Morgunblaðið - 05.05.2019, Blaðsíða 32
Á ÁSVÖLLUM
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Stórleikur Grétars Ara Guðjóns-
sonar í marki Hauka vó þungt þegar
lið hans vann ÍBV með fimm marka
mun, 32:27, í þriðja undanúrslitaleik
liðanna á Íslandsmótinu í hand-
knattleik karla í Schenker-höllinni á
Ásvöllum í gær. Grétar Ari reyndist
leikmönnum ÍBV óþægur ljár í þúfu.
Hann varði 24 skot, flest í síðari hálf-
leik, og kom þar með í veg fyrir að
ÍBV næði að saxa á forskotið sem
Haukar náðu á síðustu mínútum
fyrri hálfleiks. Að honum loknum
var staðan 17:13.
Haukar eru þar með komnir með
tvo vinninga í kapphlaupinu við
Eyjamenn sem hafa einn vinning.
Næst leiða liðin saman hesta sína í
Vestmannaeyjum á miðvikudaginn.
Þá verður að duga eða að drepast
fyrir leikmenn ÍBV því tapi þeir á
heimavelli fara þeir í sumarfrí.
Spenna var í lofti fyrir leikinn á
Ásvöllum í gær. Fjórir leikmenn
tóku úr leikbann eftir átakamikla
aðra viðureign liðanna í Vest-
mannaeyjum á fimmtudaginn. Eyja-
mönnum gramdist og gremst enn sú
ákvörðun aganefndar HSÍ að úr-
skurða Kára Kristján Kristjánsson,
leikmann ÍBV, í þriggja leikja bann
eftir viðskipti við Heimi Óla Heim-
isson. Telja þeir Kára Kristján hart
leikinn. Ekki hýrnaði yfir Eyja-
mönnum þegar Heimir Óli tók fullan
þátt í leiknum í gær þótt sagt sé að
hann hafi hlotið heilahristing við
bræðrabyltuna með Kára. Sé það
rétt að Heimir Óli hafi hlotið heila-
hristing á fimmtudaginn er alvarlegt
að hann hafi tekið þátt í leiknum í
gær, eftir mikla umræðu síðustu
missera um höfuðhögg í íþróttum.
Darri Aronsson, leikmaður
Hauka, tók út fyrra leikbann sitt af
tveimur í gær. Félagi hans Adam
Haukur Baumruk og Eyjamaðurinn
Róbert Sigurðsson sátu einnig í
skammarkróknum vegna leikbanna.
Tveir þeir síðarnefndu verða gjald-
gengir í næstu viðureign liðanna.
Jafnt var á nánast öllum tölum
fram undir lok fyrri hálfleiks þegar
Haukar nýttu sér bráðræði í sókn-
arleik ÍBV til þess að skora nokkur
hraðaupphlaupsmörk og ná fjögurra
marka forskoti fyrir lok fyrri hálf-
leiks. Haukar stóðust síðan áhlaup
Eyjamanna í upphafi síðari hálfleiks.
Munurinn á liðunum hélst á bilinu
fjögur til sex mörk allt til enda.
Meiri spenna utan en innan vallar
Grétar Ari reyndist Eyjamönnum
óþægur ljár í þúfu á Ásvöllum
Morgunblaðið/Hari
Sigur Ásgeir Örn Hallgrímsson, leikmaður Hauka, í marktækifæri.
32 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. MAÍ 2019
HANDBOLTI
Olísdeild karla
Undanúrslit, þriðji leikur:
Haukar – ÍBV ....................................... 32:27
Staðan er 2:1 fyrir Haukum.
Grill 66 deild karla
Umspil, þriðji úrslitaleikur:
Víkingur – HK ...................................... 26.28
Víkingur er yfir, 2:1.
Þýskaland
Minden – Füchse Berlín...................... 27:28
Bjarki Már Elísson skoraði 3 mörk fyrir
Füchse.
Bergischer – Stuttgart ....................... 29:28
Arnór Þór Gunnarsson skoraði 8 mörk
fyrir Bergischer.
Erlangen – Kiel.................................... 21:30
Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Erlangen.
Alfreð Gíslason þjálfar Kiel. Gísli Þ.
Kristjánsson er frá keppni vegna meiðsla.
B-deild:
Balingen – Wilhelmshavener............. 38:25
Oddur Gretarsson skoraði 1 mark fyrir
Balingen.
Hamburg – Coburg ............................. 30:24
Aron Rafn Eðvarðsson varði 12 skot í
marki Hamburg.
Elbflorenz – Hüttenberg .................... 18:18
Ragnar Jóhannsson skoraði 4 mörk fyrir
Hüttenberg.
A-deild kvenna:
Neckarsulmer – Union Halle ............. 33:25
Birna Berg Haraldsdóttir skoraði 2
mörk fyrir Neckarsulmer.
Bietigheim – Dormtund ......................38:30
Hildigunnur Einarsdóttir skoraði 1
mark fyrir Dortmund.
Danmörk
Umspilskeppni um sæti í efstu deild:
Lemvig – Kolding................................ 28:26
Ólafur Gústafsson skoraði 4 mörk fyrir
Kolding.
Ribe-Esbjerg – Mors-Thy ................... 25:24
Rúnar Kárason skoraði 6 mörk fyrir
Ribe-Esbjerg og Gunnar Steinn Jónsson 2.
