Heimsmynd - 01.05.1989, Síða 37
Andúð Jónasar á Benedikt má rekja til „stóru bombunnar" en
þeir voru svilar, Helgi Tómasson á Kleppi og Benedikt.
Benedikt Sveinsson naut virðingar sem prúður drengskap-
armaður en gat verið allhvass í orðum. Hann hafði unun af
fornsögum og kveðskap og var vel að sér í íslenskri sögu.
Honum þótti gott að skemmta sér við vín og fór allnokkurt
orð af honum í samkvæmum. Pó að þau hjón væru ólík að
skapferli og atferli voru þau samrýnd, ekki síst er árin færðust
yfir. Aldrei urðu þau efnuð.
Heimili Benedikts og Guðrúnar var rammíslenskur sam-
komustaður eldheitra þjóðfrelsismanna og við það andrúms-
loft ólust hin þjóðþekktu börn þeirra upp. Benedikt var svo
fornyrtur að hann átti það til að mæla til manna á fornmáli,
jafnvel úr ræðupúlti Alþingis. Er ekki örgrannt um að Halldór
Blöndal, dóttursonur hans, bregði fyrir sig slíku hinu sama.
Börnin á heimilinu báru svipmót foreldranna hvert með sín-
um hætti. Pað sem þótti einkenna þau mörg var skarpar gáfur,
skaphiti og ráðríki. Þau voru málafylgjumenn en gátu gengið
svo hart fram að jaðraði við ofsa, voru næsta hrjúf á ytra borði
en góðgjörn við nánari kynni. Þau komu til dyranna eins og
þau voru klædd og sögðu umbúðalaust meiningu sína. Synirn-
ir voru allir þessu marki brenndir, hver á sinn hátt.
FYRIRFERÐARMIKILL EINFARI
Sveinn Benediktsson (1905-1979) var elstur. Sagt var að þar
færi maður sem ekki bæðist afsökunar á tilveru sinni, þvert á
móti hafi hann verið svo fyrirferðarmikill að menn fundu fyrir
nærveru hans hvar sem hann kom. í Reykjavíkurbréfi Morg-
unblaðsins var sagt um hann látinn að andstæðingum hans
hefðu þótt hann nokkuð einhliða í afstöðu sinni og talið hann
ekkert lamb að leika við og ennfremur að hann hafi stundum
verið einfari í skoðunum á mönnum og málefnum og hafi þá
ekkert látið hvika bjargfastri skoðun sinni á hverju sem gekk.
Davíð Ólafsson bankastjóri sagði að hann hefði ekki verið
gefinn fyrir neinn afslátt og því oft óvæginn í hita baráttunnar.
Sveinn Benediktsson hóf störf við útgerð að loknu stúdents-
prófi og átti þar góðan að þar sem var Halldór Kr. Þorsteins-
son, hinn landsþekkti skipstjóri og togaraútgerðarmaður í
Háteigi í Reykjavík, en hann var kvæntur Ragnhildi frá Eng-
ey, systur Guðrúnar (sjá síðar). Sveinn starfaði öðrum þræði
við togaraútgerð Halldórs allt til 1944 en þekktastur varð hann
samt fyrir forgöngu sína í sfldveiðimálum. Frá árinu 1927
starfaði hann einkum norður á Siglufirði, lengi sem umboðs-
maður sunnlenskra síldveiðiskipa á miðunum norðanlands en
frá 1930 í stjórn Síldarverksmiðja ríkisins og stjórnarformaður
þeirra um áratugi. Enginn mun hafa haft meiri áhrif á fram-
gang þessara stórfyrirtækja en hann.
