Heimsmynd - 01.05.1989, Page 12

Heimsmynd - 01.05.1989, Page 12
A kreiki Fólk á framabraut Nú hefur Albert kvatt þing og þjóð og haldið til hinnar glaðværu Parísarborgar, en Borgaraflokkurinn ætlar að leysast upp í frumeindir sínar. Það hefur rifjast upp fyrir mörgum, að Jón Baldvin hafi náð meiri árangri við að splundra flokk- um en sameina þá. Hann sundraði Bandalagi jafnaðarmanna á sínum tíma með því að innbyrða þíngmenn þess haustið 1986, en talsvert af fylginu hélt aðra leið, Borgaraflokknum með því að gera Albert að sendiherra og nú ætlar hann að ráðast á garðinn þar sem hann er ekki lægstur með mjög útsmoginni herkænsku. Það eru víðar spennandi sendiherra- embætti en í París. Eitt þeirra er í New York, þar sem Hans G. Andersen hefur gert garðinn frægan hjá Sameinuðu þjóðunum um árabil, en mun láta af embætti í sumar. Hverjum skyldi Jón Baldvin bjóða stöðuna? Það hefur vakið athygli á mannamótum frammámanna þjóðfélagsins undanfarið að utanríkisráð- herra og Matthías Jóhannessen hafa löngum staðið á hljóðskrafi í mannþröng- inni og farið vel á með þeim. Matthías er búinn að standa áratugum saman í miðj- um fjölmiðlaerli og pólitískum eldglær- ingum og verður sextugur á næsta ári og þyrfti engan að undra, að honum fyndist nóg að gert. En af ritstjórnarstóli Morgunblaðsins liggja engar leiðir upp á við í íslenskum metorðastiga. Samein- uðu þjóðirnar gætu því verið verðugur vettvangur fyrir Matthías og enginn vafi á að hann muni setja skáldlegan og menn- ingarlegan blæ á land og þjóð sem full- trúi hennar. Þetta hafa bananalýðveldi Suður-Ameríku notfært sér oft og tíðum og fengið skáld eins og Pablo Neruda til að varpa Ijóma á landið erlendis og breiða yfir ófögnuðinn heima fyrir. Við þetta mundi losna aldeilis fýsilegur stóll í Aðalstræti 6. Skyldi Þorstein Páls- son langa til að máta sig í hann? Þetta er starf, sem krefst mikils stjórnmálainn- sæis, reynslu og ítaka. Reynsluna hefur hann sem fyrrverandi þingfréttaritari Moggans og ritstjóri Vísis og þetta starf er örugglega betur launað og þakkað en það sem hann gegnir núna. Þá er spurningin, hver geti fyllt út í stólinn hans Þorsteins. Davíð gæti það örugglega og ríflega það. Isfirðingurinn Jón Baldvin gæti hugsað sem svo, að landsbyggðin hlyti að rísa öndverð gegn núverandi borgarstjóra I landsföðurhlut- verki og hann uppskorið vináttuvott við Matthías Jóhannessen með langvarandi ólgu og (mögulega) nýjum klofningi í Sjálfstæðisflokknum. En sjálfstæðismenn gætu sett undir þennan leka með þvf að tefla fram Hall- dóri Blöndal sem varaformanni flokksins, sterkum landsbyggðarþingmanni, sem verið hefur ( áberandi forystuhlutverki á þingi síðustu árin. Hann á líka mikil ítök f sterkum ættum í Reykjavík sem verið hafa í andstöðu við Davíð. En hver gæti þá borið borgarstjóra- keðjuna, sem Davíð hefur borið fyrir brjósti með umdeildum glæsibrag? Sjálf- stæðisflokkinn vantar konur í forystu til að hafa roð við Kvennalistanum og hver væri betur til þess fallin að breiða blæju mildi og mýktar yfir ár hörku og harð- lyndis en einmitt Katrín Fjeldsted? Lengra verður þetta skuggalega plott ekki rakið að sinni, enda gat HEIMS- MYND, þrátt fyrir ítarlegar eftirgrennslan- ir, ekki fengið frétt þessa staðfesta, þeg- ar þetta er skrifað 1. apríl. Gullkringla og koparkringla Kringlan heldur áfram að mala gull íiestum þeim sem voru svo heppnir að komast þar inn f upphafi og komust þar færri að en vildu. Margar þeirra verslana, sem bættu við sig útsölu f Kringlunni, eru nú að selja eða búnar að selja fyrri höf- uðstöðvar og hyggjast halda sig við Kringluna einvörðungu. Laugavegurinn er þvf talinn mjög á niðurleið sem versl- unargata, þótt á honum megi finna góða bletti. Verslanir f vesturenda Hafnar- strætis telja að verslun þar hafi dalað mjög, þegar SS-búðin var lögð niður og Bókaverslun Snæbjarnar hefur lagt niður starfsemi og Heimilistæki flutt inn í höf- uðstöðvarnar við Sætún. Þeir hins vegar, sem töldu að líka hlyti að mega ná góðum árangri f Kringlunni 4 eða 6, aðeins steinsnar frá hinni einu sönnu Kringlu, hafa rekið sig á þá ís- köldu staðreynd, að þetta steinsnar virð- ist enn sem komið er vera markalínan milli velgengni og ófullnægjandi árang- urs. Ýmsar búðir, sem byrjuðu þar fyrir jól, eru hættar, aðrar hafa hætt við að flytja inn og hægt gengur að fá aðra aðila f staðinn. Þetta er eins og munurinn á gullkringlu og koparkringlu, sagði einn kaupsýslumaður við okkur fyrir skömmu. Bragðgóður BITI með PEPPERONI BORGARNES - BITINN er tilbúinn á augabragði, aðeins 3-4 mín. á grillinu og enn skemmri tíma í örbylgju- ofninum. BITINN er með pepperoni, osti, sveppum, papriku, lauk og kryddi. Reyndu líka hina með skinku og nautahakki. Mjólkursamlag Borgfirðinga, Borgarnesi sími: 93-71200.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.