Heimsmynd - 15.01.1990, Side 57
faðir Jóns ráðherra 02
sonur Rebekku Jónsdótt
ur.
Jón Sigurðsson ráðherra,
eiginkona hans Laufey Þorbjörnsdóttir og
börn þeirra.
Kristjana Pétursdóttir^
atvinnuveganna. Dóttir hans var Sigurlaug Þórisdóttir (f.
1932), kona Sveins Jónssonar prentara.
f. Sigurður Guðmundsson (1897-1956). Hann fékk það hlut-
verk að læra bakaraiðn og veita forstöðu brauðgerð Bökunar-
félagsins sem faðir hans hafði stofnað. Hann tók líka virkan
þátt í stjórnmálum og var bæjarfulltrúi á ísafirði um skeið.
Kona hans var Kristín Guðjóna Guðmundsdóttir. Synir þeirra
voru 1. Þórir Sigurðsson (f.1939), stærðfræðikennari við
Menntaskólann á Akureyri. 2. Jón Sigurðsson (f. 1941) við-
skiptaráðherra. Jón hefur um langt árabil verið ein helsta
stjarna íslenskra efnahagsmála og gegnt mörgum virðulegum
embættum. Hann varð forstjóri Þjóðhagsstofnunar aðeins 33
ára gamall. hefur setið í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins í Washington og verið stjórnarformaður Norræna
fjárfestingarbankans. Fjölmörg rit og ritgerðir liggja eftir hann
og hann þykir skrifa og tala ljósar um efnahagsmál en flestir
aðrir hagfræðingar. Hann og Jón Baldvin Hannibalsson voru
saman í sveit í Ögri við ísafjarðardjúp og það var Jón Baldvin
sem fékk þennan æskuvin sinn til að fara út í stjórnmál. Mörg-
um hefur hann þótt of mikill embættismaður til þess að vera
góður stjórnmálamaður en honum er illa í ætt skotið ef það
sannast á hann. 3. Guðmundur Sigurðsson (f. 1942), læknir á
Egilsstöðum.
g. Þorlákur Guðmundsson (f. 1899), togaraskipstjóri í Bost-
on.
h. Unnur Guðmundsdóttir (1900-1976), kona Bjarna Guð-
mundar Asgeirssonar, verkamanns í Reykjavík. Dóttir þeirra
er Ásgerður Bjarnadóttir (f. 1929) bankamaður.
i. Þóra Guðmundsdóttir (1901-1935), yfirhjúkrunarkona á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.
j. Ása Guðmundsdóttir (1906-1968), bankagjaldkeri í
Reykjavík.
BÆJARFÓGETINN Á AKUREYRI
7. Steingrímur Jónsson (1867-1956) var enn einn Gautlanda-
bróðirinn og fetaði hann í fótspor Kristjáns dómstjóra, bróður
síns. Hann lauk embættisprófi í lögum frá Kaupmannahafnar-
skóla og var sýslumaður Þingeyinga 1897 til 1920 og síðan bæj-
arfógeti á Akureyri 1920 til 1934. Eins og hann átti kyn til tók
hann þátt í uppbyggingu samvinnuhreyfingarinnar, var í stjórn
Kaupfélags Þingeyinga í 20 ár og einn af stofnendum SÍS og
formaður þess 1905 til 1910. Þá var hann konungkjörinn al-
þingismaður 1906 til 1916 og bæjarfulltrúi á Akureyri 1923 til
1929. Heimildum ber saman um að hann hafi verið grandvar
og virðulegur embættismaður af gamla skólanum en frjáls-
lyndur og eindreginn lýðræðissinni. Kona hans var Guðný
Jónsdóttir frá Grænavatni. Börn þeirra:
a. Þóra Hólmfríður Steingrímsdóttir (1897-1982), kona Páls
Einarssonar, kaupmanns og sýsluskrifara á Akureyri. Börn
þeirra: 1. Guðný Pálsdóttir (f. 1924), kona Þórodds Jónas-
sonar héraðslæknis. 2. Einar Pálsson (f. 1926), læknir í Sví-
þjóð. 3. Steingrímur Pálsson (f. 1927), starfsmaður fjármála-
ráðuneytis. 4. María Pálsdóttir (f. 1928), kona Jóns Árna
Jónssonar, menntaskólakennara á Akureyri. 5. Sólveig Páls-
dóttir (f. 1930), kona Jóhanns Ævars Jakobssonar, málara-
meistara á Akureyri.
b. Jón Steingrímsson (1900-1961), sýslumaður Snæfellinga
1930 til 1937 og Borgfirðinga 1937 til 1961. Kona hans var Ka-
rítas Guðmundsdóttir. Börn þeirra: 1. Benta Margrét Jónsdótt-
ir (f. 1925), kona Valgarðs Briem hæstaréttarlögmanns. 2.
Guðný Jónsdóttir (f. 1927), gift í Bandaríkjunum. 3. Stein-
grímur Jónsson (f. 1929) flugvélavirki, fyrri kona hans var
Inga Birna Jónsdóttir sem um skeið var varaþingmaður Sam-
taka frjálslyndra og vinstrimanna. 4. Kristín Sólveig Jónsdóttir
(f. 1933), kona Ólafs Arnar Arnarsonar læknis.
c. Sólveig Guðný Steingrímsdóttir (1902-1948)
d. Kristján Pétur Steingrímsson (1909-1972). Hann var sýslu-
maður Snæfellinga 1940 til 1949 og bæjarfógeti í Neskaupstað
1949 til 1953, síðast starfsmaður ríkisendurskoðanda í Reykja-
vík. Kona hans var Gunda Imsland. Börn þeirra: 1. Pétur
Gautur Kristjánsson (f. 1934) lögfræðingur. Hann var bæjar-
fógetafulltrúi á Siglufirði og í Vestmannaeyjum og síðar kenn-
ari í Keflavík, ákaflega litríkur einstaklingur sem vakti þjóð-
arathygli í spurningakeppni í útvarpinu fyrir mörgum árum
þar sem hann gat svarað ótrúlegustu spurningum. 2. Stein-
grímur Gautur Kristjánsson (f. 1937) héraðsdómari í Hafnar-
firði. 3. Sólveig Kristjánsdóttir (f. 1941), kona Kristins Þórs
Bjarnasonar bankaritara. 4. Sjöfn Kristjánsdóttir (f. 1942) BA,
skjalavörður á Landsbókasafni, gift Jóni Eiríkssyni, doktor í
jarðfræði. 5. Guðný Stefanía Kristjánsdóttir (f. 1945) frum-
tæknir, gift Sigurði Björnssyni lækni. 6. Þórunn Helga Kristj-
ánsdóttir (f. 1947), gift Vigfúsi Guðmundssyni, lyfjafræðingi á
Húsavík.
TVÍBURASYSTKININ
8. Þorlákur Jónsson (1870-1898) var áttunda Gautlanda-
systkinið. Hann var alinn upp á Bessastöðum hjá Jakobínu,
móðursystur sinni, og manni hennar Grími Thomsen en dó í
Kaupmannahöfn þar sem hann stundaði málfræðinám.
framhald á bls. 90
HEIMSMYND 57