Heimsmynd - 15.01.1990, Blaðsíða 32
Benares við Gangesfljótið
þar sem lík eru brennd.
R. Santhanam,
fyrsti kennari Braha í
stjörnuspeki hindúa.
P.M. Padia,
kennari
Braha í
Bombay
(ljósmynd:
Porsteinn
Porgeirsson)
laga í samfélaginu nema það sé skráð í
stjörnurnar. Peir sem fæðast í lágstétt
eyða lífi sínu þar nema annað sé skráð
í stjörnurnar. Persónulegt atgervi dugir
ekki eitt sér til að brjóta mönnum leið
út úr þeim farvegi sem þeir fæðast í.
Þessu er alveg öfugt farið í vestrænni
stjörnuspeki. Þar er sú forsenda lögð til
grundvallar að persónuleikinn sem
skráður er í stjörnurnar ráði ferðinni
að miklu leyti og afstaða plánetanna í
kortinu segi til um möguleikana og
þannig geti einstaklingur breytt nei-
kvæðum þáttum í lífi sínu út frá vitn-
eskju í kortinu. Hindúa-stjörnuspekin
lítur hins vegar svo á að flest sé óum-
flýjanlegt, skráð í stjörnurnar, gott og
vont. Hindúa-stjörnuspekingar geta
sumir sagt nákvæmlega fyrir um það
hve mörg börn maður eignast, hversu
lengi maður lifir og fleira í þeim dúr.
Þessi fræði eru orðin sex þúsund ára
gömul. Túlkun kortsins er hins vegar
æði flókin og þar ræður hæfni stjörnu-
spekingsins mestu um. Eitthvað virðist
augljóst í fyrstu en við nánari athugun
getur útkoman orðið öll önnur. Báðar
aðferðirnar hafa nokkuð til síns ágætis
og því kýs ég að nota þær samtímis.
Indverska stjörnukortið er kallað
chakra og er dregið upp í ferhyrninga.
Fyrsti stjörnuspekingurinn sem varð á
vegi mínum á Indlandi í janúar 1980 út-
bjó chakra úr vestræna kortinu mínu.
Hann lýsti lífi mínu undanfarna áratugi
af mikilli nákvæmni. Hann sagði að á
árunum 1973 til 1980 hefði ég verið
mjög andlega sinnaður en frá 1980 tæki
við tímabil veraldlegs frama sem myndi
vara til ársins 1998. Þarna var Rakesh,
en svo hét maðurinn, að nota tækni
hindúa í að skipta stjörnukortinu niður
í tímabil, dasa. tímabil í lífi manns sem
stjórnast af ákveðnum tengslum ríkj-
andi himintungla við afstöðu plánet-
anna á fæðingarkorti manns. Arið 1980
tók Rahu-tímabiliö við í lífi mínu.
Rahu varir í átján ár og er nær undan-
tekningarlaust erfitt tímabil þar sem
einstaklingar eru oft sviptir hugarró.
Rahu tímabilið byrjar oft eða endar á
erfiðleikum eins og ástvinamissi. Þarna
var ég nýskilinn og faðir minn nýlátinn.
Dasatímabilin eru alltaf í sömu röð,
fólk getur fæðst inn í mitt tímabil og
veltur það á stöðu tungls við fæðingu
en tímabilin koma í þessari röð: Sól í
sex ár, Tungl í tíu ár, Mars í sjö ár,
Rahu í átján ár, Júpíter í sextán ár,
Satúrnus í nítján ár, Merkúr í sautján
ár, Ketu í sjö ár og Venus í tuttugu ár.
Dasatímabilin sjálf skiptast síðan í und-
irflokka, bhukti, þar sem aðrar plánet-
ur hafa áhrif.“
Hann hafði leitað til fjölmargra
stjörnuspekinga þegar hann loks datt
niður á mann í Delhi sem var tilbúinn
að kenna honum stjörnuspeki hindúa.
„Rangachari Santhanam var 35 ára en
leit út fyrir að vera rúmlega tvítugur.
Hann sagði mig þurfa sex vikur í námi
hjá sér til að komast inn í grunnfræðin.
Hann hafði þýtt mörg verk í fræðunum
og naut mikillar virðingar. Á næstu
vikum opnaðist nýr heimur fyrir mér.
Ég sannfærðist þarna um mátt örlaga
yfir frjálsum vilja og kynntist því
hvernig flókin tækni stjörnuspekinnar
getur séð þetta fyrir við fæðingu bams.
Santhanam hóf nám mitt á því að
kenna mér að reikna út svokölluð sex-
tán undirkort sem nefnd eru varga og
byggja á fæðingarkortinu. Eitt þeirra
heitir saptamsha og segir fyrir um börn
manns. Annað er turyamsha og segir
fyrir um menntun og enn eitt dasamsha
og segir fyrir um störf á lífsleiðinni.
Einn liður í námi mínu var að grand-
skoða fæðingarkort vina og vanda-
manna sem Santhanam kenndi mér að
túlka upp á nýtt. í heimspeki hind-
úanna er lífinu skipt upp í fjögur svið;
dharma (tilgangur og skyldur), artha
(auðlegð), kama (þrár) og moksha
(hugljómun og æðri vitund). Stjörnu-
kortið byggir á mörgum þáttum en af-
staða plánetanna og innbyrðis tengsl
skipta mestu máli sem og staðsetning
þeirra í svonefndum húsum sem eru
tólf í hverju korti. Plánetumar tákna
ákveðna hluti sem og húsin sjálf. Hvert
hús er fulltrúi fyrir marga þætti en
lífssviðin fjögur tengjast hvert um sig
þremur húsum. Þannig er dharma
tengt fyrsta, fimmta og níunda húsi
(eld-húsunum), artha er í öðru, sjötta
og tíunda húsi (jarðar-húsunum), kama
er í þriðja, sjöunda og ellefta (loft-hús-
unum) og moksha er í fjórða, áttunda
og tólfta húsi (vatns-húsunum).
Hindu-stjörnuspekin virkar
ótrúlega vel. Ég varð nærri
óttasleginn eftir því sem
leið á nám mitt hve ná-
kvæm og einföld hún er. Ég
býst við því að þannig sé
farið um alla vestræna
menn. Þeim er meinilla við
þá tilhugsun að örlög þeirra séu skráð í
stjörnurnar og kjósa að trúa á frjálsan
vilja einstaklings til breytinga. Fyrir
hindúum eru þessi óumflýjanlegu örlög
hluti af allri þeirra heimsmynd um
karma og endurfæðingu.“
James Braha forðast að blanda um
of almennri hindúatrú við stjörnuspek-
ina. Um örlagatrúna segir hann að viti
fólk hvað er yfirvofandi geti það undir-
búið sig þó svo hið erfiða tímabil sé
óumflýjanlegt. Rétt eins og þegar veð-
urspáin segir að það rigni grípi fólk
regnhlíf. Samkvæmt hindúisma fer þró-
un sálanna í gegnum mörg stig. Steinar
eru fyrsta stig, síðan kemur grasið, þá
grænmetið, dýrin og síðan fullkomnari
dýr eins og kýrnar á Indlandi sem ekki
má drepa því það brenglar lífkeðjuna
en í hindúatrú eru kýrnar heilagar og
væntanlegir bramínar í næsta lífi.
Grundvöllur karma-lögmálsins. um að
góðar gjörðir eða slæmar hitti mann
fyrir í næstu tilveru, leiðir af sér það
markmið að menn sækjast eftir hug-