Heimsmynd - 01.05.1989, Qupperneq 15
Lítur heimurinn virkilega eins út af
Krókhálsinum og Efstaleitinu?
hatur sumra þeirra á Markúsi Erni Ant-
onssyni. Á það skal ekki lagður dómur
hér hvað af innanhússværingum RUV
endurspeglast í tillögum nefndarinnar,
enda af nógu öðru að taka.
Stærsta brenglunin og mismununin í
fjölmiðlaumhverfinu er runnin undan
rifjum stjórnmálaflokkanna. Allir hafa
þeir staðið í dagblaðaútgáfu með mis-
munandi rýrum árangri í rekstri. Ekki
hefur dugað til þótt þeir hafi komið sér
saman um sívaxandi styrki til þeirra úr
ríkissjóði á fjárlögum. Peir hafa því rott-
að sig saman í borgarstjórn um að und-
anskilja dágblöðin aðstöðugjöldum, sem
lögð hafa verið á alla aðra prentmiðla,
og á Alþingi um að leggja söluskatt á
auglýsingar ríkisútvarpsins til að auð-
velda samkeppnisstöðu dagblaðanna,
sem hafa ekki þurft að borga af þeim
söluskatt. Allar ríkisstofnanir e.ru undan-
þegnar aðstöðugjöldum og RÚV þar
með líka. Nýju loftmiðlarnir hafa hingað
til notið góðs af því með því að fá sams
konar undanþágu, en það er nú yfirlýst
stefna borgarstjórnar að afnema allar
þessar undanþágur með næstu fjárhags-
áætlun. Aðrir prentmiðlar hafa svo líka
notið góðs af söluskattsfríðindum dag-
blaðanna með sams konar undanþágu.
Þetta kemur þannig út að litla HEIMS-
MYND þarf að borga aðstöðugjald í
hæsta skala, 1,3 prósent af veltu, meðan
risinn við hliðina, Morgunblaðið, er
undanþeginn. Hins vegar nýtur HEIMS-
MYND þess með Morgunblaðinu að
þurfa ekki að borga söluskatt af auglýs-
ingum.
að er hins vegar ljóst að það
yrðu ójöfn skipti ef prentmiðl-
arnir tækju á sig 25 prósent sölu-
skatt (eða virðisaukaskatt, þegar
honum verður komið á) en
loftmiðlarnir yrðu hins vegar að
greiða aðstöðugjald. En um leið
sætu báðir óneitanlega við sama
borð og jafnframt við sama borð
og annar átvinnurekstur í landinu (nema
hvað fjórir skalar aðstöðugjaldsins mis-
muna atvinnugreinum stórlega og skapa
misrétti milli byggðarlaga). Pað er hér,
sem rök nefndarinnar koma inn um yfir-
vofandi hættu íslenskrar menningar
vegna erlendrar innrásar, sem réttlæti
það að menningarviðleitni sé skattlögð
með sérstökum hætti. Verða menn að
meta vægi þeirra röksemda hver fyrir
sig,en breytir þó engu um það aðalatriði,
að allir samkeppnisaðilar standi jafnt að
Hollar fjölómettaðar fitusýrur
fyrir hjarta og æðakerfi. Ekkert
annað lýsisþykkni á íslandi er
jafn ríkt af omega-3 fitusýrum,
þ.e. 50% innihald af EPA og
DHA. Hylkin innihalda ekki A
og D vítamín.
Gerið verðsamanburð.
J/& TÓRÓ HF
Síöumúla 32, 108 Reykjavik, o 686964
Ginseng (panax ginseng C.A.
Meyer) af hæsta gæðaflokki frá
Kóreu. Ginseng er m.a. notað til
að styrkja mótstöðuafl líkam-
ans gegn streitu og sjúkdóm-
um.
Gerið verðsamanburð.
jÆ tóró hf
Síöumúla 31 108 Reykjavik, o 686964