Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2005, Side 109

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2005, Side 109
Bókmenntir gesti ber reyndar að garði en þeir hverfa fljótt úr sögunni. Ljóst er að Rafael styttir líf sumra, aðrir gufa upp og lesendur (sem sjá atburðina frá sjónarhorni Billiear) grunar að þeir hafi kannski líka verið skotnir. Athyglisvert er að gest- irnir eru oftar en ekki fulltrúar einhvers konar valds. Sá fyrsti er hermaður eins og Rafael. Hann hverfur. Sama er að segja um þriðja gestinn, nunnu sem er fulltrúi geistlegs valds og kallar sig friðarsinna. Hún hverfur líka sporlaust. Rafael margsver reyndar að hann hafi ekki drepið hana en ekkert fer á milli mála hvernig fer um gestina í miðjunni sem eru frá skattayfirvöldum, fulltrú- ar peningavaldsins. Rafael býður þeim inn og skýtur þá svo. Valdið sem þeir tengjast verður að engu andspænis valdi byssunnar sem er sjálfgefið í heimi stríðsins. Rafael réttlætir drápið á mönnunum frá skattinum á þennan veg: „Mig langaði ekki til að drepa þessa menn,“ sagði hann og horfði á pensilinn teygja úr rauða litnum á blaðinu með rólegri ýtni. „Það er stríð og ég neyðist til að taka þátt í því. Að sjálfsögðu hefðu þeir drepið mig hefði ég ekki drepið þá og hvað hefði þá orðið um stúlkuna mína?“ (94) „Að sjálfsögðu" segir hann. Og svo bendir hann Billie óbeint á valdalausa stöðu hennar, minnir á að hún sé háð honum og lætur eins og hann heyri ekki þegar hún svarar með orðunum: „Ég er kannski stúlka en ég er ekki þín.“ Rafael held- ur einfaldlega áfram að útlista hversu góður hugur hafi búið að baki verknað- inum og aðferðinni, hann hafi boðið mönnunum inn og lokað svo að Billie og dýrin „þyrftu ekki“ að horfa upp á blóðsúthellingar. Og þetta hafi hann bein- línis orðið að gera til að geta haldið áfram að gæta Billiear. Þvílíkt gæðablóð. Hugrenningatengsl kvikna auðveldlega við ýmsa aðra stríðsmenn sem tala eins og voðaverk séu í raun framin af manngæsku og umhyggjusemi. Sagan vekur spurningar um alls konar vald, m.a. vald fólks, ekki síst barna, á eigin lífi, og hvort fólk ræður eigin hlutverki sjálft eða lýtur vilja annarra. Billie er t.d. ekki sátt við að Rafael kalli hana litla stúlku í byrjun, hún vill frekar láta kalla sig litla konu í eitt skiptið, stóra stelpu í annað (19-20, 28). Hún reynir að skilgreina sig sjálf en kemst samt ekki hjá því að aðrir skipi henni í hlutverk, t.d. hefur mamma hennar þjálfað hana í „að tala frúarlega við ókunnuga" (12), í hænsnakofanum er hún viss um að hænunum þyki hún vera kelling, sam- kvæmt Rafael er hún prinsessa nokkrum línum seinna (93). Víðari skírskotun hlutverkaleiksins birtist m.a. í talinu um Abraham sem strengjabrúðu og ekki síður barbíleiknum sem bókinni lýkur á. En það eru ekki bara stórar spurningar sem tengjast stríði og valdi sem kvikna við lestur bókarinnar heldur ekki síður spurningar um hversdagsleik- ann. Billie virðist ekki láta innrásina trufla sig við að íhuga hversdagsleg smá- atriði eins og hvernig er að hanga í þakrennu, og hún ákveður hvernig hún ætli að segja söguna af því ef hún verður spurð (83, 90). En kannski er það einmitt út af stríðinu sem hún finnur sig knúna til að íhuga svona hversdagslega hluti - kannski reynir hún að leggja veruleikann á minnið af þeirri ástæðu að þrátt fyrir ungan aldur veit hún af eigin raun að tilveran getur breyst eins og hendi sé veifað. Foreldrarnir eru horfnir og fólkið á barnaheimilinu er tvímælalaust TMM 2005 • 4 107
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.