En það stóð styr um Svein. í júlí 1932 hófst deila milli
Verkalýðsfélagsins á Siglufirði og stjórnar Síldarverksmiðj-
anna sem endaði með dramatískum hætti - svo ekki sé meira
sagt. Sveinn skrifaði greinar í Morgunblaðið í hita baráttunnar
og bar Guðmund Skarphéðinsson, formann Verkalýðsfélags-
ins, þungum sökum, kallaði hann meðal annars skattsvikara
og verkalýðsböðul. Hann sagði að menn eins og hann hefðu
það að atvinnu sinni að spúa eitri milli atvinnurekenda og
verkamanna, þeirra atvinna væri að ljúga og rægja til þess að
upphefja sjálfan sig. Þessar blaðagreinar Sveins sýna auðvitað
tíðarandann í pólitískum skrifum á þessum tíma en einnig þá
heift sem stundum einkenndi Svein. Það er af framhaldi máls-
ins að segja að verkalýðsforinginn örvinglaðist og svipti sig lífi
og var Sveini kennt um. Miklar æsingar urðu á Siglufirði og
víðtæk fundarhöld sem aðallega var stefnt gegn honum. Varð
Sveinn að lokum að segja sig úr verksmiðjustjórninni um
stundarsakir. En það er til marks um þrautseigju hans að
nokkrum vikum síðar var hann kominn til Siglufjarðar á ný en
var þá nánast hrakinn með valdi frá staðnum. En uppgjöf var
ekki til í hans fari og hann átti eftir að eiga langan starfsferil á
Siglufirði og vinna traust margra andstæðinga sinna, meðal
Bjarni Benediktsson ásamt Ólafi Thors
en leiðir þeirra lágu saman víðar en í
stjórnmálum þar sem Pétur bróðir
Bjarna var tengdasonur Ólafs.
annars þeirra er voru honum andvígir vegna Guðmundarmáls-
ins.
Eftir stríð hóf Sveinn sjálfur sfldarsöltun í stöð sinni, Haf-
silfri á Raufarhöfn, og síðar Haföldunni á Seyðisfirði. Það var
á árunum 1947 til 1964. Sveinn var einn af stofnendum Félags
íslenskra fiskimjölsframleiðenda 1961 og formaður til 1977.
Hann var í síldarútvegsnefnd og lengi viðriðinn Bæjarútgerð
Reykjavíkur eftir 1947, fyrst sem framkvæmdastjóri en síðan í
útgerðarráði, þar af formaður þess 1963 til 1975. Hann var í
stjórn LÍÚ 1944 til 1972 og um árabil formaður Sjóvátrygg-
ingafélags íslands hf. og Hvals hf. en í tveimur síðarnefndu
fyrirtækjunum komu meðal annars til áhrif Halldórs í Háteigi
sem síðar verður vikið að. Þá var Sveinn varaþingmaður Sjálf-
stæðisflokksins á árunum 1937 til 1942 en mun ekki hafa átt
skap til frekari frama á stjórnmálasviðinu.
Sveinn Benediktsson var duglegur og fylginn sér eins og
hann átti ætt til. Hann komst til efna og víðtækra áhrifa í sjáv-
arútvegs- og tryggingamálum og nú eru það börn hans sem
halda á lofti merki Engeyjarættarinnar í fjármálaheiminum.
Kona hans var Helga Ingimundardóttir, systir Einars, bæjar-
fógeta í Siglufirði og síðar Hafnarfirði, lengi þingmanns Sjálf-
stæðisflokksins. Sveinn átti tvær dætur fyrir hjónaband en
fjögur hjónabandsbörn. Börn hans eru: Hrafnhildur Sveins-
dóttir (f. 1924), gift Eyþóri Ó. Sigurgeirssyni, deildarstjóra hjá
Flugmálastjórn. Edda Guðrún Sveinsdóttir (f. 1935). Hennar
maður er Pútl Steingrímsson, kvikmyndagerðarmaður frá
Vestmannaeyjum. Elst hjónabandsbarna er Benedikt Sveins-
son (f.1938) hæstaréttarlögmaður sem hefur ótrúleg ítök víða í
íslenska fjármálaheiminum. Hann hefur verið stjórnarformað-
ur í skipafélögunum Nesskip og ísskip um árabil, tók við
stjórnarformennsku í Sjóvá að föður sínum látnum árið 1979
og er nú stjórnarformaður Sjóvár-Almennra. Sagt er að hann
sé maðurinn á bak við sameiningu Sjóvátryggingafélagsins og
Almennra trygginga. Hann er einnig í stjórn Eimskipafélags
íslands. Ingimundur Sveinsson (f.1942) arkitekt er næstur í
röðinni. Hann er einn af þeim arkitektum sem hafa fengið
flest verkefni í Reykjavík á undanförnum árum. Hann teikn-
HEIMSMYND 37