mér fyrir rælni
og ákvað þá að árin yrðu aldrei fleiri
en fimm. Læt því hér staðar numið,
segir Svavar Gestsson fv. ráðherra.
„Við settum okkur það markmið að
gefa út vandað, líflegt og fróðlegt rit
og það tel ég okkur hafa tekist. Þetta
hafa verið góð ár og undir minni
stjórn hafa komið út 950 blaðsíður
þar sem tugir höfunda hafa átt efni.“
Í gær var formlegur útgáfudagur
Breiðfirðings, sem er ársrit Breiðfirð-
ingafélagsins. Þetta er 67. árangur
ritsins, en þar er að finna marg-
víslegan fróðleik úr byggðunum við
fjörðinn, það er frá Öndverðarnesi að
Bjargtöngum – og raunar allt til Arn-
arfjarðar. Fjöldi höfunda leggur nú
sem endranær Breiðfirðingi til efni.
Má þar nefna greinar um landnáms-
menn, æðarvarp, jarðhita, sagt er frá
Þjóðgarðinum Snæfellsjökli og
minnsta atvinnuleikhúsi í heimi sem
sagt er vera Frystiklefinn á Rifi á
Snæfellsnesi. Þá má nefna áhuga-
verðan pistil um húsin í Flatey á
Breiðafirði. – Einnig er að finna
áhugaverð viðtöl við fólk sem með
störfum sínum hefur markað skil í at-
vinnulífi og framfarasókn. Alls er rit-
ið 224 blaðsíður og er vandað að allri
gerð. sbs@mbl.is
Þjóðlegur fróðleikur í Breiðfirðingi
Vandað, líflegt og fróðlegt rit
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ritstjórinn Svavar Gestsson með Breiðfirðing sem kom formlega út í gær.
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
Sími: 411 5000
www.itr.is