Heimsmynd - 15.01.1990, Side 31
sýnir að hann er feiminn en karmað
hans bendir til þess að hann sé að upp-
skera mikinn árangur frá iðju sinni í
fyrri lífum.“
James Braha er 38 ára, af gyðinga-
ættum, fráskilinn og bamlaus, búsettur
í Flórída. Hann nam stjömuspeki á
Indlandi og hafði þá um árabil kennt
hugleiðslu í anda Maharishi sem hann
lærði hjá í Sviss á áttunda áratugnum.
„Ég var tuttugu og sjö ára þegar ég
fór fyrst að velta stjörnuspeki fyrir
mér. Þá bjó ég í Boston ásamt eigin-
konu minni sem var leikkona. Einn
daginn kom hún heim og sagðist hafa
hitt konu sem túlkaði stjörnukort af
mikilli snilld. Ég fór og hitti þessa
konu en hafði þá um árabil verið á kafi
í hugleiðslu og dulspeki. Ég greiddi
konunni sextíu dollara fyrir tveggja
tíma lestur sem hún
byggði alfarið á af-
stöðu stjamanna við
fæðingu mína. Af
mikilli nákvæmni
lýsti hún fyrir mér
persónulegri upplif-
un minni, allslags
sálarflækjum og
kringumstæðum
bemsku minnar með
þeim afleiðingum að
ég starði á hana.
Hún las þetta af
blaði með ótal
merkingum og tákn-
um af reynslu og
þekkingu en ekki
eins og hún væri
skyggn að lesa hug
minn. Hún lýsti
feimni minni og erf-
iðu sambandi mínu við móður mína frá
upphafi. Hún sagði mér að undanfarna
mánuði hefði ég verið að ganga í gegn-
um erfitt tímabil en á lífsafstöðu minni
yrðu miklar breytingar á komandi
mánuðum. Hún sá fyrir þjáningu og
jafnvel breytingar á hjónabandinu.
Nokkrum mánuðum síðar eða í jan-
úar 1980 kom Anna konan mín heim
og sagðist vera ástfangin af leikstjóran-
um sínum. Vikumar í kjölfarið voru
hinar einkennilegustu í lífi mínu. Með
hugleiðslunni og nýrri vitneskju
stjörnuspekinnar upplifði ég dýpri
skilning, kraft og ást en ég hafði áður
gert. Ég ákvað að leita til frægs
stjörnuspekings, Isabel Hickey, sem er
að auki mjög dulræn og höfundur eins
af grunnritum í vestrænni stjörnuspeki.
Auðvitað hafði ég mínar efasemdir um
gildi stjörnuspekinnar. Þegar hún hafði
litið á kortið sagði hún strax: Almátt-
ugur, Uranus er kominn í sjöunda hús.
Þú hefur enga stjórn á þessu lengur og
verður að leyfa konunni þinni að fara.
Hún leit á kort konunnar minnar og
sagði að samband hennar við hinn
manninn myndi ekki endast, Anna
kæmi aftur að sex mánuðum liðnum og
þá væri framhald hjónabandsins undir
mér komið. Hún sagði einnig að á
þeim tíma yrði sálarástand mitt orðið
allt annað.
Isabel Hickey sagði mér að komandi
ár yrði mikil andleg upplifun fyrir mig.
Hún sagði mér að nýjar vitundarvíddir
myndu opnast fyrir mér og ég hlustaði
af ákafa. Með hugleiðslunni undanfar-
in ár hafði ég eðli málsins samkvæmt
stefnt að uppljómun, sem er hámark
andlegs þroska, en slíkt er takmark
allra sem stunda íhugun af alvöru og
auðvitað ná því fæstir í þessari jarðvist.
Á árunum milli 1970 og 1980 fór ég
nokkrum sinnum til Sviss á námskeið á
vegum Maharishi og hafði stundað
hatha-jóga árum saman samfara fá-
brotnum lifnaðarháttum.
Hjá Isabel Hickey kynntist ég í fyrsta
sinn alvöru stjörnuspeki. Hvorki þá né
nú hefur mér fundist akkur í að fá
sönnun fyrir því að stjörnurnar hafi
áhrif á líf fólks. Það sem er mikilvægast
er að góðir stjörnuspekingar geti leið-
beint fólki með upplýsingum um af-
stöðu plánetanna í fæðingarkorti þess.
