Heimsmynd - 01.09.1989, Side 105
Páfadæmið . . .
framhald af bls 56
staðið nokkuð í skugganum af Jóhannesi
út á við á íslandi en hefur engu síður
verið áhrifamikill á sínu sviði og er síst
minna þekktur erlendis. Hann er tón-
skáld og skólastjóri Tónlistarskólans í
Reykjavík, hámenntaður maður, og hef-
ur hróður hans sem tónskálds farið víða
enda hafa verk hans verið flutt austan
hafs sem vestan. Jón lauk prófi í píanó-
leik og tónsmíðum við Tónlistarskólann í
Reykjavík og stundaði síðan framhalds-
nám hjá W. Burkhard í Zurich og enn-
fremur í París og Róm. Þegar hann kom
heim frá námi kom hann með nýja
strauma inn í íslenskt tónlistarlíf og hafði
mikil áhrif á yngri kynslóð tónskálda.
Tónverk hans þykja vönduð og hann
vinnur vel úr hugmyndum sínum en er
ekki afkastamikill sem tónskáld enda
hefur hann verið skólastjóri Tónlistar-
skólans í Reykjavík nú þrjá áratugi og
mun það ærið starf. Skólinn hefur orðið
móðurstofnun fyrir allt tónlistarlíf lands-
ins undir stjórn Jóns og nánast stórveldi
á íslenskan mælikvarða.
Flest tónverk Jóns eru samin fyrir
hljómsveit og meðal þeirra helstu eru
Sinfonietta seriosa (1956), Píanókonsert
(1956), Brotaspil (1962), Adagio (1965),
Stiklur (1970), Leiðsla (1973), Tvísöngur
(1979), Choralis (1982) og Sellókonsert
(1983). Svo mikils álits nýtur Jón Nordal
erlendis að fyrir fáeinum árum var hann
kjörinn félagi Konunglegu sænsku aka-
demíunnar en þann heiður veita Svíar
aðeins fáum útlendingum. Mesta viður-
kenningu hlaut hann þó ef til vill árið
1982 þegar snillingurinn Mstislav Rostr-
opowich fól honum að semja verk sem
flutt yrði undir hans stjórn í tengslum við
norrænu menningarkynninguna Scand-
inavia Today. Þetta var Choralis sem
frumflutt var undir stjórn Rostropowich
í Washington í nóvember þetta ár en síð-
an endurtekið að viðstöddum höfundi í
Carnegie Hall í New York. Inn í verkið
var ofið brotum út gömlum íslenskum
þjóðlögum, einkum Liljulagi, og luku
gagnrýnendur í Bandaríkjunum miklu
lofsorði á það.
Rögnvaldur Sigurjónsson píanóleikari,
samstarfsmaður og vinur Jóns, segir
hann eitt af albestu tónskáldum landsins
og hann hafi haft mikil áhrif á öllum
sviðum tónlistar. í viðkynningu sé hann
einstæður persónuleiki og afskaplega
heillandi. Þar kippir honum í hið nor-
dælska kyn en ekki mun hann þó vera
allra svo sem sumir móðurfrændur hans.
Mörg erfið úrlausnarefni koma jafnan
upp í jafn stórum skóla og Tónlistarskól-
anum í Reykjavík en fátt mun koma Jóni
úr jafnvægi og þykir hann hafa gott lag á
að jafna ágreiningsmál.
Kona hans er Solveig, dóttir annars
stórmeistara í íslenskum fræðum. Faðir
hennar var Jón Helgason prófessor og
skáld í Kaupmannahöfn. Börn þeirra eru
Hjálmur Nordal viðskiptafræðingur, gift-
ur Svövu Árnadóttur, Olöf Nordal
myndlistarkona og Sigurður Nordal
nemi. |-|
Annaud ...
framhald af bls 62
ógnvekjandi hann gat verið og hversu lít-
ils við máttum okkar ef hann reyndi afl
sitt.
Er Annaud var spurður hvort hann
væri trúaður svaraði hann:
„ Nei. Trúarbrögð koma ekki heim og
saman við þá þekkingu sem menn búa
yfir nú til dags og hafa öðlast í aldanna
rás. Að trúa á guð er eins og að reyna að
gefa náttúrunni sál. Fólk lítur á náttúr-
una eins og mann. Ég neita ekki að til
eru kraftar í náttúrunni ef þeir eru kall-
aðir guð þá trúi ég á guð. Við verðum að
Veljum Islenska
úrvalssokka í skólann!
tricc
Kalmannsvöllum 3
300 Akranesi.
Sími: 93 -12930