Heimsmynd - 15.01.1990, Blaðsíða 45
Dragt sem fer
milliveginn árið 1987
frá Comme des
Garcons.
ves Saint Laurent reið á vaðið með
styttri pilsfaldi á sýningu árið 1983. f>á
sýndi hann einnig kvöldklæðnað sem
var svo þröngur að klauf upp á mið læri var á
öllum pilsum svo unnt væri að hreyfa sig.
Fatnaðurinn varð stöðugt aðskomari. Kjólar í
ætt við leikfimiboli urðu vinsælir úr teygjuefni
sem sýndi hverja sveigju líkamans.
Hinn smávaxni Norður-Afríkubúi Azzed-
ine Alaia náði heilmiklum vinsældum um
miðbik áratugarins með framleiðslu þröngra
kjóla úr teygjuefni sem virtust beina athygl-
inni að búknum en undirstrikuðu betur en allt
annað lengd fótleggjanna. í kjölfarið hóf hin
bandaríska Donna Karan framleiðslu á bolum
sem voru nærföt um leið, eins konar leikfimi-
bolur undir pilsi eða buxum.
Alaia notaði mikla herðapúða við að-
skornu, stuttu kjólana með þeim afleiðingum
að vaxtarlagið virtist stöðugt mjókka niður,
enda var svarta söngkonan, hin hávaxna
Grace Jones, ein af uppáhaldsfyrirsætum
hans. Við stuttu pilsin notaði hann þröngar
svartar teygjubuxur og lág stígvél með háum Gullkeðjur og
hælum. Svartar sokkabuxur urðu nauðsynja- glannoleg Útgáfa af
vara upp frá því sem og svartar gammósíur. Chanel 1986.
Slíkar gammósíur voru notaðar við stórar og
víðar peysur eða jakka, pils og kjóla með hlé-
barðamynstri, tjullpils og téboli.
Blöðrustíllinn í
útfærslu Gianni
Versace 1986.
ískan á níunda áratugnum var veru-
lega ólík þeirri sem einkennt hafði ár-
in á milli 1970 og 1980. Á þeim árum
voru konur leitandi að tísku sem hæfði lífsstíl
meðvitaðrar nútímakonu hverrar eigin þarfir
sætu í fyrirrúmi. Ef konur klæddu sig ekki
lengur aðallega til að ganga í augun á karl-
mönnum, hvernig áttu þær þá að klæða sig?
Svarið kom úr austrinu árið 1981; framúr-
stefnulegur fatnaður í svörtu, sniðinn eftir
japönskum brotamynstrum úr þægilegum og
vönduðum efnum. Þetta var fremur aftur-
hvarf til hefðbundinna sveitaþæginda en and-
svar við ríkjandi tísku og konur rigsuðu um í
víðum fatnaði frá Issey Miyake og Yohji
Yamamoto.
Giorgio Armani að
degi sem kveldi 1986.