Heimsmynd - 15.01.1990, Page 13

Heimsmynd - 15.01.1990, Page 13
eftir ÓLAF HANNIBALSSON Þeir voru frumherjar, eldhugar sem lögðu út í ævintýri sem engan óraði fyrir að tækist. Þeir gerðu draum sinn að veru- leika með því að stofna sjónvarpsstöð, fyrstu einkastöðina á íslandi, stöð sem varð stórveldi, áhrifamikill fjölmiðill með 45 þúsund áskrifendur. Jón Óttar, sonur Ragnars í Smára, var tæplega fertugur doktor í matvælafræði, menntaður í Banda- ríkjunum, dósent við háskólann og þegar þekktur fyrir skrif sín í fjölmiðla og þætti í sjónvarpi. Minna hafði farið fyrir Hans Kristjáni Árnasyni sem var rétt yngri, viðskiptafræðing- ur og menntaður erlendis. Hann hafði áður verið hátt settur hjá Sambandinu en þá snúið sér að öðrum starfa áður en Stöð 2 varð að veruleika. Þótt fáir tryðu því að þetta tækist fór fyrsta útsending þeirra fram á sama tíma og heimssögulegur viðburður átti sér stað á Islandi með leiðtoga- fundinum. Jón Óttar Ragnars- son sat fyrir framan skjáinn, tilbúinn að flytja sitt fyrsta ávarp sem sjónvarpsstjóri hinn- ar nýju stöðvar. Útsendingin klikkaði, Jón Óttar bærði var- irnar en ekkert hljóð heyrðist. Á eftir sagði Páll Magnússon að fall væri fararheill. Þeir höfðu keypt einn vinsælasta fréttamann ríkissjónvarpsins og gert hann að fréttastjóra. I kjölfarið áttu þeir eftir að kaupa fleiri þaðan, yfirbjóða og sigra risann í ýmsum smáor- ustum. Ein þeirra var frétta- tengdi þátturinn 19:19 og dag- skrárstjóri ríkissjónvarps sendi þeim heillaskeyti. Þetta var eitthvað sem ríkissjónvarpið hafði alltaf dreymt um að gera en aldrei hrundið af stað. Sam- keppnin bætti ríkissjónvarpið. Fyrsta árið leið og í viðskiptalífinu veltu menn því fyrir sér hvort Stöð 2 væri gullnáma. Annað árið leið og öll þjóðin fylgdist með. Jón Óttar Ragnarsson var orðinn household- name, ástamál hans og glæsilegra samstarfskvenna voru á hvers manns vörum. Fá voru þau samkvæmi, þjóðhöfðingja- veislur eða frumsýningar að forkólfar Stöðvarinnar væru ekki mættir. Umsvif þeirra uxu með degi hverjum sem og áhrif. Helstu menn þjóðarinnar heiðruðu einkasamkvæmi Jóns Ótt- ars, forsætisráðherra, seðlabankastjóri og borgarstjóri. Á þriðja ári fór að brydda á fjárhagsþrengingum Stöðvar- innar í almennri umræðu. Auðvitað voru menn í viðskiptalíf- inu sem fylgdust með ævintýrinu allan tímann, tilbúnir að stökkva á bráðina og helst þegar hún væri að niðurlotum kom- in. Slyngir peningamenn sem þóttust geta rekið fyrirtækið bet- ur þótt þeir gerðu sér á sama tíma grein fyrir því að það væri ekki á allra færi að stofna sjónvarpsstöð. Þegar kom fram á haust 1989 fóru hlutirnir að gerast hraðar og með meiri spennu en í nokkrum Dallasþætti. Sala hlutabréfa og væntanlegir kaupendur voru orðin að æsi- spennandi framhaldssögu í blöðunum síðustu vikur ársins 1989. Um líkt leyti er Jón Ótt- ar sæmdur heiðurstitlinum Markaðsmaður ársins á Norð- urlöndum. í viðtali við frétta- mann Sjónvarps sagði hann að þetta sýndi að Stöð 2 væri komin til að vera - enginn ver- aldlegur né andlegur máttur gæti grandað Stöðinni. Nokkrum vikum síðar situr Jón Óttar Ragnarsson heima hjá sér í íbúð sinni við Skafta- hlíð og blákaldur veruleikinn blasir við. Þegar hann fer upp á Krókháls þann sama dag mæta honum nýir eigendur. Stöðin er ekki lengur hans. Frumherjamir eru tómhentir, svo að segja eignalausir og framtíð þeirra óviss. Væri þetta ekki á íslandi væru aðrar sjónvarpsstöðvar jafnvel búnar að bjóða í þá - en á íslandi er erfitt að falla úr háum söðli. Hið ævintýralega fyrirtæki þeirra er nú komið í annarra hendur. Ár glæstra sigra, spennu og leiks eru að baki. Skulda- staða stöðvarinnar er hrikaleg en gætu þeir hafa bjargað mál- um með því að kippa í taumana fyrr? Er saga frumherjanna Jóns Óttars Ragnarssonar og Flans Kristjáns Árnasonar mannleg tragedía eða var þetta farsi frá upphafi til enda? Og hver verður framtíð Stöðvar 2 í höndum nýrra eigenda af allt öðrum bakgrunni en frumherjanna? Jón Óttar Ragnarsson sjónvarpsstjóri í desember 1989, Markaösmaður ársins á Norðuriöndum og skömmu síðar búinn að missa öll ítök í Stöð 2. HEIMSMYND 13

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.