Morgunblaðið - 05.05.2019, Page 34
34 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. MAÍ 2019
Pepsi Max-deild karla
HK – Breiðablik........................................ 2:2
KA – Valur ................................................ 1:0
KR – ÍBV................................................... 3:0
Grindavík – Stjarnan ............................... 1:1
Fylkir – ÍA ................................................ 2:2
Staðan:
Fylkir 2 1 1 0 5:2 4
KR 2 1 1 0 4:1 4
ÍA 2 1 1 0 5:3 4
Breiðablik 2 1 1 0 4:2 4
FH 1 1 0 0 2:0 3
KA 2 1 0 1 2:3 3
Stjarnan 2 0 2 0 2:2 2
Víkingur R. 1 0 1 0 3:3 1
Valur 2 0 1 1 3:4 1
HK 2 0 1 1 2:4 1
Grindavík 2 0 1 1 1:3 1
ÍBV 2 0 0 2 0:6 0
Inkasso-deild karla
Leiknir R. – Magni ................................... 4:1
Þór – Afturelding ..................................... 3:1
Keflavík – Fram ....................................... 2:1
Fjölnir – Haukar ...................................... 2:1
Víkingur Ó. – Grótta ................................ 2:0
Þróttur R. – Njarðvík .............................. 2:3
2. deild karla
ÍR – Leiknir F .......................................... 2:2
Selfoss – Vestri ......................................... 1:2
Víðir – KFG............................................... 2:1
Fjarðabyggð – Tindastóll ........................ 3:0
Kári – Völsungur ...................................... 4:0
Þróttur V. – Dalvík/Reynir...................... 2:3
3. deild karla
Reynir S. – Sindri ..................................... 3:1
KH – Augnablik........................................ 3:3
Skallagrímur – Einherji .......................... 2:1
Álftanes – KF ........................................... 1:1
Kórdrengir – Höttur/Huginn.................. 2:1
Mjólkurbikar kvenna
Þróttur R. – Fjölnir.................................. 3:1
Sindri – Fjarðab/Hött/Leiknir................ 4:0
Úrslitakeppni EM U17 karla
Leikið á Írlandi, C-riðill:
Rússland – Ísland..................................... 2:3
Sjálfsmark 17., Jón Gísli Eyland Gíslason
28., Andri Lucas Guðjohnsen 32..
Ungverjaland – Portúgal......................... 1:0
Ísland mætir Ungverjalandi á morgun.
Þýskaland
Hoffenheim – Wolfsburg ........................ 0:1
Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leik-
inn með Wolfsburg sem er meistari.
Frankfurt – Leverkusen......................... 4:2
Sandra María Jessen lék allan leikinn
með Leverkusen.
Frakkland
Nantes – Dijon.......................................... 3:0
Rúnar Alex Rúnarsson stóð á milli
stanganna hjá Dijon.
Bandaríkin
Utah Royals – Chicago............................ 1:0
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan
leikinn með Utah og lagði upp sigurmarkið.
KNATTSPYRNA
FÓTBOLTINN
Björn Már Ólafsson
Arnar Þór Ingólfsson
Stefán Stefánsson
Einar Sigtryggsson
Víðir Sigurðsson
Leikur Fylkis og ÍA var svo sann-
arlega leikur tveggja hálfleika. Í
fyrri hálfleik var ÍA mun betri að-
ilinn. Liðið stillti upp í skemmti-
legri 3-4-3 uppstillingu og press-
uðu Fylkismenn hátt uppi á
völlinn. Varnarmenn Fylkis áttu
ekki sjö dagana sæla fyrstu mín-
úturnar og gerðu nokkur mistök
sem Skagamenn nýttu sér og
komust í 0:1.
Í síðari hálfleik kom mun sterk-
ara Fylkislið inn á völlinn. Hin
ógnarsterka miðja liðsins tók loks-
ins við sér og hélt boltanum mun
betur en í fyrri hálfleiknum. Miðja
Fylkis er sterkasti liðshlutinn og
verður hún að stíga upp þegar á
reynir í sumar og smita reynslu
sinni yfir á restina af liðinu. Sér-
staklega Sam Hewson steig upp í
síðari hálfleik eftir dapran fyrri
hálfleik og stoðsending hans á Ca-
stillion í 2:1 markinu var af-
skaplega snotur á að horfa.
