Morgunblaðið - 05.05.2019, Blaðsíða 30
30 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. MAÍ 2019
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagins 13. maí
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
Skoðuð verða húsgögn og innréttingar,
skrautmunir og fylgihlutir fyrir heimilið,
litir og lýsing ásamt mörgu öðru.NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Heimili &
hönnun
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 17. maí
50 ára Ríkey er fædd
og uppalin í Ólafsvík
en býr í Reykjavík. Hún
er hárgreiðslumeistari
og tækniteiknari að
mennt og er eigandi
og markaðsstjóri hjá
Hagvís.
Maki: Birgir Másson, f. 1966, eigandi og
framkvæmdastjóri hjá Hagvís.
Börn: 1) Andri Már, f. 1992, dóttir hans
er Emilía Ósk, unnusta Andra er Mar-
grét og sonur hennar er Patrekur; 2)
Meyvant Már, f. 1995, og 3) Pétur Már,
f. 2005.
Foreldrar: Pétur F. Karlsson, f. 1946,
fyrrverandi skipstjóri, og Kristín E. Guð-
mundsdóttir, f. 1946, húsmóðir. Þau eru
búsett í Reykjavík.
Ríkey Mortensen
Pétursdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Ekki örvænta, með tímanum munt
þú fá það sem þér ber. Nú er ekki tími til
að efast. Heimilið er í rúst eftir breytingar,
virkja þarf heimilisfólk til að hjálpast að.
20. apríl - 20. maí
Naut Njóttu góðrar vináttu og taktu öllum
heimboðum fagnandi. Félagslíf þitt á eftir
að taka mikinn fjörkipp næstu vikur. Þú
setur einhvern út af laginu með at-
hugasemd þinni.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefðir gott af því að breyta til
á einhver hátt hvort sem er heima fyrir
eða í vinnunni. Ráðfærðu þig við þá sem
þekkja þig best.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Góð vara selur sig sjálf, er stund-
um haft á orði. Þannig er með þína vöru.
Leggðu orku og áhuga í áform þín, þú
munt uppskera vel.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Láttu ekki streitu ná tökum á þér. Líf-
ið er langhlaup. Samband mun bera ávöxt,
en ekki á þann hátt sem þú áttir von á.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur tekið allt of mörg verkefni
að þér og átt nú á hættu að missa stjórn á
öllu saman. Deildu þeim á fleiri. Einhver
smá flensa herjar á fjölskylduna.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er nauðsynlegt að sýna sparsemi
þessa dagana. Vinur þinn á í vandræðum,
þú ættir að athuga hvort þú getur hjálpað.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ekki þreyta vinnufélagana
með endalausum sögum af einkahögum
þínum. Einhver gengur á eftir þér með
grasið í skónum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú hefur byr í seglin þessa
stundina, en verður líka að vera viðbúin/n
veðrabrigðum. Þú átt auðvelt með að
hoppa á milli hlutverka.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ekki efast um gáfur þínar eða
hæfni þína til að taka eigin ákvarðanir.
Hálfnað er verk þá hafið er. Samband
hangir á bláþræði.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Búðu þig undir að til einhvers
orðaskaks komi á vinnustað þínum. Gefðu
sannleikanum tíma til að koma í ljós.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Mundu að það er ákveðið frelsi
fólgið í því að sleppa tökunum og treysta á
að allt fari vel að lokum. Leggðu höfuðið í
bleyti hvernig nýta megi plássið heima
betur.
við fengum meira að segja dagpen-
inga.“ Kristján hefur verið sæmdur
gullmerki Knattspyrnufélags ÍA og
silfur- og gullmerki KSÍ.
„Mestallur frítími minn hefur
farið í félagsstörf, maður má ekki
láta vita af sér, þá er maður lentur
Vesturlandi 2003-2006, stjórnar-
formaður Sementsverksmiðju rík-
isins 1991-1993 og sat í stjórn
Sementsverksmiðjunnar í 12 ár.
Hann hefur verið stjórnarformaður
Stjórnendafélagsins Jaðars Akra-
nesi frá 2012 og í stjórn Stjórn-
endasambandsins frá 2013.
Kristján hefur verið virkur félagi í
Oddfellowreglunni IOOF, st. nr. 8
Agli, síðastliðin 45 ár og gegnt
helstu trúnaðarstörfum þar.
Kristján hefur verið í sóknarnefnd
Akraneskirkju síðastliðin sex ár og
er fulltrúi í öldungaráði Akranes-
kaupstaðar.
Kristján sat í stjórn Knatt-
spyrnufélags ÍA og í knattspyrnu-
ráði ÍA til fjölda ára. „Við vorum
alltaf í Evrópukeppninni á þessum
tíma og svo fórum við í eftirminni-
lega ferð til Medan í Indónesíu og
kepptum í 16 liða móti og töpuðum
í bráðabana í úrslitum. Feyenoord
hafði verið boðið á mótið en komst
ekki, en Pétur Pétursson var þá í
liði Feyenoord og benti á okkur
um að koma í staðinn. Það var
borguð undir okkur öll ferðin og
K
ristján Sveinsson
fæddist á Suðurgötu
117 á Akranesi og
ólst þar upp til 1954
þegar fjölskyldan
fluttist á Jaðarsbraut 3 og bjó
hann þar til 1971.
