Heimsmynd - 15.01.1990, Side 30
SIEMENS-gæð/
STÓRGLÆSILEG NÝ
ÞVOTTAVÉL FRÁ SIEMENS!
ENN Á NÝ RYÐUR SIEMENS BRAUTINA í
ÞRÓUN OG HÖNNUN HEIMILISTÆKJA
í þetta skiptið með nýrri þvottavél sem slegið hefur í gegn og mun vafalaust verða öðrum þvottavéla-
framleiðendum fyrirmynd, því að hér er á ferðinni sannkölluð tímamótavél í hönnun og notkun tölvu-
stýribúnaðar, sem býður upp á nýja og betri þvottaaðferð en áður hefur þekkst.
Mikil fjölbreytni í þvottakerfum, þeytivinding í áföngum og þrír mismunandi vinduhraðar skapa nánast
óendanlegt svigrúm fyrir allan þvott, sérhvert óhreinindastig hans og þann hámarkshita sem hann þolir.
Meö hagkvæmnisnerli er ákveöið hvort nota á veniuleat
kerfi. léttkerfi, hraðkerfi eöa orkusparnaðarkerfi. Þetta
gildir jafnt fyrir suöuþvott, mislitan þvott, straufrían þvott
og ullarþvott. Þannig er t.d. hægt aö þvo 2,5 kg af lítið
óhreinum þvotti á 30 mínútum.
Með því að þrýsta á einn eða fleiri af fjórum valhnöppum
vélarinnar er hægt að laga þvottakerfin enn betur að sér-
kennum þess þvottar sem þveginn er.
■ Með skolstöðvunarhnaopi er þvotturinn skilinn eftir í
seinasta skolvatni án þeytivindingar.
■ Með vatnsborðshnappi er vélin látin taka inn á sig
meira vatn en venjulega, t.d. þegar gluggatjöld eru
þvegin.
■ Með fínaanashnappi eru kyrrstöðutímar tromlunnar
lengdir og veltitímar styttir að sama skapi.
■ Með valhnappi fvrir hraða bevtivindu er valið hvort
þeytivinda á með 1200, 900 eða 600 snúningum á mín-
útu.
Sjðlfvirkur magnskynjari skammtar rétt vatnsmagn
inn á vélina í samræmi við gerð og magn þvottarins.
Þannig er sparnaðarhnappur (1/2-hnappur) óþarfur því
að vélin sér sjálfkrafa um að þvottaárangur verði sem
bestur sama hver hleðslan er.
Sérþróuð þvottatromla með þremur áföstum vatns-
hripum fullnýtir þvottalöginn sem
liggur á milli tromlu og belgs vél-
arinnar. Vatnshripin flytja þvotta-
löginn stöðugt upp á við og lekur
hann síðan ofan á þvottinn.
Vegna þess blotnar þvotturinn
jafnt á öllum hliðum.
í heimi þar sem mengun er daglegt brauð leggur
SIEMENS áherslu á að framleiða sparneytnar þvotta-
vélar sem fullnýta þvottaefni, vatn og orku. Fyrirtækið hef-
ur fjögur eftirfarandi markorð ávallt að leiðarljósi við hönn-
un og framleiðslu á vörum sínum: gæði, áreiðanleiki,
ending og notagildi.
SIWAWAT PLUS 4200 uppfyllir allar ítrustu kröfur og
óskir sem gerðar eru til þvottavéla nú á dögum. Hún er
mjög þægileg í notkun með aðgengilegt, upplýst
stjórnborð. (tarlegur leiðarvísir á íslensku og greinargóð
tafla yfir öll möguleg þvottakerfi vélarinnar fylgja með.
Þær miklu gæðakröfur sem gerðar voru við þróun hennar
og framleiðslu tryggja auk þess auðvelt viðhald og langa
endingu.
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 ■ SÍMI 28300