Tímarit Máls og menningar - 01.11.2005, Blaðsíða 4
Frá ritstjóra
Skáldskapurinn í síðasta hefti fór vel í lesendur, fyrir utan eina villu í verð-
launaörsögu sem skáldinu féll að vonum illa. í sögu Kristínar Arngrímsdóttur,
„Rauða herbergið" var orðið „lítið“ sett inn fyrir „lúið“ í annarri línu. Upphaf-
ið á sögunni er rétt svona: „Það hriktir í hjörunum þegar hurðin opnast inn í
lítið rauðmálað herbergi. Þar inni er lúið trérúm og við hliðina á því er borð
með náttlampa.“ Vinsamlegast færið leiðréttinguna inn í heftið ykkar.
Flest falleg orð féllu um ljóðin eftir yngsta skáld heftisins, Kristínu Svövu
Tómasdóttur. Skáldin Vilborg Dagbjartsdóttir, sem sjálf átti rómuð ljóð í heft-
inu, og Olga Guðrún Arnadóttir sögðust beinlínis hafa tekið andköf af gleði
við að lesa ljóðið „Mamma guð“. Saga Sjóns vakti líka sérstakan fögnuð.
Mest viðbrögð fengu þó grein Jóns Karls Helgasonar um undarleg örlög
beina Jóns Arasonar og sona hans og hörð árás Kristjáns Jóhanns Jónssonar á
frægan pistil Þórbergs Þórðarsonar, Einum kennt öðrum bent. I einu bréfinu
sem ritstjóra barst kemur fram að Hornstrendingabók sú sem Þórbergur tekur
svo föstum tökum í grein sinni var fyrsta verk Þórleifs Bjarnasonar sem þá var
ungur maður. Hann gafst þó ekki upp þótt annar frægasti höfundur landsins
færi svona með hann heldur hélt áfram að skrifa. Og Hornstrendingabók lifir
og heitir einfaldlega „bókin“ í munni ótal þátttakenda í vinsælum Hornstranda-
ferðum.
Paul Auster líkaði vel að sjá grein Davíðs A. Stefánssonar um sig þegar hann
fékk heftið í hendur á Bókmenntahátíð í Reykjavík og harmaði að geta ekki
lesið hana. Hann var afskaplega þægilegur maður þótt heimsfrægur sé og þau
Margaret Atwood sönnuðu bæði þá gömu kenningu að því frægara sem fólk er
í alvöru því auðveldara er það í umgengni.
Heimasíða Tímarits Máls og menningar, www.tmm.is, var opnuð fimmtu-
daginn 8. september, algerlega hávaðalaust. Sífellt fer fjölgandi bréfum sem
Tímaritinu berast á póstfangi vefsíðunnar, tmm@tmm.is, en auðvitað tekur
tíma fyrir svona síðu að spyrjast út. Eina örugga sönnun hef ég fengið fyrir því
að hún er lesin. Eg birti ansi skemmtilegt bréf sem mér barst - með leyfi bréf-
ritara - og hafði yfirskriftina „Hamingjusamur áskrifandi hugsar upphátt“. í
bréfinu skáldaði bréfritari spennandi umhverfi utan um sig og hugleiðingar
sínar um Tímaritið, en gáði ekki að því að raunverulegir nágrannar gætu tekið
umhverfislýsinguna til sín. Það gerðu þeir og kvörtuðu, og bréfinu var umsvifa-
laust kippt út af síðunni. Það er nefnilega alveg eins auðvelt að taka efni af
vefnum og að setja efni inn á hann. A heimasíðunni eru birtar ýmsar menning-
arfréttir og pistlar auk kynningar á TMM. Eg hvet ykkur til að skrifa um hvað-
eina menningarkyns og leyfa mér að birta í bréfadálkinum eða sem pistil.
Ekki eru allir ánægðir með Tímaritið sem ekki er von. Bergþóra hringdi og
sagði því upp og bar því við að þetta væri hundómerkilegt rit sem aldrei hefði
borið sitt barr eftir breytingarnar á því um árið. Þetta breytir ekki því að Tíma-
ritið gengur alveg þokkalega og verður gefið út á árinu 2006 eins og vant er.
Silja Aðalsteinsdóttir
2
TMM 2005 • 4