Kristján spilaði fótbolta í yngri
flokkunum með ÍA og var mikill
markaskorari, en fékk heilahimnu-
bólgu og hætti að æfa í kjölfarið.
Hann fór þá í félagsstörfin í fót-
boltanum í staðinn og hefur starfað
sleitulaust fyrir boltann síðan.
Hann gekk í Barnaskólann á Akra-
nesi og lauk prófi frá Samvinnu-
skólanum á Bifröst 1969.
Kristján var fulltrúi hjá Sam-
vinnubankanum á Akranesi og
starfaði hjá Samvinnutryggingum
1969-87, hóf þá störf hjá Olíufélag-
inu hf., var svæðisstjóri á Vest-
urlandi og viðskiptastjóri þar og
var síðan viðskiptastjóri hjá N1 frá
stofnun fyrirtækisins til áramóta
2018-2019. Þá var hann umboðs-
maður Samvinnuferða – Landsýnar
um skeið. Kristján rak ásamt eig-
inkonu sinni íþróttavöru- og leik-
fangaverslunina Óðin ehf. á Akra-
nesi um 15 ára skeið. „Við
keyptum húsið á Kirkjubraut 5 ár-
ið 1971, rákum verslunina á neðri
hæðinni og bjuggum á þeirri efri í
42 ár til við fluttum á Vallarbraut
4.“
Kristján var bæjarfulltrúi á
Akranesi 1998-2006 fyrir Samfylk-
inguna, varamaður í bæjarráði
Akraness, varaforseti bæjar-
stjórnar 1998-2004 og forseti bæj-
arstjórnar 2005-2006. „Við vorum í
meirihluta og það gekk allt vel.
Meðal verka sem ég er stoltur af
er að við sameinuðum Akranes-
veitur og Orkuveitu Reykjavíkur.
Það var mikið framfaraspor fyrir
bæinn og lækkaði hitakostnaðinn
umtalsvert.“
Kristján var formaður síðustu
hafnarstjórnar Akraness áður en
höfnin sameinaðist Faxaflóa-
höfnum, sat í skipulagsnefnd Akra-
ness í fjögur ár, var í stjórn Hjúkr-
unar- og dvalarheimilisins Höfða í
tólf ár, þar af stjórnarformaður í
fjögur ár 2010-2014, var varafor-
maður Samtaka sveitarfélaga á
í stjórn einhvers staðar. En við
eiginkonan keyptum hjólhýsi í
fyrra og ætlum að reyna að ferðast
á því í sumar.“
Fjölskylda
Kristján kvæntist 23.9. 1972 Sig-
rúnu Höllu Karlsdóttur sjúkraliða.
Hún er dóttir Karls Sigurðssonar
kaupmanns og Álfhildar Ólafs-
dóttur húsmóður, stjúpmóðir Sig-
rúnar var Kristín Sigurðardóttir
sjúkraliði.
Börn Kristjáns og Sigrúnar
Höllu: 1) Álfhildur, f. 15.12. 1975,
viðskiptafræðingur, búsett í Ann-
Arbor í Michigan, Bandaríkjunum.
Álfhildur er gift Þór Árnasyni
barnahjartalækni. Börn þeirra eru
Kristín Halla, f. 2003, Karl
Kristján, f. 2006, og Emilía Mar-
grét, f. 2012; 2) Karl Kristinn, f.
17.2. 1979, stúdent, lést af slysför-
um 10.4. 2000; 3) Sveinn, f. 7.12.
1984, rekstrarverkfræðingur,
búsettur í Garðabæ. Fyrrverandi
eiginkona hans er Stefanía Sigurð-
ardóttir viðskiptafræðingur. Börn
þeirra eru Kristján, f. 2008, Klara
Kristján Sveinsson viðskiptastjóri – 70 ára
Fjölskyldan Efri röð frá vinstri: Þór, Álfhildur, Kristín Halla, Kristján, Sveinn og Sigrún. Neðri röð frá vinstri:
Emilía Margrét, Karl Kristján, Kristján, Klara Margrét og Karlotta Lind.
Hefur gaman af félagsmálum
Hjónin Sigrún og Kristján og gamli
Akranesvitinn í baksýn.
30 ára Elín ólst upp í
Vesturbænum í
Reykjavík en flutti í
Hafnarfjörð 13 ára og
hefur búið þar síðan.
Hún er sjúkraliði og
vinnur á bráða-
móttökunni í Foss-
vogi.
Maki: Hermann Valdi Valbjörnsson, f.
1988, lögreglumaður hjá Ríkislög-
reglustjóra.
Börn: Matthías Bergmann, f. 2013, og
Tinna Hrönn, f. 2018.
Foreldrar: Sigurður Þorsteinsson, f.
1961, slökkviliðsmaður á höfuðborgar-
svæðinu, og Guðrún Hrönn Guðbjörns-
dóttir, f. 1962. Þau eru búsett í Hafnar-
firði.
Elín Sigurðardóttir
Til hamingju með daginn
Hafnarfjörður Tinna Hrönn
Hermannsdóttir fæddist 4.
desember 2018. Hún var 3.810
g við fæðingu og 51 cm á
lengd. Foreldrar hennar eru
Elín Sigurðardóttir og Her-
mann Valdi Valbjörnsson.
Nýr borgari