Heimsmynd - 15.01.1990, Síða 35
A special section
on global affairs prepared for
Heimsmynd
TheWorldPaper
Hetjusaga Silviu Brucan
egar Silviu Brucan, aðstoðarritstjóri World-
Paper fyrir Austur-Evrópu síðustu 11 árin,
braust út úr stofufangelsi á heimili sínu í fæð-
ingarborg sinni Búkarest, uppgötvaði hann að hann var
staddur í sjálfri skjálftamiðju þeirra þjóðfélagshamfara
sem skóku Rúmeníu.
Brucan hafði um langt skeið verið trúr og virtur fé-
lagi í Kommúnistaflokki Rúmeníu og komið víða við á
ferli sínum sem hagfræðingur, blaðamaður, diplómat,
stjórnvísindamaður og stjórnvitringur. Nú er hann í
innsta hring Þjóðbjörgunarnefndarinnar sem gerir sitt
besta til að grafa fortíðina, glíma við nútíðina og undir-
búa frjálsar kosningar í apríl.
Með glöggskyggni sinni, raunsæi og hugrekki getur
Brucan staðið sem persónugervingur hinnar skyndilegu
og þrautseigu byltingarhreyfingar sem ætt hefur yfir
lönd Mið-Evrópu. Hann hefur, að svo miklu leyti sem
nokkur einstaklingur hefur getað, lifað hinar pólitísku
hugsjónir, blekkingar og tálvonir sem hafa legið í tím-
anum.
Brucan gerðist kommúnisti á dögum hersetu nasista í
Rúmeníu, var meðal stofnenda flokksmálgagnsins,
Scinteia, og þjónaði að lokum landi sínu sem sendiherra
í Bandaríkjunum og hjá Samcinuðu þjóðunum. Smátt
og smátt lukust augu hans upp fyrir mis-
brestunum í því kerfi sem hann þjón-
aði og gereyðandi stórmennsku-
brjálæði forseta þess, Nicolais
Ceausescu. Varfærnisleg gagn-
rýni Brucans snerist upp í
beina fordæmingu 1987, þeg-
ar hann studdi opinber-
lega uppþot rúm-
enskra verka-
rnanna í
Brasov. Fyrir ári átti hann upptök að mótmælaskjali sem
afhent var forsetanum. Hann var tvívegis settur í stofu-
fangelsi, en slapp við verri örlög fyrst og fremst vegna
þess álits sem hann naut meðal erlendra fjölmiðla.
Fjórum dögum fyrir jól hurfu öryggisverðirnir
skyndilega frá sveitasetrinu, sem Brucan kallaði svo, í
útjaðri Búkarest, þar sem honum, konu hans og dóttur
hafði verið haldið án samskiptamöguleika við umheim-
inn í sex mánuði. Brucan gekk út og fékk far með bíl
niður í miðborgina til liðsinnis við þá sem þegar höfðu
hafið baráttuna fyrir falli Ceausescus.
Silviu Brucan átti grein strax í fyrsta hefti The
WorldPaper. í samræmi við þá ritstjórnarstefnu okkar
að kynna lesendum heiminn með því að leiða fram
raddir þátttakenda í lífsbaráttunni
hverju sinni, hefur hann greint - og
séð fyrir - þá upplausn kommún-
istahreyfingarinnar, sem hann
var hluti af, með ótali greina. Nú
við áramótin birtist í Financial
Times í London uppsláttargrein
um Brucan undir fyrirsögninni
„Rödd hinnar nýju Rúmeníu“.
Það er með stolti sem við
gerum þá forspáu inn-
sýn í framvindu at-
burða, sem þessi
„rödd Rúmen(u“
hefur áður birt á
síðum blaðs okkar,
að þungamiðju
umfjöllunar okk-
ar á byltingunni í
Rúmeníu.
Crocker Snow jr.
adalritstjóri.
HEIMSMYND 35