Heimsmynd - 01.05.1989, Side 42
Engeyingar eiga líka ítök í dómskerfinu en Benedikt Blöndal var skipaður
hæstaréttardómari fyrir ári síðan. Hann er elsti sonur Kristjönu
Benediktsdóttur og Lárusar H. Blöndal.
RAGNHILDUR OG HALLDÓR í HÁTEIGI
Systir Guðrúnar Pétursdóttur frá Engey, móður þeirra
Bjarna Benediktssonar og systkina, var Ragnhildur Péturs-
dóttir (1880-1961) sem einnig gustaði mjög af. Hún þótti hinn
mesti fjörkálfur á yngri árum og þótti henni gaman að því að
láta sjóða á keipum í siglingu milli lands
og Engeyjar. Hún tók ung þátt í störfum
ungmennafélagshreyfingarinnar og fór
síðan til Noregs og nam þar bæði á hús-
mæðraskóla og lýðháskóla. Hún kenndi
við Kvennaskólann um hríð eftir að hún
kom heim en giftist 1911 Halldóri Kr.
Þorsteinssyni, skipstjóra og útgerðar-
manni. Hann var einn af stofnendum og
eigendum togarafélagsins Alliance og
stýrði fyrsta togara þess, Jóni forseta.
Hann var skipstjóri á ýmsum togurum til
1929 en rak eftir það eigin útgerð (tog-
arinn Max Pemperton) og fiskverkun.
Það var undir hans handarjaðri sem
Sveinn Benediktsson hóf feril sinn í sjáv-
arútvegi. Max Pemperton fórst 1944 og
átti Halldór þá kost á nýsköpunartogara
en kaus fremur að leggja nýbbyggingar-
42 HEIMSMYND
Stjarna Engeyjarættarinnar í viðskiptalífinu er
Benedikt Sveinsson, elsti sonur Sveins
Benediktssonar. Það heiur lítiö farið fyrir
honum opinberlega en hann stóð nýlega fyrir
samruna Sjóvár og Almennra trygginga, er
sterkur hluthafi í Eimskipafélaginu og hefur
víða ítök.
RÓTTÆKUR LEGGUR
Þriðja Engeyjarsystirin sem giftist var Maren Pétursdóttir
(1884-1974). Hún var gift Baldri Sveinssyni, bróður Benedikts,
og voru því tvær systranna giftar bræðrum. Baldur var síðast
ritstjóri Vísis í Reykjavík en lést 1932. Maren sótti lýðháskól-
ann á Askov á yngri árum og var þar
samtíma Jónasi frá Hriflu. Hún var um
hríð barnakennari í Reykjavík og þótti
tápmikil kona og glettin. Eftir að Maren
varð ekkja gerðist hún umboðsmaður
Happdrættis Háskóla íslands og rak
jafnframt verslunina Happó á Laugavegi
66.
Börn Guðrúnar frá Engey fylgdu
Sjálfstæðisflokknum eindregið að málum
og voru þar í forystu en ýmsir af afkom-
endum Marenar, systur hennar, hneigð-
ust til róttækni. Börn hennar voru:
Ragnheiður Kristjana Baldursdóttir (f.
1919), kona Páls Hafstaðs deildarstjóra
hjá Rafmagnsveitum ríkisins. Sigurður
Baldursson (f.1923) þekktur og litríkur
hæstaréttarlögmaður í Reykjavík, hann
framhald á bls. 110
sjóðinn, sem hann átti vegna togarans, í fyrirtækið Hval hf.
sem er nú meðal best stæðu fyrirtækja landsins og rekur til
dæmis frystitogarann Venus. Þar eru ítök þessarar fjölskyldu
mikil. Þá var Halldór einn af stofnendum Sjóvár árið 1918 og
sat í stjórn þess í nær hálfa öld og var þar af stjórnarformaður
1938 til 1964. Talið er að Engeyjarfjölskyldan hafi átt um 40
prósent í Sjóvá. Hann var einnig í stjórn Félags íslenskra botn-
vörpuskipaeigenda, Vinnuveitendasambandsins og í stjórn
Eimskipafélagsins var hann 1916 til 1953 eða lengur en nokkur
annar maður.
Ragnhildur frá Engey, kona hans, átti líka sinn glæsta feril.
Meðan maður hennar var á sjó rak hún stórt kúabú á þeirra
tíma mælikvarða á Háteigi (sem Háteigsvegur er kenndur
við). Hún var mikill áhugamaður um íslenskan heimilisiðnað
og rak meðal annars vefstofu í Háteigi um skeið og einnig í
Húsinu á Eyrarbakka sem þau hjón keyptu og björguðu frá
niðurrifi. Þá var hún mikill áhugamaður um húsmæðra-
fræðslu, átti mestan þátt í stofnun Húsmæðraskóla Reykja-
vfkur og var formaður skólanefndar hans. Hún var formaður
Bandalags kvenna 1931 til 1943 og formaður Kvenfélagasam-
bands íslands frá upphafi 1930 til 1947 en þá tók Guðrún systir
hennar við formennsku. Einnig var hún formaður Hins ís-
lenska kvenfélags og varafulltrúi Sjálfstæðisflokksins í bæjar-
stjórn 1934 til 1942.
Ekki hefur borið eins mikið á börnum Ragnhildar og Guð-
rúnar systur hennar. Hún eignaðist þrjár dætur. Elst er Ragn-
hildur Halldórsdóttir (f. 1919), gift Lawrence Skeoch, þekktum
kanadískum prófessor í hagfræði. Næst er Kristín Halldóra
Halldórsdóttir (f.1921) sjúkraþjálfari, gift Þórarni Björnssyni
sem lengi var forstjóri og eigandi Timburverslunar Árna Jóns-
sonar. Hann er bróðir Stefáns Björnssonar sem um langt ára-
bil var forstjóri Sjóvátryggingafélagsins. Yngst er Guðný Ólaf-
ía Halldórsdóttir (f.1923) húsmæðrakennari, gift Teiti Finn-
bogasyni heildsala sem kom allmjög við sögu þjóðernissinna á
kreppuárunum. Hann er í stjórn Sjóvár-Almennra. Halldór
Teitsson (f.1952) sonur þeirra er einn af yfirmönnum Sjóvár-
Almennra.
esson (f. 1955) tölfræðingur, einn af yfirmönnum í Sjóvá-Al
mennum. Sigurður Zoéga (f. 1961) hagfræðingur.
Hinn tvíburinn, Ólöf Benediktsdóttir (f. 1919) menntaskóla-
kennari, er ekkja Páls Björnssonar hafnsögumanns, bróður
Sigríðar, konu Bjarna Benediktssonar. Fyrri maður hennar
var Guðjón Ásgeir Kristinsson skólastjóri. Ólöf hefur nokkuð
látið kveða að sér í félags- og stjórnmálum, var meðal annars í
stjórn Hvatar um árabil og formaður félagsins 1972 til 1976.
Dætur hennar eru Guðrún Guðjónsdóttir (f. 1941) kennari,
gift Hjálmari Júlíussyni skólastjóra og Anna Pálsdóttir (f.
1947) meinatæknir, um skeið bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
á Isafirði. Maður hennar er Pétur Svavarsson tannlæknir.