Heimsmynd - 01.05.1989, Page 62
Valmont
greifi
stendur sína
vakt. Hann
umbreytir
hinni
óspjölluðu
kannski ekkert stórvirki en engu að síður
hlýleg, tregablandin og ljúfsár, lítil perla
í anda hinnar fáguðu, bresku kvik-
myndahefðar.
Rjóminn af uppskeru síðasta árs sam-
anstendur af eftirtöldum myndum. Rain
Man eftir Barry Levinson, The Accident-
al Tourist eftir Lawrence Kasdan, Miss-
issippi BurningefUx Alan Parker, Les
Liaisons Dangoreuses eftir Stephen
Frears og Working Girl eftir Mike
Nichols. Hvernig akademíunni tókst að
horfa framhjá The Unbearable Lightness
of Being er ráðgáta en hún fékk þó til-
nefningar í flokk bestu handrita byggð á
öðrum miðli og fyrir kvikmyndatöku
Sven Nykvist.
RAIN MAN
lie bifreið sína, Buick Roadmaster, ár-
gerð 1949. Vonsvikinn og reiður fer
Charlie á fund þessa ókunnuga bróður
síns og verður fyrir öðru áfalli þegar
hann kemst að ásigkomulagi hans. En
um leið sér Charlie möguleika á að ná til
sín „sanngjörnum" hluta af arfinum og
býður bróður sínum í ökuferð yfir
Bandaríkin til vesturstrandarinnar. Á
leiðinni hyggst hann finna ráð til að fé-
fletta bróður sinn en sá björn reynist
ekki auðunninn.
Gagnrýnendur vestra hafa lýst
frammistöðu Hoffmans og Cruise með
fjálglegum orðum, eða eins og einn
þeirra orðaði það: „Hinn skínandi sam-
leikur þeirra Hoffmans og Cruise breytir
Regnmanninum í sólskin.“
mey i
kynhungraða
hefðarkonu.
Dustin Hoffman hefur lýst því yfir að
hans muni helst verða minnst fyrir tvær
persónur. Önnur þeirra er Ratso Rizzo
úr Midnight Cowboy, hin er Raymond
Babbit úr Rain Man. Þetta er auðvitað
mikið lítillæti þegar litið er á leikferil
Hoffmans. (The Graduate, Little Big
Man, Lenny, All the President’s Men,
Marathon Man, Tootsie svo einhverjar
séu nefndar). „Það er ekki til stórkost-
legri tilfinning í mínu starfi en sú að
verða fyrir „upplifun" þegar persónan
sem maður er að skapa nær inn að
hjartarótum,“ segir Hoffman. „Tootsie
fékk mig til dæmis til að gráta og gerir
það enn í dag. Sú reynsla færði mér eitt-
hvað, ég hafði öðlast áður ókunnan
skilning. Hið sama gerðist með Rain
Man. Persónan náði inn. Ég varð fyrir
„upplifun“.“
Sagan er um tvo bræður, Raymond og
Charlie Babbitt (Tom Cruise). Raymond
er innhverfur og hefur
takmarkaða möguleika á að tjá sig
en er um leið snillingur í flóknustu
kúnstum stærðfræðinnar. Charlie
er örgeðja tækifærissinni með
litla siðferðisvitund og bælda
þrá eftir viðurkenningu. Hann
hefur enga hugmynd um
tilveru bróður síns fyrr en faðir
þeirra deyr og arfleiðir
Raymond að þrem milljónum
dala en eftirlætur Char-
Tilurð myndarinnar á sér nokkuð
sögulegan aðdraganda. Ýmsir
leikstjórar hafa komið við sögu
frá því undirbúningur hófst.
Upphaflega átti Martin Brest
(Beverly Hills Cop) að leikstýra
en hann bakkaði út og Steven
Spielberg tók við. Spielberg var
þó ekki lengi inni í myndinni áð-
ur en hann þakkaði pent fyrir sig og
pakkaði saman. Hoffman fékk þá Sidney
Pollack til að halda um stjórnvölinn en
þeir höfðu áður unnið saman að Tootsie.
Pollack reyndi stíft að stýra skútunni,
endurskrifaði handritið og lagði á sig
mikla vinnu en allt kom fyrir ekki, hon-
um tókst ekki að samræma sig hlutverk-
inu. Framleiðendur myndarinnar, Unit-
ed Artists, fóru þá að gerast óþolinmóðir
og um tíma hékk líf myndarinnar á vilja
Hoffmans sjálfs til að sjá hana verða til.
Hin siðprúða Madame de
Tourvel (Michelle Pfeiffer)
leitar ráða hjá frænku sinni,
Madame de Rosemonde
(Mildred Natwick).