Morgunblaðið - 05.05.2019, Blaðsíða 33
Í VESTURBÆNUM
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Íþróttaáhugamenn framtíðarinnar
koma til með að staldra við og velta
þessu KR-liði í körfuknattleiknum
fyrir sér. Íslandsmeistarar sex ár í
röð. Hvað gekk eiginlega á þarna á
milli 2010 og 2020? mun fólk sjálf-
sagt hugsa.
Afrek KR-inga er lygilegt. Liðinu
tókst að bæta sjötta sigrinum við nú
þegar deildin hefur líklega aldrei
verið jafn sterk. KR-ingum tókst að
snúa ÍR-inga niður í oddaleiknum á
laugardagskvöldið og sigra 98:70.
KR sigraði samtals 3:2 í úrslita-
rimmunni um Íslandsmeistaratit-
ilinn eftir að hafa lent 1:2 undir.
Í upphafi tímabilsins var útlit fyr-
ir að sóknarfæri væru fyrir önnur
lið að hrifsa bikarinn úr höndum
KR-inga. Liðið missti Brynjar Þór
Björnsson og Darra Hilmarsson
sem unnið höfðu fimm ár í röð. Þá
fór Kristófer Acox til Frakklands í
atvinnumennsku og Pavel Ermol-
inskij tók sér frí í marga mánuði og
virtist óvissa um tíma varðandi hans
þátttöku. Margt fer hins vegar
öðruvísi en ætlað er. Kristófer sneri
heim, Finnur Atli Magnússon flutti
heim frá Ungverjalandi og bróðir
hans Helgi Már Magnússon flutti
heim frá Bandaríkjunum. Pavel
bættist auk þess við hópinn og í
upphafi árs var KR-liðið orðið afar
sterkt á pappírunum umtöluðu þeg-
ar hinn skotglaði Michele Di Nunno
bættist einnig við.
Landslagið var gerbreytt en
þjálfarinn Ingi Þór Steinþórsson
hafði ekki endalausan tíma til að
finna réttu blönduna. Í 8-liða úrslit-
unum beið vel mannað lið Keflavík-
ur og KR átti ekki heimaleikjarétt-
inn. Þá voru Ingi og leikmenn hans
orðnir tilbúnir og fóru í gegnum
Keflavík og Þór Þorlákshöfn með
aðeins eitt tap á bakinu. Úr-
slitarimman gegn ÍR varð fjörug og
bráðskemmtileg en í tveimur síð-
ustu leikjunum fleyttu leikskiln-
ingur, klókindi, stolt og reynsla KR-
ingum yfir hjallann.
Íþróttasálfræði 103
Oddaleikurinn varð ekki nægilega
spennandi ef frá er talinn fyrsti
leikhlutinn. Því miður var Kevin Ca-
pers þá kominn á sjúkralistann, sem
var blóðtaka fyrir ÍR. KR var
reyndar án Pavels Ermolinskijs í
síðustu þremur leikjunum en réðu
betur við það. Eftir frábæra úr-
slitakeppni varð oddaleikurinn því
visst „anticlimax“ eins og fyrrver-
andi íþróttablaðamaður Morg-
unblaðsins orðaði það við grein-
arhöfund.
Líklega mætti segja að þegar
fylgst var með holningunni á ÍR-
liðinu í oddaleiknum hafi það verið
eins og áfangi í íþróttasálfræði 103.
Áfallið vegna fjarveru Capers kom
daginn fyrir leik og var enn sýni-
legt. Leikmenn ÍR voru daufari í
allri líkamstjáningu en þeir höfðu
verið og baráttan var talsvert minni.
Innst inni höfðu þeir líklega ekki
trú á því að þeir gætu tekið bikarinn
af sigursælum KR-ingum án Kevins
Capers, sem á köflum var hálf-
gerður galdramaður í þessari úr-
slitakeppninni. Eins og hann hafði
sýnt á sér ljótar hliðar um tíma í
vetur var magnað að sjá til hans eft-
ir að Breiðhyltingar siðuðu hann til
og Capers fór að brosa á vellinum.
Hér þarf einnig að taka með í
reikninginn að ÍR lék fimmtán leiki
í úrslitakeppninni eða eins marga
og mögulegt er. Hefur það ekki
gerst áður og þetta leikjaálag hlýtur
að hafa haft áhrif á menn í odda-
leiknum. Skárra væri það nú.
KR-ingar eru kóngarnir í íslensk-
um körfuknattleik og ferilskrá
þeirra er mögnuð. Helgi og Pavel
hafa til dæmis sjö sinnum orðið
meistarar og Pavel náði þeim sjötta
í röð. Jón hefur unnið síðustu fimm
skipti sem hann hefur spilað hér-
lendis.
