Morgunblaðið - 05.05.2019, Side 37
»Þrjár sýningar út-
skriftarnema við
Listaháskóla Íslands
voru opnaðar um
helgina. Útskriftar-
sýning BA-nema í
myndlist, hönnun og
arkitektúr var opnuð á
Kjarvalsstöðum á laug-
ardag og ber hún yfir-
skriftina Þetta hefur
aldrei sést áður.
sýningu á lokaverkefnum sínum á Kjarvalsstöðum í fyrradag
að íbúðinni við hliðina hér innan múr-
anna,“ segir Franco og bætir við að
samkomulag eigendanna að þessum
forna byggingakjarna á hæðinni sé
gott. Bendir svo brosandi á byggingu
í kjarnanum miðjum sem er varla
tveggja metra breið við dyrnar en
víkkar aðeins út, segir að þetta hafi
verið fangelsið á miðöldum og það sé
til sölu. Hef ég áhuga?
„Ég miða við að fólk dvelji hér í
viku hið minnsta,“ segir hann; „það
getur hentað fjölskyldum listamanna,
meðan þeir vinna geta hinir tekið það
rólega og notið þessa stórkostlega
umhverfis. Ég hef tekið eftir því að
það tekur fólk sem kemur oft nokkra
daga að koma sér hreinlega í takt við
lífið hér, að slaka á og anda hægar.
Mörgum finnst þetta eins og að koma
á aðra plánetu, einu hljóðin eru fugla-
söngur, þytur í laufi og kannski fóta-
tak nágrannanna á hellulögðum göt-
unum. En svo aðlagast fólk og allt
fyrir utan þennan heim hættir að
skipta máli – fólk gleymir Trump og
öllum hinum ósköpunum sem flæða
yfir okkur í stórborgunum. Hér
skipta bara máli landið, tíminn og
augnablikin. Og nágrannarnir
spyrja kannski hvort maður hafi
heyrt í úlfum í nótt; þeir eru hér í
skógunum í hjarta Toskana.“
Vel búið verkstæði
Þegar fallegt grafíkverkstæðið er
skoðað segist Franco vera þar með
alls kyns tæki og tól, þar er myrkra-
herbergi til að vinna ljósmyndafilm-
ur sem prentað er eftir, öll aðstaða
fyrir ætingar, koparstungur og góð
pressa. „Gestum er velkomið að nota
alla þessa aðstöðu en ef þeir þurfa
sérstaklega á tæknilegri aðstoð að
halda, til dæmis í einhverjum þátt-
um grafíkur sem þeir eru ekki með á
hreinu, þá er ég til staðar og get að-
stoðað,“ segir hann og bætir við að
það séu svo margar spennandi leiðir
og aðferðir sem hægt er að beita.
„Þá er hér mikið úrval bóka um
grafík, um tækni, sögu miðlanna og
ólíka listamenn, sem gestir hér geta
sótt í og og lært af.
Einnig er hér mikið úrval af alls
konar pappír að prenta á, svo lista-
menn þurfa ekki að hafa fyrir því að
flytja hann með sér en það kunna
margir vel að meta.“
Friðaðar byggingar
Það er heillandi að rölta um þorp-
ið Serrazzano þar sem um 350
manns búa í dag. Franco segir
fyrstu heimildir um það vera frá um
1100 en fullvíst er talið að það sé
mun eldra enda héraðið afar búsæld-
arlegt og fornar minjar hafa fundist
víða. Vitað er að stjórnendur þorps-
ins bjuggu lengi í þeim hluta virkis-
kjarnans þar sem Franco og Anna
Kristín hafa komið sér fyrir; í stofu-
loftum eru freskumálverk frá mið-
öldum og skjaldarmerki fjölskyld-
unnar sem fór þá með stjórnina. „Nú
er þetta orðið friðuð bygging, eftir
að við tókum hana svona vel í gegn,“
segir Franco og er skiljanlega stolt-
ur af vel lukkaðri endurbyggingunni.
Það kvöldar og við göngum grjóti
lagðan stíg milli blómgaðra trjáa,
stíg sem fornar heimildir segja frá
tímum Langbarða, niður í ólífulund
þeirra hjóna. Þar eru 110 tré sem
gefa úrvalsolíu og þaklaust en form-
fagurt bóndabýi frá miðöldum.
Franco segir næsta verkefni að gera
það upp – og halda áfram að taka á
móti gestum í vinnustofuna Two-
CentsPress (twocentspress.com).
Turn Kirkjuturn rís yfir inngang-
inum að grafíkvinnustofunni.
Afrakstur Prent og filmur að
prenta eftir á vinnustofunni.
Kastali Íbúðir Francos og Önnu Kristínar og gestalistamanna eru innan
fornra veggjanna sem að grunni til eru um þúsund ára gamlir.
Notaleg Íbúðin sem gestum verkstæðisins stendur til boða er hin notalegasta
og prýdd fjölbreytilegum listaverkum, meðal annars eftir fyrrverandi gesti.
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. MAÍ 2019
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottum fatnaði.
Fatnaður fyrir fagfólk