Heimsmynd - 01.05.1989, Page 28
HÓFÍ
UNGFRÚ HEIMUR 1985
— lét ekki frœgðina slá sig út af laginu —
um, myndatökum og viðtölum fyrir
blöð, útvarp og sjónvarp. Allan tímann
þurfa þær að sýnast úthvíldar og vel upp-
lagðar.
thyglin sem Hófí vakti opnaði
augu markaðsaðila fyrir því
hvað yndisleg stúlka, prýdd titl-
inum ungfrú heimur, hafði
geysilegt auglýsingagildi.
„Þeir hafa uppgötvað hvað
hægt er að nota okkur mikið,“
segir Hófí, þó af fullri hóg-
værð. „Og alltaf halda þeir að
þetta sé engin fyrirhöfn. Ein myndataka,
hvað er það, tíu mínútur? Þeir gleyma
að nauðsynlegur undirbúningur tekur
alltaf sinn tíma. Mér finnst of hart geng-
ið að Lindu. Hún er látin vinna miklu
meira en ég. Þetta er ekki nógu gott.“
Báðum finnst þetta þó stórkostlegt
ævintýri. Þær eru náttúrlega löngu orðn-
ar hundleiðar á blaðamönnum og fjöl-
miðlafargani.
Kannske hafa þær þurft að vinna allt
of mikið til að hafa tíma fyrir tilgerð og
grillur, að minnsta kosti er ekki hægt að
sjá að upphefðin hafi stigið þeim til höf-
uðs.
Hitt er annað mál að yndisþokki
þeirra skilar beinhörðum tekjum í þjóð-
arbúið. Meiri tekjum en margt streðið.
Það er kostulegt að hugsa til þess að
þegar Linda var í Japan stóðu rosknir
kaupsýslujöfrar, sumir þeirra milljóna-
mæringar, í biðröð til að fá eiginhandar-
áritun þessarar ungu stúlku, sem bar
hinn seiðandi titil ungfrú heimur. Og
voldugir bankastjórar í mikilvægum við-
skiptalöndum hafa látið í ljósi við við-
skiptavini hér að þá dreymdi um að eign-
ast mynd af ungfrú heimi 1989, Lindu
Pétursdóttir, með eiginhandaráritun
hennar. Sem þeir að sjálfsögðu fá.
Það má lengi deila um innbyrðis hlut-
föll fjármagns og fegurðar, og velta fyrir
sér hvernig heimurinn liti út ef fjármagn
og völd væru kvennamegin, en karlar
kepptu um titla eins og herra íturvaxinn
eða herra mittismjór. Deilur sprottnar af
fegurðarsamkeppnum eru heldur ekki
nýjar af nálinni. Frægasta styrjöld forn-
aldar, þegar Trójuborg var lögð í eyði,
átti rætur að rekja til þess að þrjár gyðj-
ur, Hera, Aþena og Afródíta, deildu um
hver þeirra væri fegurst. París, kóngs-
sonur í Tróju og dómari í keppninni,
valdi Afródítu, því hún hafði heitið hon-
um fegurstu konu heimsins, Helenu
fögru í Spörtu, að launum. Svo illa vildi
til að hún var gift og þegar París hafði
numið hana brott með fulltingi Afródítu
fór eiginmaðurinn með fjölmennan her á
eftir þeim og lagði Trójuborg í rúst.
Sú er skýring arfsagnanna, en líklega
hefur stríðið í raun verið háð um við-
skipti og markaði, þótt fegurð kvenna
væri höfð að yfirvarpi af glúrnum stjórn-
málamönnum.n
Garðabæjarstúlkan Hólmfríður
Karlsdóttir var 21 árs gömul og
um það bil að ljúka námi í Fóst-
urskólanum þegar hún var beðin
að taka þátt í keppninni ungfrú
ísland. „Ástæðan fyrir að leitað
var til mín var víst sú að ég hafði
starfað sem fyrirsæta í samtök-
unum Model 79. En mér fannst
ég ekki tilbúin í keppni og langaði auk
þess meira að fara í útskriftarferðalag til
Þýskalands með skólanum. Árið eftir,
1985, var aftur leitað til mín. Ég vann þá
sem fóstra á barnaheimili Vífilsstaðaspít-
ala og færðist undan í fyrstu, en sló svo
til og varð númer tvö. Ungfrú ísland
varð þá Halla Bryndís Jónsdóttir og hún
var send í keppnina ungfrú alheimur en
ég til London í keppnina ungfrú heim-
„Datt þér í hug að þú mundir vinna?“
„Nei, guð minn góður, ég vonaði að
ég kæmist í fimmtán stúlkna úrvalið, og í
hæsta lagi í sjö stúlkna undanrásina.
Ennþá finnst mér óraunverulegt að hafa
unnið, en þetta var auðvitað stórkostlegt
ævintýri."
Eftir sigurinn ferðaðist Hólmfríður,
eða Hófí eins og hún er oftast kölluð, til
þrjátíu landa í Norður- og Mið-Amer-
íku, Suðaustur-Asíu og Evrópu. Hún
komst jafnvel austur fyrir járntjald, til
Póllands. Ýmist kynnti hún ísland og ís-
lenskar vörur, á svipaðan hátt og Linda
gerir nú, eða hún kom fram á mannfund-
um sem efnt var til í því skyni að safna fé
handa sjúkrahúsum fyrir börn fátækra
foreldra, eða matgjöfum handa börnum í
fátækrahverfum, til dæmis í Tælandi.
„Þetta voru uppákomur af ýmsu tagi,
ur.
28 HEIMSMYND