Morgunblaðið - 05.05.2019, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. MAÍ 2019
Gengið var til
kosninga til að
velja nýjan for-
seta í Norður-
Makedóníu í gær.
Útgönguspár
gáfu til kynna að
Stevo Pend-
arovski, fram-
bjóðandi ríkis-
stjórnarinnar úr
Jafnaðarmanna-
bandalaginu, hefði unnið sigur.
Forseti landsins nýtur ekki mik-
illa valda en kosningin var þó talin
mikilvæg könnun um afstöðu lands-
manna til nafnbreytingar landsins
sem tók gildi í janúar. Nafninu var
breytt úr Makedóníu í Norður-
Makedóníu til að leysa deilu við
Grikkland um tilkall til samnefnds
héraðs í Grikklandi. Fráfarandi for-
seti landsins, Gjorge Ivanov, var
mótfallinn nafnbreytingunni og
reyndi að koma í veg fyrir hana.
Mótframbjóðandi Pendarovskis,
Gordana Siljanovska-Davkova, var
einnig á móti henni.
Að minnsta kosti 41 létust þegar
eldur kviknaði í rússneskri far-
þegaflugvél þegar hún hóf sig til
lofts frá flugvelli í Moskvu í gær.
Flugvélin nauðlenti á Sjeremetjevó-
flugvellinum eftir að kviknaði í
henni en margir farþegarnir kom-
ust út um neyðarútgangana. Alls
voru 78 manns um borð. Flugvélin
hafði hringsólað tvisvar yfir
Moskvu í um 45 mínútur þegar hún
nauðlenti.
Dímítrí Medvedev forsætisráð-
herra hefur skipað rannsóknar-
nefnd til að komast að því hvað olli
eldinum.
RÚSSLAND
Moskva Flugvélin í ljósum logum.
Mannfall eftir nauð-
lendingu í Moskvu
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kór-
eu, var á laugardaginn viðstaddur
tilraunir með stýriflaugar og eld-
flaugaskotpalla þar sem eldflaugum
var skotið frá Kóreuskaga út í Jap-
anshaf.
Eldflaugatilraunirnar hafa vakið
áhyggjur um að Norður-Kórea
hyggist taka harðari afstöðu gegn
vesturveldunum á ný eftir að Kim
mistókst að ná fram samkomulagi
um afléttingu viðskiptaþvingana
gegn landinu á fundi með Donald
Trump Bandaríkjaforseta í Hanoi í
fyrra.
„Kim Jong-un gerir sér fulla
grein fyrir efnahagsgetu Norður-
Kóreu & mun ekkert gera til að
trufla eða spilla henni,“ skrifaði
Trump á twittersíðu sinni. „Hann
veit líka að ég er með honum & vill
ekki brjóta loforðið við mig. Samn-
ingur mun nást!“
Mike Pompeo, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði að enn væri
von um samning við Norður-Kór-
eumenn og benti á að eldflaugarnar
væru tiltölulega skammdrægar og
ógnuðu því ekki Bandaríkjunum.
AFP
Norður-Kórea Kim Jong-un fylgist með eldflaugum í skottilraun um helgina.
Kim Jong-un gerir til-
raunir með eldflaugar
NORÐUR-MAKEDÓNÍA
Nýr forseti kjörinn í
skugga nafnadeilu
Stevo
Pendarovski
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Ísraelski herinn og vopnaðar hreyf-
ingar á Gasaströndinni hafa skipst á
eldflaugaskotum frá því á laugar-
daginn.
Átök blossuðu upp að nýju á svæð-
inu eftir að leyniskytta úr hryðju-
verkasamtökunum Íslamskt jihad í
Palestínu skaut á ísraelska hermenn
og særði tvo þeirra á föstudaginn. Í
kjölfarið skaut ísraelski herinn eld-
flaug inn í Palestínu sem varð tveim-
ur meðlimum Hamas, samtakanna
sem stjórna heimastjórn Palestínu-
manna, að bana. Daginn eftir skutu
Palestínumenn 430 eldflaugum yfir
landamæri Gasastrandarinnar inn í
Ísrael. Samkvæmt frétt Le Monde
um málið skutu loftvarnasveitir Ísr-
aela 150 af eldflaugunum niður en
fjórir Ísraelar létu þó lífið í árásinni
og aðrir særðust eða neyddust til að
flýja í skjól. Meðal hinna látnu var 58
ára gamall maður sem lést í garði
sínum þegar eldflaug hæfði heimili
hans. Íslamskt jihad í Palestínu lýsti
yfir ábyrgð á a.m.k. sumum af eld-
flaugaárásunum og samtökin sögð-
ust reiðubúin til að halda árásunum
áfram.