Svíþjóð
Undanúrslit, þriðji leikur:
Kristianstad – Alingsås ...................... 25:29
Ólafur A. Guðmundsson skoraði 7 mörk
fyrir Kristianstad, Arnar Freyr Arnarsson
1 og Teitur Einarsson ekkert.
Alingsås vann, 3:0.
Meistaradeild karla
8-liða úrslit, seinni leikir:
Barcelona – Nantes ............................. 29:26
Aron Pálmarsson skoraði 2 mörk fyrir
Barcelona sem vann 61:51 samanlagt.
Pick Szeged – Vardar Skopje ............ 29:25
Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði 3
mörk fyrir Pick Szeged.
EHF-bikar kvenna
Fyrri úrslitaleikur:
Esbjerg – Siofok .................................. 21:21
Rut Jónsdóttir skoraði ekki fyrir Es-
bjerg.
Sara Björk Gunnarsdóttir og stöll-
ur hennar í Wolfsburg eru þýskir
meistarar í knattspyrnu, þriðja árið
í röð, eftir 1:0-útisigur á Hoffen-
heim í efstu deildinni í gær.
Enn er ein umferð eftir en Wolfs-
burg er með 56 stig á toppnum, sjö
stigum á undan Bayern sem á tvo
leiki eftir en getur þó ekki náð Söru
og stöllum á stigum. Sara var í byrj-
unarliði Wolfsburg í gær og spilaði
allan leikinn.
Sara hefur nú orðið þýskur deild-
ar- og bikarmeistari öll þrjú árin
sín hjá félaginu.
Þýskur meistari
þriðja árið í röð
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Sigursæl Sara Björk Gunnarsdóttir
hefur verið sigursæl hjá Wolfsburg.
Júlían J.K. Jóhannsson fékk silfur á
EM í kraftlyftingum með búnaði
sem fram fer í Plzen Tékklandi.
Hann lyfti 385 kg í hnébeygju, 315
kg í bekkpressu og 385 kg í rétt-
stöðulyftu.
Júlían var því samanlagt með
1.085 kg.. Efstur var Rússinn Mak-
sim Prokhorov sem lyfti samtals
1.120 kg en þeir voru að keppa í
120+ kg flokki karla.
Þá keppti Viktor Samúelsson í
flokki -120 kg í dag einnig en hann
varð fjórði í sínum flokki. Hann
lyfti samtals 967,5 kg.
Júlían hlaut silfrið
á EM í Plzen
Ljósmynd/europowerlift-ing
Hraustur Júlían Jóhann Karl Jó-
hannsson vann silfur á EM.
Schenker-höllin, undanúrslit karla,
þriðji leikur, sunnudaginn 5. maí
2019.
Gangur leiksins: 4:4, 6:6, 7:8, 8:8,
12:10, 17:13, 21:15, 22:17, 25:20,
28:22, 29:24, 30:26, 32:27.
Mörk Hauka: Daníel Þór Ingason 9,
Tjörvi Þorgeirsson 6, Einar Pétur Pét-
ursson 5, Heimir Óli Heimisson 5,
Brynjólfur Snær Brynjólfsson 4, Ás-
geir Örn Hallgrímsson 2, Atli Már
Báruson 1/1.
Varin skot: Grétar Ari Guðjónsson
24/1, Andri Sigmarsson Scheving 1/1.
Utan vallar: 8 mínútur.
Haukar – ÍBV 32:27
Mörk ÍBV: Dagur Arnarsson 5, Krist-
ján Örn Kristjánsson 4, Friðrik Hólm
Jónsson 4, Fannar Þór Friðgeirsson
4/2, Hákon Daði Styrmisson 3/1, Ell-
iði Snær Viðarsson 2, Gabríel Mart-
inez 2, Sigurbergur Sveinsson 1,
Magnús Stefánsson 1, Daníel Örn
Griffin 1.
Varin skot: Björn Viðar Björnsson
9/1, Haukur Jónsson 9.
Utan vallar: 4 mínútur.
Dómarar: Bjarki Bóasson og Gunnar
Óli Gústafsson.
Áhorfendur: 1.600.
Staðan er 2:1 fyrir Hauka.
Leikmenn HK úr Kópavogi bitu í
gær frá sér í rimmunni við Víkinga
í keppni liðanna um sæti í úrvals-
deild karla í handknattleik á næsta
keppnistímabili. Eftir tap í tveimur
fyrstu leikjum liðanna náðu HK-
ingar að vinna Víkinga í Víkinni í
gær með tveggja marka mun,
28:26, eftir að hafa verið með fimm
marka forskot að loknum fyrri hálf-
leik, 16:11. Víkingar reyndu hvað
þeir gatu til þess að jafna metin í
síðari hálfleik en allt kom fyrir
ekki.
Bjarki Finnbogason var marka-
hæstur hjá HK með sjö mörk og
Blær Hinriksson næstur með sex
mörk. Hjá Víkingi var Lúðvík Thor-
berg Arnkelsson markahæstur með
sjö mörk.
Fjórða viðureignin fer fram ann-
að kvöld í Digranesi og verður
flautað til leiks klukkan 19.30.
iben@mbl.is
Morgunblaðið/Hari
Mark Sigurvin Jarl Ármannsson skorar annað af tveimur mörkum sínum
fyrir HK í gær framhjá Baldri Inga Agnarssyni, markverði Víkings.
HK-ingar bitu loks-
ins frá sér í Víkinni
ÁRMÚLA 26 – 108 REYKJAVÍK