Morgunblaðið - 05.05.2019, Blaðsíða 36
Útskriftarnemar í BA-námi við LHÍ opnuðu s
Morgunblaðið/Hari
AF LISTUM
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Listamenn þurfa oft að einangra sig
eða finna næði með nægum tíma til
að ná sambandi við kjarnann í sköp-
unarverki sínu. Þá reynist oft vel að
leita á nýjar slóðir og fá aðgang að
vinnustofu við hæfi. Fagfélög lista-
manna hér á landi sem annars staðar
halda utan um og úthluta gesta-
vinnustofum og annast einnig tengsl
við erlendar miðstöðvar og setur
sem bjóða listamönnum að starfa í
ákjósanlegu umhverfi. En listamenn
þurfa mismikla aðstöðu og tæki til að
sinna sinni list. Meðan rithöfundi
getur nægt borð á góðum stað að
skrifa við þarf grafíklistamaður að-
gang að vinnustofu með þeim tækj-
um og tólum sem hver miðill graf-
íklistarinnar krefst, grafíkpressur
sem annað.
Í liðnum mánuði starfaði ég sjálfur
að ljósmyndaverkefni í Rómaborg og
hélt til og vann í Circolo Scandinavo,
einstakri aðstöðu norrænna lista-
manna sem hefur verið starfrækt
þar í nær 160 ár. Á þeim tíma fékk ég
líka tækifæri til að leggja í flakk og
aka norður í hjarta hins rómaða
Toskana-héraðs, að skoða einstaka
aðstöðu sem grafíklistamönnum hef-
ur verið búin þar í heillandi kastala í
litlu þorpi efst á hæð á grænasta
svæði Ítalíu. Grafíkverkstæðið nefn-
ist TwoCentsPress, er stórt og vel
búið fyrir vinnu í ýmsum greinum
grafíklistarinnar, og því fylgir nota-
leg íbúð fyrir allt að fjóra gesti með
einstöku útsýni og úrvali fallegra
listaverka á veggjum.
Margra ára endurgerð
TwoCentsPress er verkefni
hjónanna Francos Marinai, sem er
myndlistarmaður og prentmeistari,
og Önnu Kristínar Þórsdóttur arki-
tekts. Þau hafa verið búsett í New
York í áratugi en Franco er frá
kunnustu borg héraðsins, Flórens,
og fyrir aldarfjórðungi eignuðust
þau hluta af gamla kastalakjarn-
anum í virkisþorpinu Serrazzano.
Þorpið stendur í rúmlega fimm
hundruð metra hæð, umlukt græn-
um og fögrum skógi; ólífutré eru í
hlíðunum neðan þorpsins en enn
neðar eru blómlegar vínekrur. Serr-
azzano er í Málmæðunum svoköll-
uðu, þar sem eru ríkulegar minjar
um búsetu Etrúra og Rómverja síð-
ar; það er hitaveita á svæðinu og
njóta þorpin góðs af því og eru bygg-
ingar TwoCentsPress hitaðar með
þeim hætti.
Elsti hluti þorpsins er að grunni
til um þúsund ára gamall en ekki
hafði verið búið í nokkra áratugi í
þeim hluta virkiskjarnans sem
Franco og Anna Kristín keyptu. Við
tók margra ára vinna við að hreinsa,
breyta og bæta; þau settu nýtt þak á
sinn hluta og til urðu ný rými og þau
stefndu strax að því að koma upp
svona vandaðri vinnustofu fyrir
grafíklistamenn, en Franco hefur
löngum einbeitt sér að sköpun í þeim
miðli. Grafíkvinnustofan er í um níu-
tíu fermetrum þar sem áður var
hesthús, undir fallegu bogalaga
hlöðnu þaki, og þar fyrir ofan er
íbúðaraðstaða gestanna, tvö stór
svefnherbergi og stórt eldhús. Út-
sýnið þaðan er stórkostlegt yfir hér-
aðið, og allt til hafs um 40 km frá,
þar sem glittir í eyjuna Elbu.
Einstakar aðstæður
Þegar við komum að skoða aðstöð-
una var Anna Kristín nýflogin til
New York, þar sem hún starfrækir
arkitektúrstofu sína, en Franco varð
eftir í Toskana, við að reka vinnu-
stofuna og jafnframt vinna við um-
breytingu annars glæsilegs hús-
næðis sem þau eiga í kastalanum,
um 120 fermetra, þar sem um aldir
var pressuð ólífuolía þorpsins. Þar
geta listamenn til að mynda unnið að
letterpress-prentun í verklegri
prentvél.
Þar sem Franco sýnir aðstöðuna
segir hann að hugmyndin að baki
TwoCentsPress sé að þar geti graf-
íklistamenn komið og unnið í næði
að list sinni í einstökum aðstæðum, á
góðri vinnustofu og stórkostlegu
umhverfi í þessu forna þorpi í hjarta
Toskana. Ef þeir vilja er hægt að
halda í allra handa skoðanaferðir á
merkar söguslóðir, ganga um í nátt-
úrunni eða heimsækja borgir á borð
við Písa, Siena eða Flórens.
Í takti við umhverfið
„Það geta fjórir listamenn dvalið í
íbúðinni hverju sinni en ef fleiri vilja
koma saman höfum við líka aðgang
Griðastaður grafíklistamanna
Morgunblaðið/Einar Falur
Tignarlegt Morgunsólin baðar Toskanahérað þar sem horft er til vesturs yfir landið út um glugga á íbúð gestalista-
manna TwoCentsPress. Í fjarska glittir í hafið og þar lónar eyjan Elba. Næstu borgir eru Siena, Písa og Flórens.
Prentmeistarinn Franco Marinai í grafíkvinnustofunni. Hann hefur byggt
upp og mótað aðstöðuna, ásamt eiginkonu sinni, Önnu Kristínu Þórsdóttur.
Grafíkpressa Vinnustofan er í
formfögru fyrrverandi gripahúsi.
Í fornum kastala í hjarta Toskana
reka Franco Marinai og Anna Kristín
Þórsdóttir aðstöðu fyrir listamenn
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. MAÍ 2019
PFAFF • Grensásvegi 13 • 108 Reykjavík • Sími: 414 0400 • www.pfaff.is
– þegar gæði og ending skipta máli.
síma- og tölvuh
eyrna
rtólSENNHEISE
R