Heimsmynd - 01.05.1989, Page 10
A kreiki
Að fara á hausinn með
fullt veskið
Mönnum verður tíðrætt um gjaldþrota-
bylgjuna, sem virðist síður en svo í rén-
um. Einkum verður fólki starsýnt á það,
hvað menn komast létt frá slíkum
hremmingum, að því er virðist með álit-
legar eignir óskertar og oft tilbúnir að
standa upp aftur og byrja á nýju fyrirtæki,
áður en rykið hefur náð að setjast eftir
fyrra fall. Hvergi eru gjaldþrotin tíðari en í
veitinga- og gistihúsabransanum.
Nýlega heyrðum við um ágætan veit-
ingamann í miðbæ Reykjavíkur, sem bar-
ist hafði í bökkum og náð að fleyta
rekstrinum áfram síðasta árið eða svo
með því að staðgreiða öll aðföng eftir að
lánstraust var þorrið. Síðan um áramót
hafði hann þó aftur náð að afla sér að-
fanga upp á skammtímakrít. Þá gerði
hann sér lítið fyrir og lýsti fyrirtækið
gjaldþrota, en er talinn hafa safnað í
sarpinn 4 til 5 milljónum króna á því tíma-
bili. Eftir sátu lánardrottnarnir með sárt
ennið. Ungir ofurhugar hafa þegar yfir-
tekið veitingastaðinn og hyggjast reka
hann áfram.
Pólitík og sjafnaryndi
Löngum hefur staðið styr um Sjöfn
Sigurbjörnsdóttur, fyrrverandi borgar-
fulltrúa Alþýðuflokksins. Menn sperrtu
augabrúnir, þegar Birgir ísleifur veitti
henni skólastjóraembættið við Öldusels-
skóla, enda annað tíðkast á þeim bæ en
að veita pólitískum andstæðingum eftir-
sótt embætti. Kennarar og foreldrar mót-
mæltu stöðuveitingunni hástöfum og
ekki hefur Sjöfn tekist að lægja öldurnar
með framkomu sinni og stjórnstíl. Samt
urðu menn undrandi, þegar Svavar
Hefur hugarfarsbreyting átt sér stað
með þjóðinni og hún orðin
nægjusamari en áður?
menntamálaráðherra lét til skarar skríða
og greip til þess óvanalega ráðs að aug-
lýsa embættið að nýju. Sjöfn er nefnilega
ekki „bara skólastjóri“. Hún er líka þing-
lóðs Alþýðuflokksins, en það embætti er
eins konar tengiliður milli þingflokks og
framkvæmdastjórnar flokksins og veitir
atkvæðisrétt í þingflokknum. Ráðstöfun
Svavars er því tekið eins og árás á ein-
hvern þingmann flokksins. Mikið hafði
gengið á bak við tjöldin, áður en Svavar
kastaði stríðshanskanum. Meðal annars
hafa alþýðuflokksmenn látið leka út að
þeir hafi sett fram sáttatillögu við Svavar
á þá leið, að Sjöfn gegndi embættinu til
vors með fullri reisn, en segði því þá
lausu sjálfviljug. Svavar svaraði með því
að auglýsa embættið. Fyrsta pólitíska af-
leiðirigin er yfirlýsing Bjarna Magnússon-
ar, borgarfulltrúa krata, um að sameigin-
legt framboð með allaböllum til borgar-
stjórnar sé nú úr sögunni. Talið er víst að
þingflokkur krata sé einnig ákveðinn í að
gjalda Svavari rauðan belg fyrir gráan og
geti þetta orðið honum dýrt spaug fyrir
framgang mála hans á þingi. Ekki er allt
sjafnaryndi sársaukalaust.
Hugarfarsbreyting
Margir þykjast nú finna fyrir allsnörp-
um hugarfarsbreytingum hjá fólki. Fólk
sýni nú miklu meiri aðgæslu og aðhald í
neyslu og fjárfestingum en verið hefur
síðastliðin veltiár, sem margir segja hafa
byrjað með skattlausa árinu. Fasteignir
hreyfast litið, einkum þær stærri, enda
þarf þar oft að tengja saman kaup og
sölu margra aðila. Fólk fer sjaldnar út að
borða, sparar við sig sólarlandaferðir,
veltir vandlega fyrir sér hvort það geti
ekki verið án vöru eða þjónustu, áður en
það lætur peningana af hendi. Margir at-
vinnurekendur og kaupsýslumenn telja
því að samdrátturinn geti orðið nokkuð
langdreginn og varanlegur. Þeir bjart-
sýnni búast þó við stuttrí uppsveiflu í
sumar, en erfiðleikanna muni fyrst fara
verulega og almennt að gæta næsta vet-
ur. Stjórnmálamennirnir, sem gáfu
þensluna lausa meö skattlausa árinu og
hafa síðan átalið almenning fyrir taum-
laust neysluæði, munu þó síst fagna að-
haldssemi almennings. Hún mun nefni-
lega bitna harkalega á ríkistekjunum,
sem byggjast ekki síst á neyslusköttum
og aðflutningsgjöldum. Útgjöldin munu
hins vegar halda áfram að aukast og fjár-
lagagatið stækka. Einu sjáanlegu úrræðin
eru aukin skattheimta, sem leiðir til meiri
samdráttar - og kreppu. Og svo koll áf
kolli.
Eitt símtal í 25855 og Ferðaskrifstofa íslands
skipuleggur ferðina með þér
ae Stnðsendir H1 hín ferðaanmin
10 HEIMSMYND