Sóknarleikur Fylkis var stirður
á löngum köflum. Castillion var
einangraður í fyrri hálfleik og
komst lítið í takt við leikinn.
Raunar stóð til að skipta honun af
velli einmitt þegar hann ákvað að
taka málin í sínar hendur og kom
liðinu í 2:1.
Skagamenn sýndu á sér góðar
og slæmar hliðar. Þegar þeir
pressa stíft og vinna einvígi, þá er
ekkert lið á landinu sem vill mæta
þeim. En eitthvað varð til þess að
þeir misstu dampinn um miðjan
leik í gær. Þeir voru lengi að
vinna sig inn í leikinn aftur en aft-
ur á móti sýndu þeir mikinn kar-
akter að jafna í blálokin. Það er
það jákvæða sem þeir verða að
taka með sér úr þessum leik.
Þolinmæðisverk hjá KR
Eftir að KR komst loks í for-
ystu gegn ÍBV á Meistaravöllum í
gær, þegar 55 mínútur voru liðnar
af leiknum, var aldrei spurning
hvorum megin sigurinn myndi
lenda. KR-ingar fundu taktinn eft-
ir markið og saumuðu að bitlaus-
um Eyjamönnum það sem eftir
lifði leiks. Lokatölur 3:0 og sigur
KR afar sanngjarn.
Leikurinn var mjög bragðdauf-
ur í fyrri hálfleik. Eyjamenn lágu
til baka og beittu skyndisóknum
og voru nokkuð ógnandi í upp-
hlaupum sínum. KR var meira
með knöttinn en leikmenn liðsins
áttu í erfiðleikum með að skapa
sér opin færi.
Rúnar Kristinsson þjálfari KR
sagði í samtali við Morgunblaðið
eftir leik að sínir menn hefðu ver-
ið hægir og fyrirsjáanlegir í fyrri
hálfleik og hægt er að taka undir
það. Í síðari hálfleik var þó allt
annað að sjá liðið, með Óskar Örn
Hauksson fremstan í flokki. Eyja-
menn réðu illa við snerpu hans.
Rafel Veloso í marki Eyja-
manna stóð sig heilt yfir vel í
leiknum og varði glæsilega frá
Ægi Jarli Jónassyni af stuttu færi
í fyrri hálfleik. Mörkin þrjú skrif-
ast ekki á Portúgalann.
ÍBV hefur nú fengið á sig sex
mörk í fyrstu tveimur umferðum
Íslandsmótsins og hefur ekki enn
náð að skora í deildinni, sem er
ekki gæfulegt. Pedro Hipólito
þjálfari liðsins segist þó ekki hafa
áhyggjur, heldur verði hans menn
einungis að halda áfram að leggja
sig fram og að þá fari stigin að
safnast saman.
Hnémeiðsli fyrirliðans Sindra
Snæs Magnússonar eru þó mögu-
lega áhyggjuefni fyrir ÍBV, en
Sindri Snær fer í segulómun í dag
og þá kemur í ljós hvað amar að
honum.
Tvö töpuð stig
„Við komum hingað til að vinna
og lítun á þessi úrslit sem tvö töp-
uð stig, það er alveg á hreinu,“
sagði Guðmundur Steinn Haf-
steinsson, sem skoraði mark
Stjörnunnar í 1:1 jafntefli gegn
Grindavík suður með sjó í gær-
kvöld. Það má alveg taka undir
það, sérstaklega ef fyrri hálfleikur
er bara skoðaður því gríðarlegur
þungi var í sóknarleik Garðbæinga
en það skilaði bara nokkrum fær-
um þegar upp var staðið.