Gagnárás Ísraela
Ísraelski herinn brást við með
gagnárás á 220 skotmörk á Gasa-
ströndinni og Benjamín Netanjahu,
forsætisráðherra landsins, hefur
heitið því að fleiri árásir verði gerð-
ar. Hann lýsti því jafnframt yfir að
skriðdrekar, stórskotalið og fót-
göngulið yrðu send á svæðið til að
koma ísraelskum hermönnum til að-
stoðar.
Að minnsta kosti 23 manns í Pal-
estínu hafa látist í árásunum, þar á
meðal ólétt kona og eins árs frænka
hennar. Talsmaður ísraelska hersins
hafnaði því að frænkurnar hefðu far-
ist í gagnárás hersins og staðhæfði
að þær hefðu í raun látist í mis-
heppnaðri eldflaugaárás Hamas.
Ísraelski herinn segist hafa miðað
flugskeytum sínum á fylgsni víga-
manna og í sumum tilfellum á til-
tekna einstaklinga sem hafa gegnt
sérhlutverkum í starfsemi palest-
ínskra vígahópa. Að sögn yfirvalda á
Gasaströndinni er einn hinna látnu
Hamed Khoudary, foringi í hervæng
Hamas sem hafði unnið við að veita
fjárstyrki frá Íran til vígasamtaka í
Palestínu. Meðal annarra skotmarka
má nefna jarðgöng sem Íslamskt ji-
had hafði notað til að gera árásir á
landamærunum.
Tvær blokkir í Gasaborg voru
lagðar í rúst í gagnárás Ísraela en í
annarri þeirra var skrifstofa tyrk-
neska ríkisfjölmiðilsins Anadolu.
Recep Tayyip Erdogan, forseti
Tyrklands, fordæmdi í kjölfarið
árásina og hét því að fréttastofa An-
dalou myndi halda áfram að upplýsa
heiminn um „ísraelska hryðjuverka-
starfsemi og voðaverk í Gasa“.
Egyptaland, Jórdanía, Sameinuðu
þjóðirnar og Evrópusambandið hafa
kallað eftir því að báðar fylkingar
hætti átökunum umsvifalaust.
Bandaríkin fordæmdu árásir Palest-
ínumanna og sögðust styðja sjálfs-
varnarrétt Ísraela.
Viðkvæmt vopnahlé
Ísraelar og Palestínumenn undir-
rituðu vopnahléssamning með milli-
göngu Egypta í nóvember í fyrra eft-
ir hörð átök á Gasaströndinni.
Samkvæmt samningnum léttu Ísr-
aelar nokkuð á veiðibanni sem þeir
hafa beitt á fiskimið við strendur
Palestínu frá því Hamas komst til
valda árið 2007. Fylkingar innan
Hamas hafa sakað Ísraela um að
draga lappirnar með að uppfylla skil-
mála vopnahléssamningsins og
hugsanlegt er að óþolinmæði í þeirra
garð hafi hleypt upp átökunum.
Átökin hefjast á viðkvæmum tíma
fyrir Netanjahu, sem stendur nú í
snúnum stjórnarmyndunarviðræð-
um eftir hnífjafnar kosningar sem
haldnar voru í síðasta mánuði. Vænt-
anlegir félagar hans í stjórnarsam-
starfi verða úr röðum harðlínu-
manna, en Netanjahu neyddist í
fyrra til að boða snemma til kosn-
inga, meðal annars vegna þess að
varnarmálaráðherra hans sagði af
sér vegna óánægju með vopnahlés-
samninginn.
Hitnar í kolunum á Gasa-
ströndinni eina ferðina enn
Fjórir Ísraelar og 23 Palestínumenn látnir í eldflaugaárásum á landamærunum
AFP
Gasa Eldflaugar þjóta um himininn yfir landamærum Gasa. Átök hófust á laugardag og ógna vopnahléi frá 2018.