Heimsmynd - 01.05.1989, Page 49

Heimsmynd - 01.05.1989, Page 49
sýningar með sama sniði og þeir á Metropolitan eða í Hamborg eða Berlín. Okkur dreymir um að hér verði byggð upp þokkaleg útkjálkaópera, með líku sniði og starfa í fjölda smærri borga í Þýskalandi, Ítalíu og á Norðurlöndum.“ Það er víst áreiðanlegt að enginn setti markið hærra. Enda, hvernig átti nokkr- um að geta dottið í hug að ekki yrði lið- inn áratugur áður en farið yrði að tala um að Islendingar þyrftu ekki að fara til útlanda til að sjá fyrsta flokks óperu? Með hverri nýrri sýningu óx flytjendum ásmegin og stórvirkin ráku hvert annað: Töfraflautan 1982, La Travíata 1983, Carmen 1984, II Trovatore 1986, Aida 1987. Sú seinast nefnda vakti mikla hrifningu og ásamt henni var það svo sýningin á Don Giovanni í fyrra sem endanlega rak smiðshöggið á. Allur flutningur var með slíkum ágætum að vandlátustu tónlistarunnendur sperrtu eyrun. I öllum þessum sýningum söng Ólöf Kolbrún stór hlutverk og þótti betri og betri, bæði í leik og söng. En hver er eig- inlega þessi kona og hvaðan er hún upp runnin? Bernskuvinkona segir: „Ólöf Kolbrún er kona sem hægt er að treysta. Raunbetri vin er erfitt að hugsa sér. Um eigin tilfinn- ingar er hún fáorð, en alltaf fús að ræða um tilfinningamál við aðra. Svona var mamma hennar. Þegar ég var krakki finnst mér hún alltaf hafa verið að hugga emnverjar konur sem áttu bágt. Ólöf segir fólki til syndanna ef henni finnst með þurfa, en snobb og yfirborðs- mennska er henni fjarri. Enda er hún enginn skýjabólstrari, heldur hefur báða fætur á jörðunni.“ Ásrún Davíðsdóttir, skrifstofustjóri og kennari við Söngskólann, staðfestir hlut Ólafar í uppbyggingunni þar. „Söngskól- inn var stofnaður haustið 1973 af Garðari Cortes. Ólöf kom þangað sem stunda- kennari 1975 og eftir námsdvöl erlendis varð hún fastakennari 1977. Árið eftir var stofnað styrktarfélag til að standa fyrir kaupum á núverandi húsnæði skól- ans að Hverfisgötu 45 og skömmu síðar Hverfisgötu 44. Það var feikna vinna að safna nægilegu fé, og það voru haldnar miðnæturskemmtanir í Háskólabíói, flóamarkaðir og listakvöld með rithöf- undum og myndlistarmönnum. Þarna var Ólöf bæði pottur og panna og hefur unnið miklu meira en nemur kennara- laununum. Hún er reyndar ekki ein um það, því eins og í Islensku óperunni er samvinnuandinn mikill og góður.“ Sumar söngkonur skjótast eins og flugeldar upp á óperuhimininn, slá í gegn kornungar í stórum hlutverkum. Framhaldið getur verið tvísýnt. Hér á landi voru lengi engin tækifæri, óperur sýndar endrum og eins, svo þrátt fyrir Sex ára byrjaði ég í ballett og tíu ára spilaði ég á gítar á skólaskemmtun þótt ég kynni ekki nema fáein grip. Líklega hef ég verið nokkuð djörf á bernskuárum. Móðir Ólafar, Aðalheiður Jónasdóttir, með börnin í hverfinu á steikjandi heitum sumardegi, einhvern tíma á sjötta áratugnum þegar braggarnir í Langholtinu voru að víkja fyrir nýjum steinhúsum. Á myndinni með kettlingana er ég ellefu ára, nýkomin frá rakaranum og afskaplega óánægð með sjálfa mig. HEIMSMYND 49
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.