Morgunblaðið - 05.05.2019, Page 35
þéttur leikur KA aftarlega á vell-
inum og var greinilega lagt upp
með það að loka vel á allar að-
gerðir Valsmanna. Tókst KA-
mönnum það með svo miklum
ágætum að Valur fékk varla færi í
leiknum. Valsmenn áttu eitt
þrumuskot á markið sem Aron
Dagur Birnuson varði í horn.
Annars var fátt að frétta í sókn-
araðgerðum Valsmanna þótt þeir
héngju á löngum köflum með
boltann við vítateig KA. Þegar
boltinn svo barst þangað inn þá
voru turnarnir þrír í vörn KA
klárir og aðrir duglegir í að að-
stoða þá.
Það má ekki skilja það sem svo
að KA hafi legið í vörn allan leik-
inn, langt því frá. Þeir áttu þrjú
hættuleg færi í fyrri hálfleik og
voru hreinlega klaufar að skora
ekki. Mark þeirra kom snemma í
síðari hálfleiknum og eftir það
lágu Valsmenn nokkuð á heima-
mönnum. Á lokakaflanum bættu
Valsmenn í sóknarsveit sína og
opnuðust þá gullin færi fyrir KA
að klára leikinn með öðru marki.
Áhorfendur supu hveljur hvað
eftir annað en allt kom fyrir ekki
og aðeins eitt mark fór á reikning
KA-manna.
Baráttan og vinnusemin í liði
KA var til algjörrar fyrirmyndar í
leiknum og menn kláruðu sig
gjörsamlega. Valsmenn voru
hreinlega í vandræðum með að
finna glufur og framherjar þeirra
sáust varla í leiknum.
Blikar fögnuðu stiginu
Stundum er sagt að nágrannas-
lagir lúti öðrum lögmálum en aðr-
ir fótboltaleikir. Fyrirfram hefðu
líklega flestir HK-ingar verið
sáttir við 2:2 jafntefli gegn
Breiðabliki, og að sama skapi
hefðu flestir Blikar talið fyrirfram
slík úrslit óásættanleg.
En það voru Blikar sem fögn-
uðu stiginu innilega í lok leiksins
í Kórnum á laugardaginn. Enda
voru þeir lakari aðilinn stóran
hluta leiksins og lentu 2:0 undir í
byrjun síðari hálfleiks þegar Ás-
geir Marteinsson skoraði með fal-
legu skoti og lagði upp annað
mark HK fyrir miðvörðinn há-
vaxna Björn Berg Bryde sem
skallaði í mark Blika.
Þegar 88 mínútur voru búnar
voru þeir grænklæddu búnir að
eiga eitt umtalsvert marktækifæri
í leiknum og hefðu jafnvel getað
verið meira en tveimur mörkum
undir gegn nýliðunum, grönnum
sínum. En Thomas Mikkelsen og
Viktor Örn Margeirsson náðu að
skora í lokin, Viktor með skalla
eftir fyrirgjöf Kolbeins Þórð-
arsonar á síðustu mínútu uppbót-
artímans, og Blikar sluppu fyrir
horn.
HK-ingar, með þá Ásgeir og
Björn sem bestu menn, sýndu að
þeir geta gert öllum liðum skrá-
veifu í sumar. Þeir voru vel skipu-
lagðir, baráttuglaðir og einbeittir
á laugardaginn en eiga eftir að
naga sig lengi í handarbökin fyrir
að láta þessi tvö stig fjúka út um
gluggann á lokamínútunum.
Að sama skapi á lið Breiðabliks
að geta miklu betur en þetta og á
lítið erindi í toppbaráttu með
svona frammistöðu. En liðið er
vel mannað og sýndi seiglu á ög-
urstundu. „Við sýndum þó alla-
vega ákveðinn karakter í lokin,“
sagði bjargvætturinn Viktor Örn
og það er mikið til í því.
mhentir suður
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Ákveðinn Daníel Hafsteinsson, leik-
maður KA, sækir að Hannesi Þór
Halldórssyni, markverði Vals.
Morgunblaðið/Hari
ÍÞRÓTTIR 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. MAÍ 2019
England
Cardiff – Crystal Palace ......................... 2:3
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn
fyrir Cardiff.
Bournemouth – Tottenham..................... 1:0
West Ham – Southampton ...................... 3:0
Wolves – Fulham...................................... 1:0
Newcastle – Liverpool ............................. 2:3
Chelsea – Watford.................................... 3:0
Huddersfield – Manch. Utd..................... 1:1
Arsenal – Brighton................................... 1:1
Staða efstu liða:
Liverpool 37 29 7 1 87:22 94
Manch.City 36 30 2 4 90:22 92
Chelsea 37 21 8 8 63:39 71
Tottenham 37 23 1 13 65:37 70
Arsenal 37 20 7 10 70:50 67
Manch.Utd 37 19 9 9 65:52 66
B-deild:
Reading – Birmingham .......................... 0:0
Jón Daði Böðvarsson lék ekki með Read-
ing vegna meiðsla.
Aston Villa – Norwich............................. 1:2
Birkir Bjarnason. kom inn á sem vara-
maður hjá Aston Villa á 80. mín.
Brentford – Preston................................ 3:0
Patrik Sigurður Gunnarsson var vara-
markvörður Brentford.
