Morgunblaðið - 05.05.2019, Page 40
Kvennakór Suðurnesja heldur tón-
leika annað kvöld kl. 20 í Stapa í
Hljómahöllinni í Njarðvík og bera
þeir yfirskriftina Dívur. Kórinn mun,
ásamt hljómsveit, heiðra söng-
konur og verða sungin lög sem
þekktar söngdívur hafa gert vinsæl.
Hera Björk mun syngja með kórn-
um og verða m.a. flutt lög Tinu
Turner, Adele og fleiri söngdrottn-
inga. Stjórnandi er Dagný Þórunn
Jónsdóttir.
Lög sem söngdívur
hafa gert vinsæl
MÁNUDAGUR 6. MAÍ 126. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Íslandsmeistarar Vals urðu að bíta í
það súra epli að tapa fyrir KA, 1:0, í
annarri umferð Pepsi Max-
deildarinnar í knattspyrnu í gær.
Meistararnir hafa þar með aðeins
hlotið eitt stig í tveimur fyrstu
leikjum deildarinnar. KR-ingar tóku
Eyjamenn í karphúsið í Vestur-
bænum, 3:0. Allt um aðra umferð
Pepsi Max-deildarinnar. »34-35
Meistararnir byrja
mótið með lágflugi
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Haukar eru komnir með yfirhöndina
í viðureigninni við ÍBV í undan-
úrslitum Íslandsmóts karla í hand-
knattleik eftir sigur í þriðju viður-
eign liðanna í Hafnarfirði í gær,
32:27. Haukar hafa tvo vinninga en
ÍBV einn. Næsta viðureign liðanna
verður í Vestmannaeyjum á mið-
vikudaginn. Grétar Ari Guðjónsson,
markvörður Hauka, reyndist Eyja-
mönnum óþægur
ljár í þúfu, ekki
síst í síðari
hálfleik.
Alls varði
hann 24
skot, sem
er nærri
50% hlutfalls-
markvarsla. »32
Grétar fór á kostum og
Haukar komnir yfir
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Alexandrea Rán Guðnýjardóttir
byrjaði að æfa kraftlyftingar í jan-
úar 2018 og er nú á leið á heims-
meistaramót í Tókýó í maí næst-
komandi. Hún setti sitt fyrsta
Íslandsmet í bekkpressu eftir að
hafa æft kraftlyftingar í einungis
átta mánuði.
Nú á Alexandrea Íslandsmetið í
bekkpressu í klassískum kraftlyft-
ingum, en hún tvíbætti það í febrúar
síðastliðnum.
„Ég var ekki mikið í íþróttum og
hafði engan áhuga á því að hreyfa
mig,“ segir Alexandrea og bætir við
að hún hafi fyrst byrjað í fjarþjálfun
í janúar 2017 til þess að grennast.
„Það var upphaflega ástæðan en
það er ekki einu sinni hluti af þessu
lengur.“
Eftir að hún byrjaði að æfa kraft-
lyftingar ári seinna tók hún eftir því
að hún var áberandi góð í bekk-
pressu. Síðan greindist hún með
gigt sem gerði það að verkum að
hún gat ekki tekið hnébeygju né
réttstöðulyftu. „Svo ég ákvað að ein-
beita mér að bekknum,“ segir hún.
Á bikarmóti í kraftlyftingum í
febrúar síðastliðnum lyfti hún 70
kílóum í -57 „junior“-flokki í klass-
ískri bekkpressu og setti þar með
Íslandsmet. Ásamt því öðlaðist hún
rétt til þátttöku á heimsmeistara-
móti í kraftlyftingum sem fram fer í
Tókýó hinn 14. maí.
Stórt stökk að fara á
heimsmeistaramót
„Ég er mjög spennt – ég er að
fara hinum megin á hnöttinn og
þetta er einstakt tækifæri. En á
sama tíma er ég smá feimin. Ég er
svo ný í þessu og svo er ég allt í einu
á leiðinni á heimsmeistaramót.
Þetta er svo stórt stökk að ég er
ennþá að sannfæra sjálfa mig um að
ég eigi heima þarna. Undirbúning-
urinn gengur samt sem áður mjög
vel og æfingarnar vonum framar,
þetta verður mögnuð lífsreynsla,“
segir Alexandrea.
Hún segir að kraftlyftingarnar
hafi jákvæð áhrif á alla þætti heils-
unnar, stuðli að vellíðan og styrki
persónuna. Þar að auki auðveldi
þær henni að takast á við áskoranir.
„Það er eitthvað við það að lyfta
þungum lóðum sem lætur manni
líða eins og maður geti allt,“ segir
hún.
Eiga stelpur erfiðara með að
byrja að æfa kraftlyftingar en
strákar?
Þótt við séum komin ótrúlega
langt sem samfélag er alltaf þessi
undirliggjandi hræðsla hjá stelpum
um að ef þær lyfta þungum lóðum
verði þær of stórar. En ég er 55 kg
– ég er gangandi ímynd þess að það
er ekki tilfellið, ekki einu sinni pínu-
lítið,“ segir Alexandrea í léttum tón.
Ljósmynd/Theódór Kristinn Þórðarson
Æfing Alexandrea er á leið á heimsmeistaramót í kraftlyftingum í Tókýó í
maí en hún er tiltölulega ný í greininni. Hún tvíbætti Íslandsmet í febrúar.
„Allt í einu á leiðinni
á heimsmeistaramót“
Alexandrea hefur æft kraftlyftingar í eitt og hálft ár og
heldur brátt á heimsmeistaramót Tvíbætti Íslandsmet
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
Langar þig í ný
gleraugu?
Það fyrsta sem Marilyn Monroe
leikkona tók eftir þegar hún hitti
Arthur Miller rithöfund,
voru gleraugun!