Heimsmynd - 15.01.1990, Síða 57

Heimsmynd - 15.01.1990, Síða 57
faðir Jóns ráðherra 02 sonur Rebekku Jónsdótt ur. Jón Sigurðsson ráðherra, eiginkona hans Laufey Þorbjörnsdóttir og börn þeirra. Kristjana Pétursdóttir^ atvinnuveganna. Dóttir hans var Sigurlaug Þórisdóttir (f. 1932), kona Sveins Jónssonar prentara. f. Sigurður Guðmundsson (1897-1956). Hann fékk það hlut- verk að læra bakaraiðn og veita forstöðu brauðgerð Bökunar- félagsins sem faðir hans hafði stofnað. Hann tók líka virkan þátt í stjórnmálum og var bæjarfulltrúi á ísafirði um skeið. Kona hans var Kristín Guðjóna Guðmundsdóttir. Synir þeirra voru 1. Þórir Sigurðsson (f.1939), stærðfræðikennari við Menntaskólann á Akureyri. 2. Jón Sigurðsson (f. 1941) við- skiptaráðherra. Jón hefur um langt árabil verið ein helsta stjarna íslenskra efnahagsmála og gegnt mörgum virðulegum embættum. Hann varð forstjóri Þjóðhagsstofnunar aðeins 33 ára gamall. hefur setið í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins í Washington og verið stjórnarformaður Norræna fjárfestingarbankans. Fjölmörg rit og ritgerðir liggja eftir hann og hann þykir skrifa og tala ljósar um efnahagsmál en flestir aðrir hagfræðingar. Hann og Jón Baldvin Hannibalsson voru saman í sveit í Ögri við ísafjarðardjúp og það var Jón Baldvin sem fékk þennan æskuvin sinn til að fara út í stjórnmál. Mörg- um hefur hann þótt of mikill embættismaður til þess að vera góður stjórnmálamaður en honum er illa í ætt skotið ef það sannast á hann. 3. Guðmundur Sigurðsson (f. 1942), læknir á Egilsstöðum. g. Þorlákur Guðmundsson (f. 1899), togaraskipstjóri í Bost- on. h. Unnur Guðmundsdóttir (1900-1976), kona Bjarna Guð- mundar Asgeirssonar, verkamanns í Reykjavík. Dóttir þeirra er Ásgerður Bjarnadóttir (f. 1929) bankamaður. i. Þóra Guðmundsdóttir (1901-1935), yfirhjúkrunarkona á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. j. Ása Guðmundsdóttir (1906-1968), bankagjaldkeri í Reykjavík. BÆJARFÓGETINN Á AKUREYRI 7. Steingrímur Jónsson (1867-1956) var enn einn Gautlanda- bróðirinn og fetaði hann í fótspor Kristjáns dómstjóra, bróður síns. Hann lauk embættisprófi í lögum frá Kaupmannahafnar- skóla og var sýslumaður Þingeyinga 1897 til 1920 og síðan bæj- arfógeti á Akureyri 1920 til 1934. Eins og hann átti kyn til tók hann þátt í uppbyggingu samvinnuhreyfingarinnar, var í stjórn Kaupfélags Þingeyinga í 20 ár og einn af stofnendum SÍS og formaður þess 1905 til 1910. Þá var hann konungkjörinn al- þingismaður 1906 til 1916 og bæjarfulltrúi á Akureyri 1923 til 1929. Heimildum ber saman um að hann hafi verið grandvar og virðulegur embættismaður af gamla skólanum en frjáls- lyndur og eindreginn lýðræðissinni. Kona hans var Guðný Jónsdóttir frá Grænavatni. Börn þeirra: a. Þóra Hólmfríður Steingrímsdóttir (1897-1982), kona Páls Einarssonar, kaupmanns og sýsluskrifara á Akureyri. Börn þeirra: 1. Guðný Pálsdóttir (f. 1924), kona Þórodds Jónas- sonar héraðslæknis. 2. Einar Pálsson (f. 1926), læknir í Sví- þjóð. 3. Steingrímur Pálsson (f. 1927), starfsmaður fjármála- ráðuneytis. 4. María Pálsdóttir (f. 1928), kona Jóns Árna Jónssonar, menntaskólakennara á Akureyri. 5. Sólveig Páls- dóttir (f. 1930), kona Jóhanns Ævars Jakobssonar, málara- meistara á Akureyri. b. Jón Steingrímsson (1900-1961), sýslumaður Snæfellinga 1930 til 1937 og Borgfirðinga 1937 til 1961. Kona hans var Ka- rítas Guðmundsdóttir. Börn þeirra: 1. Benta Margrét Jónsdótt- ir (f. 1925), kona Valgarðs Briem hæstaréttarlögmanns. 2. Guðný Jónsdóttir (f. 1927), gift í Bandaríkjunum. 3. Stein- grímur Jónsson (f. 1929) flugvélavirki, fyrri kona hans var Inga Birna Jónsdóttir sem um skeið var varaþingmaður Sam- taka frjálslyndra og vinstrimanna. 4. Kristín Sólveig Jónsdóttir (f. 1933), kona Ólafs Arnar Arnarsonar læknis. c. Sólveig Guðný Steingrímsdóttir (1902-1948) d. Kristján Pétur Steingrímsson (1909-1972). Hann var sýslu- maður Snæfellinga 1940 til 1949 og bæjarfógeti í Neskaupstað 1949 til 1953, síðast starfsmaður ríkisendurskoðanda í Reykja- vík. Kona hans var Gunda Imsland. Börn þeirra: 1. Pétur Gautur Kristjánsson (f. 1934) lögfræðingur. Hann var bæjar- fógetafulltrúi á Siglufirði og í Vestmannaeyjum og síðar kenn- ari í Keflavík, ákaflega litríkur einstaklingur sem vakti þjóð- arathygli í spurningakeppni í útvarpinu fyrir mörgum árum þar sem hann gat svarað ótrúlegustu spurningum. 2. Stein- grímur Gautur Kristjánsson (f. 1937) héraðsdómari í Hafnar- firði. 3. Sólveig Kristjánsdóttir (f. 1941), kona Kristins Þórs Bjarnasonar bankaritara. 4. Sjöfn Kristjánsdóttir (f. 1942) BA, skjalavörður á Landsbókasafni, gift Jóni Eiríkssyni, doktor í jarðfræði. 5. Guðný Stefanía Kristjánsdóttir (f. 1945) frum- tæknir, gift Sigurði Björnssyni lækni. 6. Þórunn Helga Kristj- ánsdóttir (f. 1947), gift Vigfúsi Guðmundssyni, lyfjafræðingi á Húsavík. TVÍBURASYSTKININ 8. Þorlákur Jónsson (1870-1898) var áttunda Gautlanda- systkinið. Hann var alinn upp á Bessastöðum hjá Jakobínu, móðursystur sinni, og manni hennar Grími Thomsen en dó í Kaupmannahöfn þar sem hann stundaði málfræðinám. framhald á bls. 90 HEIMSMYND 57
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.