Lokastaða efstu liða:
Norwich 46 27 13 6 93:57 94
Sheffield Utd 46 26 11 9 78:41 89
Leeds 46 25 8 13 73:50 83
WBA 46 23 11 12 87:62 80
Aston Villa 46 20 16 10 82:61 76
Derby 46 20 14 12 69:54 74
Middlesbro 46 20 13 13 49:41 73
Ítalía
Udinese – Inter Mílanó ........................... 0:0
Emil Hallfreðsson kom inn á sem vara-
maður hjá Udinese á 73. mínútu.
Sviss
Grasshoppers – St. Gallen ...................... 0:1
Rúnar Már Sigurjónsson var allan leik-
inn varamaður hjá Grasshoppers.
Úkraína
Desna – Chornomorets Odessa.............. 2:4
Árni Vilhjálmsson lék allan leikinn fyrir
Odessa og skoraði tvö af mörkum liðsins.
Grikkland
Larissa – Olympiacos .............................. 0:3
Ögmundur Kristinsson var allan leikinn í
marki Larissa.
Giannina – PAOK .................................... 0:2
Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn
fyrir PAOK.
Danmörk
Köbenhavn – Bröndby ............................ 3:2
Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn
fyrir Bröndby.
Svíþjóð
Falkenberg – Malmö ............................... 1:2
Arnór Ingvi Traustason lék allan leikinn
fyrir Malmö og lagði upp fyrir markið.
AIK – Eskilstuna...................................... 2:1
Kolbeinn Sigþórsson kom inn á sem
varamaður hjá AIK á 65. mínútu.
KNATTSPYRNA
Árni Vilhjálmsson skoraði tvö af
fjórum mörkum Chornomorets
Odessa þegar liðið vann Desna, 4:2 í
efstu deild úkraínsku knattspyrnunnar
í gær. Þrátt fyrir sigurinn er Chor-
nomorets Odessa í neðsta sæti í fall-
riðli úkraínsku deildarinnar.
Kvennalið Aftureldingar í hand-
knattleik, sem leikur í úrvalsdeild á
næstu leiktíð, hefur samið við Roberta
Ivanauskaitë, 22 ára stórskyttu og
landsliðsmann frá Litháen um að leika
með liðinu næstu tvö árin.
Karlalið Aftureldingar hefur klófest
Karolis Stropus handknattleiksmann
frá Litháen frá og með næsta keppn-
istímabili. Stropus þekkir vel til hér á
landi eftir að hafa leikið með Víkingi
og síðar Akureyri frá 2015 til 2018.
Einnig hefur línumaðurinn Sveinn
Jose Rivera ákveðið að söðla um og
ganga til liðs við Aftureldingu eftir
eins árs veru hjá Gróttu.
Emil Hallfreðsson lék sinn fyrsta
knattspyrnuleik í sjö mánuði þegar
hann kom inn á sem varamaður 17
mínútum fyrir leikslok þegar lið Ud-
inese gerði markalaust jafntefli við
Inter í ítölsku A-deildinni á laug-
ardagskvöld. Emil hefur jafnað sig af
erfiðum meiðslum.
Aron Pálmarsson og félagar í
Barcelona eru komnir í undanúrslit
Meistaradeildar Evrópu í handknatt-
leik. Þeir unnu Nantes öðru sinni á
laugardag. Stefán Rafn Sigurmanns-
son og samherjar í ungverska liðinu
Pick Szeged eru hinsvegar úr leik eftir
aðeins fjögurra marka sigur á heima-
velli gegn Vardar í gær. Vardar vann
fyrri leik með átta marka mun.
Eitt
ogannað
2:0 Óskar Örn Hauksson 66.
3:0 Björgvin Stefánsson 87.
MM
Óskar Örn Hauksson, KR
M
Pálmi Rafn Pálmason, KR
Ægir Jarl Jónasson, KR
Pablo Punyed, KR
Atli Sigurjónsson, KR
Kennie Chopart, KR
Rafael Veloso, ÍBV
Víðir Þorvarðarson, ÍBV
Evariste Ngolok, ÍBV
Dómari: Pétur Guðmundsson 8.
Grindavík – Stjarnan 1:1
0:1 Guðmundur Steinn Hafsteinsson 28.
(víti)
1:1 Patrick N’Koyi 64.
M
Vladan Djogagovic, Grindavík
Gunnar Þorsteinsson, Grindavík
Guðjón Baldvinsson, Stjörnunni
Guðm. Steinn Hafsteinsson, Stjörn.
Eyjólfur Héðinsson, Stjörnunni
Martin Rauschenberg, Stjörnunni
Dómari: Helgi Mikael Jónasson, 6.
Fylkir – ÍA 2:2
0:1 Hörður Ingi Gunnarsson 13.
1:1 Sjálfsmark 52.
2:1 Geoffrey Castillion 71.
2:2 Óttar B. Guðmundsson 90.
M
Sam Hewson, Fylki
Helgi Valur Daníelsson, Fylki
Ragnar Bragi Sveinsson, Fylki
Óttar Bjarni Guðmundsson, ÍA
Stefán Teitur Þórðarson, ÍA
Marcus Johansson, ÍA
Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmunds-
son, 6. Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
silestone.com
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri
bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone.
Blettaþolið Sýruþolið
Högg- og
rispuþolið
Kvarts steinn
í eldhúsið