Heimsmynd - 01.05.1989, Síða 64
Aðrar
listgreinar
hafa hingað
til viljað
hafa
kvikmyndina
í hœfilegu
tjóðri, eins
og ómálga
barn.
umþykju; unga pakistanska stúlkan í My
Beautiful Laundrette flýr að heiman og
faðir hennar öskrar af sársauka yfir dótt-
urmissinum; ungi Pakistaninn, aðalper-
sóna myndarinnar, og pönkarinn, ást-
maður hans, falla aftur í hvors annars
faðm, án þess að gera sér tálvonir um
framtíðina en þakklátir fyrir það sem
þeir eiga.
Þessi sömu minni koma einnig fyrir í
Les Liaisons Dangereuses, eða eins og
Christopher Hampton (höfundur hand-
ritsins og leikritsins sem Pjóðleikhúsið
sýnir nú um stundir) orðar það: „Aðal-
persónan, Valmont greifi, er atvinnu-
maður í sínu fagi, en eyðilagður vegna
þess að hann leyfir sönnum tilfinningum
að komast að í starfi sínu.“ Tilfinningin
er ást, starfið snýst um svik.
Verkið er byggt á samnefndri skáld-
sögu Choderlos de Laclos frá árinu 1792.
Að beiðni gamallar ástkonu sinnar,
markgreifafrúarinnar de Merteuil
(Glenn Close), fellst Valmont greifi
(John Malkovich) á að draga á tálar
hreinlífa og saklausa verðandi brúði og
dóttur gamals vinar (Uma Thurman) og
ennfremur hina afar guðhræddu eigin-
konu annars vinar, frú de Tourvel
(Michelle Pfeiffer). Að launum á greif-
inn að fá nótt með markgreifafrúnni.
Hún hefur þó aldeilis ekki fyrirgefið
honum vangoldna ást frá fyrri tíð og
hyggst leita hefnda með fláræði. Til að
minna Valmont á hvers hann fer á mis,
'-■nrmt-s-,
■; 7; T,:
■
tekur markgreifafrúin sér fyrir ástmann
hinn óreynda Danceny í stað Valmonts.
[n Valmont greifi stendur sína
vakt. Hann umbreytir hinni
óspjölluðu mey í kynhungraða
hefðarkonu og tælir de Tourvel
með brögðum þeirra tíma þegar
heilindi milli elskenda voru
óskoruð. Um leið gerist tvennt,
Valmont fellur bæði fyrir de
Tourvel og í hina háskalegu
gildru de Merteuil markgreifafrúar.
Hampton kallar söguna „einn allsherj-
ar hrærigraut". Líklega orð að sönnu.
Hún er siðlaus leikur að tilfinningum,
eins andstyggilega rotin og hún er ómót-
stæðilega heillandi.
Stephen Frears stendur með þessari
mynd frammi fyrir inngöngu í deild
hinna dýru kvikmynda. Hann bendir á
að Les Liaisons Dangereuses kosti meiri
peninga en hann hafi nokkru sinni
dreymt um. Myndin var gerð fyrir um 14
milljónir dollara (700 milljónir króna),
sem þykir meðalverð á mælikvarða
Hollywood, en er nokkurn veginn það fé
sem Frears hefur varið til þriggja síðustu
mynda sinna. „Ég vona að myndin, sem
við höfum gert, réttlæti fjárfestinguna,“
segir hann. „Ég vona að hún sé ekki of
dýr.“ Margir hafa hrósað myndinni fyrir
glæsilega umgjörð alveg í takt við tíðar-
andann en sumum finnst hún ekki ná að
snerta áhorfendur tilfinningalega.
THE ACCIDENTAL TOURIST
Einn af athyglisverðustu leikstjórum
okkar tíma, af yngri kynslóðinni, er
Lawrence Kasdan. Án þess að hafa
nokkru sinni stigið fæti í kvikmynda-
skóla hefur hann nú þegar skrifað hand-
ritin að Raiders of the Lost Ark og The
Empire Strikes Back fyrir Spielberg og
Lucas auk fleiri handrita og hefur nú
sent frá sér fjórðu bíómynd sína, The
Accidental Tourist. Myndir hans hafa all-
ar verið hver annarri betri, Body Heat
var snilldarlega uppsett drama í anda
film noir mynda fjórða áratugarins, The
Big Chill var sársaukafullt uppgjör við
vonir og drauma ‘68 kynslóðarinnar og
Silverado var ærslafenginn vestri sem
reyndar hlaut dræma aðsókn og misjöfn
viðbrögð. Þessar myndir hafa skapað
Kasdan nafn sem eins af meisturum
myndmiðilsins. Sjálfur setur hann fyrir-
vara við þennan titil. „Fyrir nokkrum ár-
um var ég viðstaddur þegar Kurosawa
Aðalleikarar í Working Girl, Melanie
Griffith sem leikur slægan einkarltara
og Sigourney Weaver sem leikur
yfirmann hennar en Harrison Ford er í
hlutverki hvítflibba kvennabósans sem
dregur taum einkaritarans.