Heimsmynd - 01.05.1989, Síða 33
1**4 '*V[(
Ungfrú Reykjavík 1989, Hugrún Linda,
krýnd af fyrirrennara sínum, Guðnýju
Elísabetu. Fyrir aftan þær sést
Ijósmyndafyrirsæta Reykvíkinga 1989,
Hildur Dungal.
FEGURÐAR-
DROTTNINGAR
VALDAR UM
LANDIÐ ALLT
— úrslitakeppnin í Reykjavík um miðjan maí
Leitin að ungfrú íslandi 1989 hófst á
Akureyri 2. mars þegar þar var kjörin
ungfrú Norðurland við mikil fagnaðar-
læti. A eftir komu ungfrú Vesturland,
Suðurland, Austurland, Vestfirðir, Suð-
urnes og Reykjavík. Pær hlutskörpustu
verða síðan þjálfaðar í líkamsrækt og
fögru göngulagi til undirbúnings undir
úrslitaslaginn 15. maí þegar þær keppa
um titilinn ungfrú ísland í Reykjavík.
Pátttakendur mega ekki vera yngri en
18 ára og varla eldri en 24ra ára, helst
ekki undir 170 sentimetrum á hæð, en þó
er aðalatriðið að þær samsvari sér vel.
Hingað til hafa ljóskur verið hlutskarp-
astar, en þær dökkhærðu hafa verið að
sækja á og verða jafnvel í meirihluta í ár.
Annars eru engin sérstök skilyrði að
uppfylla, nema hvað þær mega hvorki
vera giftar né hafa eignast börn.
Skyldi slíkt henda stúlku sem unnið
hefur titil ársins yrði hún að afsala sér
honum.
Heimamenn á hverjum stað halda
skemmtanirnar þar sem stúlkurnar eru
valdar, og keppast um að vanda þær sem
best. Venjulega er byrjað á góðri máltíð,
en hvað borðað er getur farið eftir hér-
aðssið, sem og skemmtiatriði. Pannig
voru snæddar kryddlegnar lundabringur
með jarðarberjarjóma í Stykkishólmi, en
á eftir lék Klakabandið úr Ólafsvík fyrir
dansi. I Reykjavík var sjávarréttasinf-
ónía á borðum, Jóhannes Kristjánsson
eftirherma skemmti, en annars var blær
kvöldsins með frönsku sniði, væntanlega
til að hafa það nógu fínt.
Stúlkurnar koma alltaf fram bæði á
sundbolum og í samkvæmiskjólum, og
venjulega fær sigurvegarinn ýmis verð-
laun frá fyrirtækjum á hverjum stað.
Dómnefnd skipa fimm manns, þar af
venjulega þrír frá Reykjavík, þaðan sem
keppninni er stjórnað.
Framkvæmdastjóri er Gróa Astgeirs-
dóttir, elskuleg 24ra ára gömul stúlka
sem unnið hefur sem móttökustjóri á
Hótel Eorg síðan hún lauk stúdentsprófi
sínu úr Verslunarskólanum. Hún segir
að þetta sé mikil vinna en afar spennandi
og skemmtileg.
Þegar við hittum hana var hún að
kveðja Guðrúnu Margréti Hauksdóttur
og óska henni fararheilla. Guðrún Mar-
grét, sem er Reykvíkingur, var leggja
upp til Taipei og átti að keppa þar um
titilinn ungfrú Undraland (Miss Wond-
erland). Önnur keppni í Asíu er ungfrú
alþjóðleg (Miss International) og verður
haldin í Tokyo síðar á þessu ári. Þá verð-
ur ungfrú alheimur (Miss Universal)
kjörin einhvers staðar í Ameríku, og eru
þá ónefndar ungfrú Evrópa og ungfrú
Norðurlönd. Islenskar stúlkur fara á
þetta allt saman, og að sjálfsögðu einnig
til London, svo það verða spennandi
ferðalög í boði fyrir margar stúlknanna
sem keppa um titilinn ungfrú Island í
maí. Sú skemmtun verður haldin á Hótel
Islandi, og að minnsta kosti eitt atriði
hennar verður rammþjóðlegt, að sögn
Gróu, og það er klakinn í fordrykknum.
Hann verður sóttur upp á Vatnajökul,
þar sem hann hefur beðið í hundruð ára
eftir því hnossi að fá að bráðna á vörum
fegurðardísa.D
HEIMSMYND 33