Sá sjötti í röð hjá KR
KR sigraði ÍR í oddaleiknum sem ekki varð nógu spennandi Ingi Þór fann
réttu blönduna áður en hann féll á tíma ÍR-ingar fremur daufir án Capers
Morgunblaðið/Hari
Bestir Jón Arnór Stefánsson lyftir Íslandsbikarnum eftir sigur KR-liðsins á Íslandsmótinu í körfuknattleik á laugardaginn.
ÍÞRÓTTIR 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. MAÍ 2019
HANDKNATTLEIKUR
Undanúrslit karla, þriðji leikur:
Hleðsluhöllin: Selfoss – Valur (2:0)..... 19.30
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Eimskipsvöllur: Víkingur R. – FH ..... 19.15
Í KVÖLD!
Dominos-deild karla
Oddaleikur um Íslandsmeistaratitilinn:
KR – ÍR ................................................. 98:70
KR vann 3:2 og er Íslandsmeistari.
Frakkland
Nanterre – Gravelines-Dunkerque... 88:82
Haukur Helgi Pálsson lék í 28 mín., fyrir
Nanterre, skoraði 7 stig, tók 2 fráköst og
átti 2 stoðsendingar.
Svíþjóð
Annar úrslitaleikur:
Borås – Södertälje............................... 63:78
Jakob Örn Sigurðarson lék í 20 mín. fyr-
ir Borås, skoraði 8 stig og tók 4 fráköst.
Staðan er 2:0 fyrir Södertälje.
Austurríki
Átta liða úrslit, annar leikur:
Klosterneuburg – Flyers Wels........... 78:77
Dagur Kár Jónsson lék í 33 mín., fyrir
Wels, skoraði 17 stig, tók 1 frákast og átti 4
stoðsendingar.
Staðan er 2:0 fyrir Klosterneuburg.
Þýskaland
Alba Berlín – Würzburg ................... 108:69
Martin Hermannsson lék ekki með Alba
vegna meiðsla.
Úrslitakeppni NBA
Austurdeild, undanúrslit:
Philadelphia – Toronto ...................... 96:101
Staðan er jöfn 2:2.
Vesturdeild, undanúrslit:
Portland – Denver............................ 149:137
Staðan var 2:1 fyrir Portland en fjórði
leikurinn fór fram í nótt. Sjá mbl.is/sport.
Houston – Golden State ................... 126:121
Staðan er 2:1 fyrir Golden State.
KÖRFUBOLTI
Rússland
Rostov – Krasnodar................................. 1:1
Ragnar Sigurðsson var ekki í leikmanna-
hópi Rosov, Björn Bergmann Sigurðarson
kom inn á sem varamaður í uppbótaríma.
Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn fyr-
ir Krasnodar.
CSKA Moskva – Dinamo Moskva .......... 2:2
Hörður Björgvin Magnússon lék allan
leikinn fyrir CSKA, Arnór Sigurðsson sat
allan leikinn á meðal varamanna.
DHL-höllin, fimmti úrslitaleikur karla
laugardaginn 4. maí 2019.
Gangur leiksins: 9:4, 14:7, 20:14,
22:20, 30:20, 35:24, 42:30, 44:32,
50:34, 57:39, 62:49, 71:53, 74:59,
84:61, 91:68, 98:70.
KR: Michele Christopher Di Nunno
29, Julian Boyd 21/10 fráköst, Emil
Barja 12, Jón Arnór Stefánsson 10,
Björn Kristjánsson 9/5 stoðsend-
ingar, Kristófer Acox 8/9 fráköst,
Helgi Magnússon 5, Sigurður Á. Þor-
valdsson 3, Vilhjálmur Jensson 1.
Fráköst: 17 í vörn, 12 í sókn.
KR – ÍR 98:70
ÍR: Hákon Örn Hjálmarsson 18, Sig-
urður Gunnar Þorsteinsson 16/6 frá-
köst, Matthías Orri Sigurðarson 14/4
fráköst/6 stoðsendingar, Sigurkarl
Róbert Jóhannesson 9/7 fráköst,
Sæþór Elmar Kristjánsson 7/7 frá-
köst, Gerald Robinson 4/6 fráköst,
Hjalti Friðriksson 2.
Fráköst: 20 í vörn, 11 í sókn.
Dómarar: Sigmundur Már Herberts-
son, Kristinn Óskarsson, Leifur S.
Garðarsson.
Áhorfendur: 1.200.
KR vann, 3:2. HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
Nú fástS s vinnuföt í