Morgunblaðið - 05.05.2019, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. MAÍ 2019
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Áhugaverð tækifæri fyrir sérfræðinga
í hugbúnaðar¯, verk¯ og tæknigeiranum
Kynningarfundur – 9.maí kl 12.30
Fjarskipta- og upplýsingatæknistofnun Atlantshafsbandalagsins (NCI Agency) í
samvinnu við utanríkisráðuneytið og Landhelgisgæslu Íslands bjóða til kynningar-
fundar fyrir verk- og tæknimenntaða sérfræðinga þar sem kynntir verða atvinnu-
möguleikar fyrir íslenska ríkisborgara hjá NCI Agency.
NCI Agency er með höfuðstöðvar í Haag, Hollandi og fjölda útibúa í aðildarríkjunum. Stofnunin veitir fjölþætta fjarskipta-
og upplýsingatækniþjónustu fyrir stofnanir Atlantshafsbandalagsins og aðildarþjóðirnar þ.m.t. hugbúnaðargerð, ráðgjöf,
fjarskiptaþjónusta, hönnun tækni- og fjarskiptabúnaðar, netvarnir og öll önnur tengd verkefni, þjónusta og kennsla. Sjá nánar
https://www.ncia.nato.int .
Kynningarfundurinn fer fram í Víkingasal (4&5) á Hótel Reykjavik Natura, fimmtudaginn 9. maí
og hefst hann kl. 12.30. Boðið verður upp á léttar veitingar.
Utanríkisráðuneytið, Landhelgisgæsla Íslands, Samtök iðnaðarins og Íslandsstofa
í samvinnu við Fjarskipta- og upplýsingatæknistofnun Atlantshafsbandalagsins
(NCI Agency) bjóða íslenskum hátæknifyrirtækjum til fundar þar sem kynntir
verða möguleikar á að selja vörur og þjónustu og bjóða í verkefni á vegum
Atlantshafsbandalagsins og aðildarþjóðanna.
NCI Agency veitir stofnunum Atlantshafsbandalagsins og aðildarþjóðunum fjölþætta fjarskipta- og upplýsinga-
tækniþjónustu, þ.m.t. hugbúnaðargerð, ráðgjöf, fjarskiptaþjónusta, hönnun tækni- og fjarskiptabúnaðar, netvarnir
og öll önnur tengd verkefni og þjónusta. Sjá nánar https://www.ncia.nato.int .
NCI Agency mun einnig kynna NITEC19 ráðstefnuna sem haldin verður í Ósló 20.-22. maí þar sem
saman koma allir helstu tæknisérfræðingar Atlantshafsbandalagsins, bandalagsþjóðanna og iðnaðarins. Norðurslóðir
verða í brennidepli ráðstefnunnar í ár (sjá nánar https://nitec19.com/).
Kynningarfundurinn fer fram í utanríkisráðuneytinu, fimmtudaginn 9. maí og hefst hann kl. 08.30.
Boðið verður upp á léttan morgunverð.
Hátæknifyrirtæki
Morgunverðarfundur – 9. maí kl. 8.30Það er mikið líf og fjör í náttúrunni
þessi dægrin, sem lengjast með
hverri mínútunni, enda sumarið
komið. Fuglarnir okkar eru byrj-
aðir að verpa, s.s. fálkinn, hrafninn,
tjaldurinn og skógarþrösturinn og
einhverjir fleiri, en þó eru ekki allir
komnir til landsins eftir vetrardvöl
ytra, því enn vantar óðinshana og
þórshana og megnið af kjóunum.
Síðustu vikurnar hefur líka sést
til erlendra gesta, sem flesta hefur
borið af leið á farflugi sínu annað.
Þetta eru alaskagæs, bakkasvala,
barrfinkur, a.m.k. sex bjarthegrar,
bleshænur, bæjasvala, dvergmáfur,
nokkrar fjallafinkur, flekkugrípur,
glóbrystingur, 20-30 gransöngv-
ararar, nokkrir gráhegrar, tvær
grænfinkur, nokkrir hettusöngv-
arar og hringdúfur, hringönd,
hrísastelkur, fjöldi ískjóa, kan-
adagæsir, nokkrir kjarnbítar, kúf-
önd, fjöldinn allur af landsvölum,
laufsöngvari, lyngstelkur, silki-
toppa, svartsvanur og turnfálki.
Nýlega náðust myndir af vatna-
gleðu í Biskupstungum, en þar til
höfðu einungis þrjár sést á Íslandi
frá upphafi skráninga. Og víst er að
fleiri tegundir eiga eftir að birtast
hér næstu dagana.
Meðfylgjandi ljósmyndir tók 15
ára gamall Siglfirðingur, Mikael
Sigurðsson.
sigurdur.aegisson@gmail.com
Ljósmyndir/Mikael Sigurðsson
Hrísastelkur í Sandgerði Varpheimkynni hans eru í Norður-Ameríku.
Bakkasvala á Selfossi Hún á varpheimkynni beggja vegna Atlantsála.
Fleygir erlendir gestir
komu í heimsókn
Bjarthegrar í Álftaveri Þeir koma hingað frá Evrópu en verpa líka í A-Asíu.