Heimsmynd - 01.09.1989, Side 12
Þorsteinn Pálsson:
Er slagur framundan?
Aratugur strákanna
Á meðan hugsjónamenn ganga
til liðs við ríkisstjórnina, sem er
fyrsta fjórflokkastjórnin frá
upphafi, kraumar undir
yfirborðinu í Sjálfstœðisfokki.
Gerist hið óvœnta á nœsta
landsfundi?
ratugur strákanna er að líða
undir lok. Ekki er þar með
sagt að miðaldra hugsjóna-
menn eins og Júlíus Sólnes og
Oli Þ. Guðbjartsson séu að
taka við, en á tíunda áratugn-
um má vænta breytts mynsturs
í forystu þjóðarinnar.
Líftími flokksforingja er
væntanlega að styttast. Sé litið til baka
yfir níunda áratuginn sést hver breyting-
in hefur orðið. Horfnir eru af sjónarsvið-
inu Geir Hallgrímsson og Albert Guð-
mundsson, Olafur Jóhannesson og
Gunnar Thoroddsen. Af núverandi for-
ystu er aðeins einn yfir sextugt, Stein-
grímur Hermannsson sem varð forsætis-
ráðherra 1983. Jón Baldvin Hannibals-
son er næstelstur en Þorsteinn Pálsson,
Ólafur Ragnar Grímsson og Davíð
Oddsson borgarstjóri eru aðeins rúmlega
fertugir.
Þessir ungu forystumenn hafa sett svip
sinn á stjórnmálin frá því að ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar tók við völd-
um vorið 1983. Ýmsir höfðu litla trú á
Steingrími og þótti hann ekki líklegur til
stórra verka. Engu að síður hefur þessi
maður náð því að verða einn vinsælasti
leiðtogi þjóðarinnar síðastliðin sjö ár.
Hann hefur verið forsætisráðherra allan
tímann utan eins árs, þegar Þorsteinn
Pálsson var við stjórnvölinn. Hann var
forsætisráðherra þegar þjóðin gekk í
gegnum góðærið fræga, og hann leiddi
hana líka inn í kreppuna. Hann stýrir nú
óvinsælustu ríkisstjórn umliðinna ára-
tuga og margt bendir til að vinsældir
hans meðal þjóðarinnar fari dvínandi.
Þegar Júlíus Sólnes tilkynnti inngöngu
Borgaraflokksins í ríkisstjórn í Hringsjá
Ingimars Ingimarssonar 2. september, í
viðurvist Steingríms Hermannssonar og
Þorsteins Pálssonar, sagði hann að næst
yrði fréttamönnum falin stjórnarmyndun
í beinni útsendingu, og var þá að vísa til
þessarar sigurstundar sinnar og frétta-
tíma fyrir ári þegar Jón Baldvin Hanni-
balsson og Steingrímur Hermannsson
slitu stjórnarsambandi við Sjálfstæðis-
flokk. Þegar ríkisstjórnir eru myndaðar í
lit á skjánum skal engan undra að þjóðin
sé hætt að taka strákana alvarlega.
Allir kunna þeir að hafa eitthvað til
síns ágætis en fólki er löngu orðið ljóst,
að þeir eru skaðræði saman. Þriggja og
nú fjögurra flokka ríkisstjórnir þar sem
ábyrgðinni er vingsað til og frá eru að
leggja íslenskt þjóðlíf í rúst. Þessi þriðja
útgáfa af ríkisstjórn, sem nú er mynduð
frá kosningum 1987, sýnir í hnotskurn
um hvað íslensk stjórnmál snúast. Þau
snúast um stóla, að viðhalda völdum
valdanna vegna. Þannig er þetta ekki
bara áratugur strákanna heldur og ára-
tugur stólanna. Strákarnir vilja halda
stólunum og til að halda stólunum verða
þeir að bæta fleiri strákum við þótt sumir
verði að sætta sig við að standa.
Það lá að vísu vel á Júlíus Sólnes þar
sem hann sat ásamt Steingrími og Þor-
steini í sjónvarpssal. Þetta var stór stund.
Oli Þ. Guðbjartsson hafði víst sleppt að
fara í sumarfrí ef kallið skyldi koma og
Júlíus Sólnes, sem lýsti sér sjálfum sem
stjórnmálamanni áður en hann fór inn á
þing, er nú orðinn hugsjónamaðurinn í
ríkisstjórninni. Fyrir venjulegan þing-
mann í flokki sem hefur ekki lengur fylgi
eru það tímamót að verða ráðherra. Á
slíkum stundum fyllast einstaklingar eld-
móði og tala um hugsjónir. Því fannst
Júlíusi fráleitt hvernig Þorsteinn og
Steingrímur voru að kíta. Hann vissi
ekkert um það frekar en þjóðin að Stein-
grímur og Þorsteinn höfðu rætt þetta
vandræðaástand áður en þátturinn skall
á. Júlíus benti þjóðinni og hinum foringj-
unum á að nú þyrftu þeir að snúa stól-
bökunum saman. Júlíus sættir sig við að
fá ekkert ráðuneyti. Titillinn nægir til að
hann vinni þjóðinni gagn.
Svo spá margir því að þessi hjóna-
bandssæla með Borgaraflokki vari stutt.
En Steingrímsstjórnin lifir væntanlega út
kjörtímabilið þar sem hún hefur ákveðið
að vaða eld og brennistein næstu mán-
12 HEIMSMYND