Heimsmynd - 01.05.1989, Page 98

Heimsmynd - 01.05.1989, Page 98
Hvað er krakk? Krakk, rock, readyrock eða hubba eru aðeins fá heiti sem notuð eru yfir ákveð- ið form á kókaíni sem menn reykja í stað þess að taka í nös eða sprauta í æð. Krakk er búið til með því að blanda saman kókaíni, vatni og bökunarsóda. Við tilbúning krakks brestur í blöndunni og þaðan fær efnið hið upprunalega enska nafn sitt. Við framleiðslu kristall- ast efnið og myndar eins konar hnull- unga sem fíkniefnasalar brjóta niður í litla köggla og selja síðan á fimm til tutt- ugu dollara (250 til 1000 krónur) stykkið. Krakk er reykt í pípum og vindlingum og er allt að 90 prósent hreint kókaín. Ef kókaín er reykt hefur það mun fyrr áhrif á neytandann en ef þess væri neytt á annan hátt. Krakk er aðeins sex til tíu sekúndur að ná til heilans og koma neytandanum í mjög mikla en skammæja vímu sem varir í fimmtán til tuttugu mínútur. Undir áhrifum krakks upp- lifir neytandinn stór- kostlega vellíðan og sjálfsöryggi en þegar víman líður hjá verður hann þung- lyndur, taugaóstyrk- ur og hungrar í meira. Áframhald- andi notkun efnisins er talin valda svefn- leysi, minnkandi matarlyst, örvænt- ingu, hræðslu og óöryggi. Þcssu fylgja oft skap- og hegðun- arörðugleikar og í verstu tilfellum of- skynjanir og sál- fræðilegar truflanir. Leið kókaíns í hendur neytenda Nær allt kókaín, sem smyglað var inn í Bandaríkin á síðasta ári, var framleitt í Kólumbíu. Sérfræðingar yfirvalda segja stórglæpaflokka þar í landi stjórna fíkni- efnastórvel'di er færi þeim ágóða sem nemur alls 110 milljörðum dollara á ári hverju eða sem nemur um fimm þúsund og fimm hundruð milljörðum íslenskra króna. I hálendi Kólumbíu rækta bændur kókalauf og þurrka til að sjá sér og fjöl- skyldum sínum farborða. Bóndi, sem ræktar um fimm hundruð kfló af kóka- laufum, getur selt framleiðslu sína fyrir fimm hundruð dollara (um tuttugu og fimm þúsund íslenskar krónur). Kaup- andinn vinnur kókaín úr kókalaufunum og fær eitt kfló af efninu úr um það bil fimm hundruð kflóum af kókalaufum. Kaupandinn selur því næst smyglara kílóið fyrir sex þúsund dollara (um 300.000 íslenskar krónur). Kókaíni er síðan smyglað í stórum stíl til Bandaríkj- anna með flugvélum, skipum eða bflum. Þar taka vopnaðir dreifingaraðilar við varningnum og borga smyglaranum tólf þúsund dollara (um 600.000 íslenskar krónur) fyrir kflóið. Því næst kaupir fíkniefnasalinn efnið af dreifingaraðilan- um á þrettán þúsund til fimmtán þúsund dollara (um 650.000 til 750.000 íslenskar krónur). Fíkniefnasalinn breytir kókaín- inu í krakk og fær um það vil sex þúsund köggla úr einu kflói af kókaini og selur neytendum hvern köggul á tuttugu doll- ara (um 1.000 íslenskar krónur) og er nú andvirði hvers kflós af kókaíni orðið um eitt hundrað og’tuttugu þúsund dollarar (um sex milljónir íslenskar krónur). Fyrir aðeins fimm árum kostaði eitt kfló af kókaíni fjörutíu þúsund dollara (um tvær milljónir íslenskar krónur) en vegna aukins framboðs á markaðnum í dag hefur verðið lækkað um rúmlega sextíu prósent. (Tölurnar í svigunum eru miðaðar við að gengi dollarans sé fimm- tíu íslenskar krónur.) Dreifing kókaíns í Bandaríkjunum Samkvæmt skýrslu Drug Enforcement Administration (DEA) eru það fjórir meginhópar sem stjórna umferð krakks innan Bandaríkjanna. í fyrsta lagi eru svokallaðir posses sem ættaðir eru frá Jamaica og eru skæðir í Flórída og einnig norðausturríkjunum og hluta miðvestur- ríkjanna. í öðru lagi eru flokkar af Haiti- uppruna sem stjórna markaðnum á aust- urströndinni. Þriðji og fjórði hópurinn eru afsprengi tveggja glæpaflokka í Los Angeles, sem kalla sig Blood og Crips, og eru þeir með eindæmum vel skipu- lagðir og stjórna fíkniefnasölu á vestur- ströndinni. Þeir hafa einnig hafið dreif- ingu í Phoenix, Salt Lake City, Las Veg- as, Seattle, New Orleans, Portland, Sacramento og Tucson. Geysileg samkeppni hefur myndast á hinum yfirfulla markaði og eru ýmsar aðferðir notaðar til að koma varningnum á framfæri. Haiti-flokkarnir selja krakk í aflöngu formi sem þeir kalla franskar kartöflur og í New York hafa yfirvöld komist yfir krakk, innsiglað í plast og stimplað með vöru- merkjum, svo sem Airborne og Sudden impact. ibúðarhverfin vígvöllur krakksalanna Árið 1987 voru eitt hundrað tuttugu og níu morð framin í San Fransiskó og nágrannaborgunum Oakland og Rich- mond. Meira en helmingur morðanna var tengdur fíkniefn- um og flest þeirra framin í fátækra- hverfum borganna. Þrátt fyrir linnu- lausa baráttu og ár- vekni lögreglu og íbúa Oaklands gegn krakki undanfarin tíu ár jókst notkun þess stórlega á síð- asta ári. Handtökur tengdar krakksölu hafa fimmfaldast á tveimur árum og morð tvöfaldast. í San Fransiskó hefur fjöldi starfs- manna í fíkniefnadeild lögreglunnar ver- ið tvöfaldaður í baráttunni gegn krakk- glæpaflokkum. Handtökum hefur fjölg- að úr átta hundruð í fjórtán hundruð á mánuði og þar af hafa handtökur ungl- inga aukist um 243 prósent, úr eitt hundrað áttatíu og fjórum árið 1986 í sex hundruð þrjátíu og tvær árið 1987. Að sögn lögreglunnar í San Fransiskó er ágóði fíkniefnasalanna ótrúlegur, allt að tvö þúsund prósent. Krakksalar geta þénað frá tíu þúsund dollurum (um 500.000 íslenskar krónur) á viku og allt upp í milljónir dollara. Sautján ára drengur, sem handtekinn var í San Fransiskó, er sagður hafa þénað eina milljón dollara (um fimmtíu milljónir ís- Undir áhrifum krakks upplifir neytandinn stórkostlega vellíðan og sjálfsöryggi en þegar víman líður hjá verður hann þunglyndur, taugaóstyrkur og hungrar í meira. 98 HEIMSMYND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.