Heimsmynd - 01.05.1989, Page 53

Heimsmynd - 01.05.1989, Page 53
þorir að vaða af stað - og svo fylgja aðrir á eftir.“ Þau Garðar hafa sungið saman ótal ástardúetta og það hafa komist á kreik magnaðar kjaftasögur um að eitthvað sé á milli þeirra utan sviðs. En Ólöf vill lít- ið úr því gera. „Við listamenn höfum valið okkur að vera undir smásjá, óvar- in, endalaust milli tannanna á fólki . . . Öll erum við auðvitað breyskar mann- eskjur, það er það skemmtilega við okk- ur. En söngvari í ástarhlutverki verður að læra að hann er að túlka tilfinningar sem aðrir hafa fundið upp. Takmörkin eru skýr. Söngvari þykist gráta, hann grætur ekki í alvöru því þá gæti hann ekki sungið. Sá sem ætlaði að vera í hlut- verkinu utan sviðs, allan sólarhringinn, yrði hreint og beint stórundarlegur.“ I Olöf var innan við tvítugt þegar hún kynntist eiginmanni sínum og tónlistin hefur verið starfs- vettvangur þeirra beggja. „Mað- ur breytist og þroskast og í hjónabandi getur ástin ekki ver- ið á rauðu ljósi allan tímann. Fólk lendir auðvitað í alls konar freistingum og þá getur það ver- ið spurningin um hvort farsælla sé að láta skynsemi ráða á kostnað tilfinninga eða tilfinningar á kostnað skynsemi. Það er engin trygging til fyrir því að hjóna- bönd endist í sjötíu ár, fremur en vina- bönd. Sumir segja að ástæðan fyrir mörgum hjónaskilnuðum nútímans sé allur þessi hraði og streita, og telja það alvarlegt mál. En í gamla daga þraukaði fólk saman þótt það þroskaðist hvort í sína átt. Ég og maðurinn minn erum tvær manneskjur sem stundum syngjum samhljóma tóna, stundum ekki. Við eig- um ekki börn og vinnum hvort að sínu langan dag, en það getur verið gott að hafa einhvern til að spjalla við þegar maður kemur heim til sín seint á nóttu, og ekki sakar að það sé góður vinur, manneskja sem maður virðir og vill styðja og hjálpa.“ Talið berst aftur að hlutverkinu sem hún er að syngja núna, greifafrúnni Rós- ínu í Brúðkaupi Fígarós. „Það gerist á löngu liðnum tímum, í allt öðru þjóðfé- lagi, en við höfum verið að tala um það söngvararnir að við könnumst ágætlega við allar þessar tilfinningar sem verið er að lýsa. Ég hef gaman af greifafrúnni sem elskar sinn breyska mann. Hún tek- ur kvensemi hans ekki sérlega hátíðlega, finnst þetta hálfgerð látalæti, hann sé að þykjast vera sterkari en hann er, kann- ske af því að það er tíska í hans aðals- mannastétt. „Bara að hann vildi leyfa ást okkar að leiða sig á betri vegu,“ and- varpar hún og ásamt þjónustufólkinu leggur hún snörur sem hann flækist í, verður að játa allt og iðrast sár- lega . . .“□
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.