Heimsmynd - 01.09.1989, Page 39
licholas Nixon er
bandarískur
ljósmyndari, þekktur í
heimalandi sínu og
víðar fyrir
mannamyndir. Hann
vinnur nú að gerð
myndaraða um fólk
með alnæmi. Hér er
sýnd ein slík röð, sótt í
myndabók, Nicholas
Nixon: Pictures of
People, sem
Nútímalistasafnið (The
Museum of Modern
Art) í New York gaf út
1988.
hér verður ekki rakið. Nægir að benda á
að sjúkdómurinn leggst einmitt á varnar-
kerfi líkamans, ónæmiskerfið, sem virkja
þarf við ónæmisaðgerð eða bólusetn-
ingu. Landlæknir Bandaríkjanna (Sur-
geon General) hefur ráðlagt mönnum að
búast ekki við virku bóluefni gegn al-
næmi á þessari öld.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni í
Genf höfðu í júlílok f989 borist skýrslur
um 172 143 tilfelli af alnæmi. Langflestir
sjúklingar hafa verið skráðir í Norður-
Mið- og Suður-Ameríku, eða 116 524,
þar af 98 255 í Bandaríkjunum. Afríka
kemur næst með 30 244 skráð tilfelli, þá
Evrópa með 23 459. í Eyjaálfu hafa
1 510 sjúklingar fundist og 406 í Asíu.
Þessum tölum verður að taka með var-
úð. Þær sýna meðal annars hversu vel er
staðið að heilbrigðisþjónustu og skýrslu-
gerð í ýmsum hlutum heims. í Afríku er
ástandið eflaust mun verra en hér kemur
fram. Heilbrigðismálastofnunin gerir ráð
fyrir að um 375 000 menn hafi sýkst af
alnæmi í heiminum fram til ársloka 1988.
Samkvæmt skýrslu landlæknis höfðu
samtals 53 einstaklingar á Islandi greinst
með HlV-smit fram til 30. júní 1989. Af
þeim höfðu tólf greinst með alnæmi,
lokastig sjúdómsins, og fimm þeirra eru
látnir.
HEIMSMYND 39