Annaðhvort skilur maður mál stjarn-
anna eða ekki. Fólk segir stundum að
það trúi eða trúi ekki á stjörnuspeki og
það er stjörnuspekingum að kenna.
Stjörnuspekin hefur verið notuð um
langan aldur án þess að ná almennri
lýðhylli.
Isabel Hickey benti mér á bækur
um dulspeki áður en ég kvaddi
hana. Ég hafði kynnst mörgu dul-
rænu fólki, gúrúum og öðrum, en
kynni mín af þessari konu ollu
kaflaskiptum í lífi mínu. Ég fór
að lesa bækur ætlaðar stjörnu-
spekingum og notaði mitt eigið
kort til samanburðar. Smátt og smátt
fór ég að skoða kort vina og vanda-
manna og mér miðaði fljótt áfram. Af-
staða stjarnanna í lífi mínu á þessu
tímabili olli því og sterkt innsæi sem á
sér ef til vill aðrar orsakir. Ég sótti
námskeið hjá þekktum stjörnuspeking-
um, þar á meðal Isabel Hickey. Ég
æfði mig á því að lesa úr stjörnukortum
fólks og lét það vita að ég styddist að
miklu leyti við bækur og væri bytjandi.
Þannig lærði ég líka. Einhver atvik í
upphafi ferlis míns þegar vinir leituðu
ráða út frá kortum sínum reyndust hár-
rétt og hlægilega nákvæm. Það styrkti
mig í trúnni að ég væri á réttri leið.
Isabel Hickey hafði spáð því að
Anna kæmi aftur til mín að sex mán-
uðum liðnum. Þegar fór að líða að
þeim tíma fór ég að efast um að
Hickey reyndist sannspá. Eitt kvöldið
grandskoðaði ég fæðingarkort Önnu en
sá engin merki þess að hún væri á leið-
inni til mín. Eftir það lagðist ég til
hvílu og í svefninum fékk ég þau skila-
boð að athuga áhrif bogmannsins.
Þetta var eitt af dulrænu atvikunum
sem ég upplifði á þessu tímabili. Ég
vaknaði og leit aftur á fæðingarkort
Önnu og komst að nýjum niður-
stöðum. Þarna voru vísbendingar um
erfiðleika á heimavígstöðvum. Ég
hafði hvorki séð hana né heyrt síðan
við skildum sex mánuðum áður. En viti
menn, fyrstu vikuna í ágúst kemur lítill
miði inn um dyralúguna. Anna vildi
ræða málin. Spá Isabel Hickey var að
rætast. Enda kom á daginn að Anna
vildi taka upp þráðinn aftur og eins og
Hickey hafði séð fyrir var ég orðinn
breyttur maður. Ándleg hugðarefni
sátu í fyrirrúmi en Anna var leikkona
og ekki tilbúin að lifa því lífi sem fyrir
mér lá.“
Hann fór sína fyrstu ferð til Indlands
árið 1980, staðráðinn í að læra allt um
austræna stjörnuspeki hindúa. Ólíkt
vestrænni stjörnuspeki, sem gerir ráð
fyrir frjálsum vilja, segja hindúar að ör-
lög manns séu skráð í stjörnurnar.
Hindúatrú gengur einnig út frá karma
og endurfæðingu þar sem lögmálið er
að kringumstæður manns séu afleiðing-
ar athafna í fyrri lífum. Þetta karma-
lögmál á sér einnig rætur í samfélags-
mynstri hindúa þar sem menn fæðast
inn í ákveðið hlutskipti og eiga enga
möguleika á því að flytja sig á milli
• MARYLIN MONROE VAR ÆTLAÐ LANGT LÍF
• JOHN F. KENNEDY VAR MYRTUR AF VINUM SÍNUM
• JOHN LENNON VAR í LÍFSHÆTTU EN HEFÐI GETAÐ FORÐAÐ SÉR
• JOHNSON VAR LYGARI
• FRÆGT FÓLK HEFUR GOTT KARMA
• LÍKAMLEG FEGURÐ HEFUR KOSTAÐ MIKLA VINNU í FYRRI LÍFUM
• ÖLL GÖMUL KERFI RIÐA NÚ TIL FALLS
• 1993 ER GOTT ÁR í ÍSLANDSSÖGUNNI
• EKKERT HLUTSKIPTI ER TILKOMIÐ FYRIR SLYSNI
• VIÐ FÆÐINGU ER SAGAN SÖGÐ
HEIMSMYND 31