Heimsmynd - 01.05.1989, Side 15

Heimsmynd - 01.05.1989, Side 15
Lítur heimurinn virkilega eins út af Krókhálsinum og Efstaleitinu? hatur sumra þeirra á Markúsi Erni Ant- onssyni. Á það skal ekki lagður dómur hér hvað af innanhússværingum RUV endurspeglast í tillögum nefndarinnar, enda af nógu öðru að taka. Stærsta brenglunin og mismununin í fjölmiðlaumhverfinu er runnin undan rifjum stjórnmálaflokkanna. Allir hafa þeir staðið í dagblaðaútgáfu með mis- munandi rýrum árangri í rekstri. Ekki hefur dugað til þótt þeir hafi komið sér saman um sívaxandi styrki til þeirra úr ríkissjóði á fjárlögum. Peir hafa því rott- að sig saman í borgarstjórn um að und- anskilja dágblöðin aðstöðugjöldum, sem lögð hafa verið á alla aðra prentmiðla, og á Alþingi um að leggja söluskatt á auglýsingar ríkisútvarpsins til að auð- velda samkeppnisstöðu dagblaðanna, sem hafa ekki þurft að borga af þeim söluskatt. Allar ríkisstofnanir e.ru undan- þegnar aðstöðugjöldum og RÚV þar með líka. Nýju loftmiðlarnir hafa hingað til notið góðs af því með því að fá sams konar undanþágu, en það er nú yfirlýst stefna borgarstjórnar að afnema allar þessar undanþágur með næstu fjárhags- áætlun. Aðrir prentmiðlar hafa svo líka notið góðs af söluskattsfríðindum dag- blaðanna með sams konar undanþágu. Þetta kemur þannig út að litla HEIMS- MYND þarf að borga aðstöðugjald í hæsta skala, 1,3 prósent af veltu, meðan risinn við hliðina, Morgunblaðið, er undanþeginn. Hins vegar nýtur HEIMS- MYND þess með Morgunblaðinu að þurfa ekki að borga söluskatt af auglýs- ingum. að er hins vegar ljóst að það yrðu ójöfn skipti ef prentmiðl- arnir tækju á sig 25 prósent sölu- skatt (eða virðisaukaskatt, þegar honum verður komið á) en loftmiðlarnir yrðu hins vegar að greiða aðstöðugjald. En um leið sætu báðir óneitanlega við sama borð og jafnframt við sama borð og annar átvinnurekstur í landinu (nema hvað fjórir skalar aðstöðugjaldsins mis- muna atvinnugreinum stórlega og skapa misrétti milli byggðarlaga). Pað er hér, sem rök nefndarinnar koma inn um yfir- vofandi hættu íslenskrar menningar vegna erlendrar innrásar, sem réttlæti það að menningarviðleitni sé skattlögð með sérstökum hætti. Verða menn að meta vægi þeirra röksemda hver fyrir sig,en breytir þó engu um það aðalatriði, að allir samkeppnisaðilar standi jafnt að Hollar fjölómettaðar fitusýrur fyrir hjarta og æðakerfi. Ekkert annað lýsisþykkni á íslandi er jafn ríkt af omega-3 fitusýrum, þ.e. 50% innihald af EPA og DHA. Hylkin innihalda ekki A og D vítamín. Gerið verðsamanburð. J/& TÓRÓ HF Síöumúla 32, 108 Reykjavik, o 686964 Ginseng (panax ginseng C.A. Meyer) af hæsta gæðaflokki frá Kóreu. Ginseng er m.a. notað til að styrkja mótstöðuafl líkam- ans gegn streitu og sjúkdóm- um. Gerið verðsamanburð. jÆ tóró hf Síöumúla 31 108 Reykjavik, o 686964
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.