Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2005, Page 16

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2005, Page 16
Seinna uppgötvaði ég að þeir voru náttúrulega innblásnir af súrreal- istunum. Sigfús þekkti þá t.d. vel og hans fræga grein „Til varnar skáld- skapnum“ er unnin út frá sjónarhóli menntaðs síðsúrrealista, manns sem hefur lært allt af súrrealismanum sem hægt var að læra. Maður sogaði þessa skáldskaparfræði í sig. Svo var kominn tími til að taka þetta eitthvað lengra. Því að þetta var ekki nóg. íslenska nútíma- ljóðið var orðið settlegt á þessum tíma. Hannes Sigfússon gengur lengst í Imbrudögum í því að leysa veruleikann algerlega upp. Ég varð fyrir mestum áhrifum frá honum.“ Það er áhugavert að veltafyrir sér hvernigþúferð aðþessu, að taka eitt skrefí viðbót við módernismann. Einn þeirra áhrifavalda sem þú nefnir stundum er Dagur Sigurðarson sem fékkst við svipað verkefni. Hans aðferð var að afhelga tungumálið, klæða það úr sparifötunum. En það er ekki þín aðferð. Þið Dagur eigið lítið sameiginlegt efvið horfum á Ijóðmál eða yrkingaraðferðir. Þú beitir áfram vopnum módernistanna, flóknum myndhverfingum og stílbrögðum. „Vissulega. En á sama tíma var ég undir heilmiklum áhrifum frá því verkefni Dags að afhelga ljóðið. Ég las t.d. ljóð á pönkkonsertum. Mér fannst ég líka vera að segja sömu hlutina og Dagur, ég var að tala um sætu stelpuna og tunglið alveg eins og hann. En svo er kynslóð þarna á milli - listaskáldin vondu - og þau höfðu auðvitað áhrif á mann. Það var einhver lífsgleði og leikur svo sýnilegur þar og stór hluti af því sem ég hef verið að gera er að leika mér.“ Þúflytur Ijóð á pönktónleikum og tengist pönkinu sterkt. Samt er Ijóst þegar maður les Ijóðin þín að þú kannt miklu betur á Ijóðmálið en margir pönkarar á hljóðfœri. Viðhorfið sem Einar Örn hefur verið gerður ábyrg- urfyrir - „það er ekki hvað þú getur heldur það sem þú gerir sem skiptir máli“ - er hvergi að sjá þarna. Þetta eru Ijóð manns sem veitfullkomlega hvað hann er að gera. „Ég tókþetta mjög alvarlega. Fyrir mér var uppreisnin ekki bara falin í að öskra, þá hefði ég bara gert það. Og maður gerði það svosem á milli ljóða og í lyftunni í Asparfellinu. Ég veit ekki af hverju en ég hef alltaf verið vandvirkur og vinnusam- ur. Ég uppgötvaði snemma að það þyrfti ofboðslega nákvæmni bæði til að koma til skila þeim kenndum sem ég var að glíma við og til þess að ljóðið virkaði. Það þarf mikla hnitmiðun í hinu súrrealíska ljóði, í mynd- hverfingum og hinum óvæntu uppákomum." Þú fórst aldrei í háskóla en ert feikilega vel sjálfmenntaður. Ég man að það kom mér mest á óvart þegar við töluðum fyrst saman, maður var búinn að lifa með verkum þínum og þar var allt á skjön eða á jaðrinum, 14 TMM 2005 • 4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.