Grindvíkingar voru síður en svo
sannfærandi í þessum leik, færðu
sig of aftarlega í byrjun og réðu
síðan ekki við að fikra sig framar
og ekkert að frétta í sókninni því
það voru nánast engin tengsl milli
varnar og sóknar. Reyndar ótrú-
lega oft sem sendingar fóru á mót-
herja á auðum sjó. Vladan Djo-
gatovic, markmaður þeirra, var
góður, bjargaði mörgun sinnum
vel og Gunnar fyrirliði Þor-
steinsson barðist af krafti á miðj-
unni.
Garðbæingar voru aftur á móti
ákveðnir, vörnin hélt vel, miðjuna
áttu þeir og svo herjuðu sókn-
armenn svo rækilega á vörn
heimamanna enda fengu þeir færi,
eða öllu heldur voru mjög nálægt
því að koma sér í örugg færi.
Sóknin með Gunnar Þorvaldsson
og Guðmund Stein Hafsteinsson
var öflug, það má jafnvel segja að
þeir hafi haldið vörn Grindavíkur
svo mikið við efnið, að lítið hafi
verið um sóknarleik – aðeins að
koma boltanum út úr vörninni.
Er leið á seinni hálfleik dró úr
krafti gestanna. „Við viljum skora
meira heldur en hefur verið að
gerast í síðustu leikjum okkar, bú-
um til að ágætis færi og stöður en
þurfum aðeins að fínpússa þetta.
Það gerist oft í fótbolta þegar
maður er yfir og fer að hugsa um
að verja einhverja stöðu í stað
þess að halda áfram svo við getum
alveg verið smá svekktir í leikslok
fyrir að tapa þessum tveimur stig-
um,“ bætti Guðmundur Steinn við.
KA lokaði á Valsmenn
Íslandsmeistarar Vals eru enn
hikstandi í Pepsi Max-deildinni en
KA-menn lögðu Val á Greifavell-
inum á Akureyri í gær. Leikurinn
var mjög spennandi en víta-
spyrnumark frá Hallgrími Mar
Steingrímssyni skildi að i lokin.
KA vann 1:0 eftir mikla spennu.
Fékk KA sín fyrstu stig en Vals-
menn eru aðeins með eitt stig eft-
ir tvo fyrstu leiki sína.
Það sem einkenndi leikinn var
Meistararnir fóru tóm
ÍA jafnaði í lokin í Árbæ Stórsigur
hjá KR-ingum Töpuð stig í ferð til
Grindavíkur Jafntefli í Kórnum
Barátta Viktor Jónsson, leikmaður ÍA, og
Helgi Valur Daníelsson, Fylkismaður t.h.
Viktor meiddist rétt fyrir leikslok og var
fluttur með sjúkrabíl til athugunnar.
HK – Breiðablik 2:2
1:0 Ásgeir Marteinsson 46.
2:0 Björn Berg Bryde 50.
2:1 Thomas Mikkelsen 89.
2:2 Viktor Örn Margeirsson 90.
MM
Björn Berg Bryde, HK
M
Ásgeir Marteinsson, HK
Hörður Árnason, HK
Ólafur Örn Eyjólfsson, HK
Atli Arnarson, HK
Viktor Örn Margeirsson, Breiðab.
Gunnleifur Gunnleifsson, Breiðab.
Alexander H. Sigurðarson, Breiðab.
Dómari: Vilhjálmur A. Þórarinsson, 7.
KA – Valur 1:0
1:0 Hallgrímur M. Steingrímss. 54. (víti)
M
Haukur Heiðar Hauksson, KA
Torfi Tímóteus Gunnarsson, KA
Callum Williams, KA
Almarr Ormarsson, KA
Ýmir Már Geirsson, KA
Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA
Elfar Árni Aðalsteinsson, KA
Hannes Þór Halldórsson, Val
Sebastian Hedlund, Val
Einar Karl Ingvarsson, Val
Dómari: Þorvaldur Árnason, 7.
KR – ÍBV 3:0
1:0 Pálmi Rafn Pálmason 55.
2. umferðin – mörkin og M-gjöfin
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt