Heimsmynd - 15.01.1990, Blaðsíða 27
STOÐ 2 SACAN OLL
Guðjón Arngrímsson fréttamaður, einn þeirra sem fóru
af Stöðinni.
Stund milli stríða. Fréttastjórinn ásamt fréttamönnunum Þóri Guðmundssyni og Helga
Péturssyni.
Fréttir Stöðvar 2 náðu að ögra fréttum ríkissjónvarps.
binda ákveðin fyrirmæli í lög. Þessari málsgrein var breytt
þannig á alþingi síðastliðinn vetur: „ Bankaráð setur og að
fenginni umsögn bankastjórnar almennar reglur um lánveit-
ingar og ábyrgðir bankans, þar með um hámark lána til ein-
stakra lántakenda og tryggingar fyrir lánum. Reglur þessar
skal endurskoða eigi sjaldnar en árlega og skulu þær sendar
bankaeftirlitinu. sem láta skal í té álit á þeim hverju sinni“.
Þórður taldi sér hins vegar óheimilt að láta í té upplýsingar
um almennar útlánareglur einstakra banka. Aðspurður um
hvernig fjölmiðlar ættu að rækja upplýsingaskyldur sínar við
almenning, ef almennar leikreglur í viðskiptalífinu teldust ým-
ist ríkisleyndarmál eða einkamál stofnana, tók hann sér nokk-
urn frest til að kanna málið betur. Að því loknu kvað hann
upp úr með það, að þetta væri óheimilt. Spurður um hvort
hann teldi að Verslunarbankinn hafi brotið þær reglur sem
hann hafi sett sér, sagði hann að síðustu misserin hefði ekki
verið lögð sama áhersla á eftirlit með útlánastefnu þeirra
banka, sem að sameiningunni í Islandsbanka stæðu eins og
öðrum útlánastofnunum, enda aðdragandinn að sameining-
unni langur og öllum kunnur. Hins vegar lægju nú útlánaregl-
ur íslandsbanka fyrir og yrði að sjálfsögðu kannað við stofnun
hans, hvort aðildarbankarnir hefðu fylgt öllum lagaskyldum
sínum við samrunann.
HEIMSMYND hefur kannað það eftir öðrum leiðum innan
bankakerfisins að gamla lagareglan og meginregla ríkisbank-
anna sé að lán og skuldbindingar vegna einstaks viðskiptaað-
ila fari ekki yfir 33 prósent af eigin fé bankans eins og það er
skráð í árslok undanfarandi árs. Eigin fé Verslunarbankans
var 660 milljónir í árslok 1988. Samkvæmt áðurgreindri reglu
nema því tæpra 400 milljón króna lán Verslunarbankans um
66 prósent af eigin fé hans og þar við bætast einhverjar
Stöðvarmenn buðu talsmönnum ráðhenans að reka
hvem þann fréttamann, sem hann kysi - nöfn
Elínar Hirst og Ólafs Friðrikssonar vom nefnd - en
menn létu eins og þau orð væm ósögð.
ábyrgðir að auki. Eigið fé bankans kann að hafa aukist veru-
lega á síðastliðnu ári - viðmælendur okkar nefndu 900 til þús-
und milljónir - en samt getur þetta hlutfall vart hafa verið
undir 45 prósent í árslok 1989. Viðskiptin við Stöð 2 hafa því
ekki stefnt Verslunarbankanum í viðlíka hættu og Hafskip
stefndi Utvegsbankanum í, en eigi að síður töldu viðmælendur
okkar lítinn vafa leika á að reglur hafi verið brotnar - einn
þeirra var reyndar á því að sú væri einnig skoðun Þórðar Ól-
framhald á bls. 93
HEIMSMYND 27