Heimsmynd - 01.05.1989, Qupperneq 16
Cartler
Paris
18 karat gullhringur.
Sá eini sanni frá
Carmr
ar«^Í>r-
GARÐAR ÓLAFSSON
Úrsmiður - Lœkjartorgi.
Skyldi Svavar geta komið
kjarnfóðurskattinum gegnum þessa
tvo?
vígi, í baráttunni um hylli almennings og
auglýsenda.
Hér er það sem ráðabruggið byrjar.
Pólitískir ráðamenn segja nefndarmönn-
um að til standi að taka upp virðisauka-
skatt í stað söluskatts og verði hann und-
anþágulaus. Undankomuleiðin sé sú að
samþykkja nú þegar tólf prósent sölu-
skatt af auglýsingatekjum allra miðla,
sem renni í eins konar Kjarnfóðursjóð
fjölmiðla, en verði raunar að mestu end-
urgreiddur atvinnugreininni eftir reglum,
sem settar verði í reglugerð. Sjóðnum
verði lagðir til tveir aðrir tekjustofnar: 12
prósent af aðflutningsgjöldum viðtækja
og sex prósent af móttökubúnaði fyrir
gervihnattasjónvarp. Nefndin gerir ráð
fyrir að tekjur sjóðsins verði um 300
milljónir króna. Priðjungur þess fjár
verði endurgreiddur til loftmiðlanna,
þriðjungur til prentmiðla og þriðjungur
til sjálfstæðra aðila sem geti sótt um f
samráði við tiltekinn fjölmiðil (þá eiga
allir nokkurs penings von og ætti að vera
tryggt, að enginn rífi kjaft, nema lög-
stimplaðir kverúlantar). Einnig skulu
styrkir til dagblaðanna, sem hingað til
hafa verið greiddir úr ríkissjóði, hér eftir
koma úr þessum sjóði, enda verði stjórn
hans kosin af stjórnmálaflokkunum á Al-
þingi og formaður skipaður af mennta-
málaráðherra. Gegn þeim rökum að
með þessu séu þeir prentmiðlar, sem ár-
angri ná í samkeppninni um auglýsingar,
látnir jafna út niðurstöðu markaðarins
eftir á með styrkjum til stjórnmálablaða
sem markaðurinn hafnar, er teflt þeim
falsrökum að í raun séu það aðflutnings-
gjöldin, sem það séu látin gera. Það er
auðvitað engu rökréttara að kaupendur
nýrra móttökutækja loftmiðlunar séu
látnir borga brúsann af óráðsíurekstri
stj órnmálaflokkanna.
Menntamálaráðherra hefur lýst því yf-
ir að með þessu móti sé verið að hlífa
fjölmiðlum við áhrifum væntanlegs virð-
isaukaskatts. í staðinn borgi þeir lægri
skatt, sem þeir fái að mestu endur-
greiddan. Hvaða trygging er fyrir því að
hann geti staðið við þau orð sín? Engin.
Og um endurgreiðslur pólitískt skipaðrar
úthlutunarnefndar hafa menn fordæmi
úthlutunarnefndar listamannalauna.
Halda menn til dæmis að höfundur þess-
arar greinar „í samráði við tiltekinn fjöl-
miðil“ (HEIMSMYND), fengi styrk til
samningar þessarar greinar? Hér eru á
ferðinni tilburðir til þjóðnýtingar og rit-
stýringar, sem ekki verður trúað að fjöl-
miðlarnir láti ómótmælt yfir sig ganga.
Það, sem þó er verst í starfi nefndar-
innar er það, að hún virðist ekki gera til-
raun til að skilgreina stöðu Ríkisútvarps-
ins að nýju, eftir að það er aðeins orðið
eitt fjölmiðlafyrirtækið af mörgum í sam-
keppni á markaði. Þar virðist einkum
þrennt koma til greina:
ð Ríkisútvarpið sé samkeppnis
JH fyrirtæki á öllum sviðum, sen
/^^ keppi um áhorfendur/áheyrend
/■ ur og auglýsingamarkaðinn í
/■ sama grundvelli og einka
stöðvar. Því yrði þá að fylgjí
/ ■ fjárhagslegt sjálfstæði og réttu:
/ til að haga innri málum sínum
■ ■stjórn og launamálum eins oj
hin fyrirtækin gera. Það er ekki hægt ac
segja því að keppa og læsa það svo inni
launakerfi ríkisstarfsmanna með þein
16 HEIMSMYND