Heimsmynd - 15.01.1990, Page 61

Heimsmynd - 15.01.1990, Page 61
> Síðar slæður sem drógust eftir gólfinu voru oft notaðar við siffonkjólana. Blúnduefni voru einnig notuð þegar stjarnan var í hlutverki mjúku og brot- hættu konunnar en flauel, sérstaklega svart, fyrir konur í hlutverkum sterkra persónuleika eins og Vivien Leigh í A hverfanda hveli. Snið flauelskjólanna voru einföld en blóm voru stundum notuð til skrauts með flauelinu. Hönnun Hollywood-búninganna var mikil nákvæmnisvinna. Þær stjörnur sem enn lifa í hugum fólks voru ekki endilega þær auðveldustu fyrir hönn- uðina. Mary Pickford, stjarna þöglu myndanna, var mjög smávaxin og mik- ill vandi að hanna búninga hennar svo vel færi. Sumar þeirra sem þóttu bera fötin hvað best urðu ekki vinsælustu eða eftirminnilegustu stjörnur hvíta tjaldsins. Ein þeirra hét Virginia Bruce. Vöxtur hennar og eðlislæg til- finning til að bera fötin dugðu ekki til að skapa henni nafn. Hún þótti svo fögur að myndavélin næði ekki að festa dásamlegt hörund hennar á filmu, að sögn samtímamanna, en fáir muna eftir henni nú. Joan Crawford, ein skærasta stjarna gullaldaráranna, var í miklu uppáhaldi hjá búninga- hönnuðunum. Hún hefur fræg- ustu axlir frá þessum tíma en hönnun Adrian á kjólum sem sýndu fallega herðalínu Crawford hafði áhrif á tísku- þróunina á þessum árum. Hún var í kjólum með berum öxlum sem og kjól- um með miklum herðapúðum eða píf- um út frá öxlunum. Stundum þurftu hönnuðir að leggja Ein fegursta stjarna fjórða áratugarins, Virginia Bruce, í kjól með afgerandi axlalínu árið 1935. Jean Harlow i Chma Seas 1935 í kjól með silkikögri og antíknælu úr silfri en hönnuðir notuðu skartgripi og fylgihluti af gætni. Glenda Farrell i perluskreyttum kjól með silfurref árið 1933. Carole Lombard i flauelskjól 1935. meiri áherslu á baksvipinn en að fram- an og fræg urðu þá verulega flegin snið, allt niður í mitti. Sumt af þessum fatnaði er í svo sígildum sniðum vegna ótta hönnuðanna við að fylgja tískunni um of og búningar yrðu of gamaldags fljótt. Kjólarnir máttu vera opnir niður að mittislínu í bakinu og það var ekki fyrr en í lok sjötta áratugarins sem kjóll varð flegnari í bakið á hvíta tjaldinu. Pað var kjóll Marilyn Monroe í Some Like It Hot. Ástæða þess að kjólar voru oftar í dökkum litum en ljósum er sú að hvítt gerir konuna stærri og meiri á mynd. Undantekningin frá þessari reglu var hin fagra Dolores Del Rio, dökk fegurðardís og þekkt stjarna á þessum árum. Kyntáknið Mae West var þekkt fyrir kjóla sem voru bryddaðir skinnfaldi. Þetta var hennar stfll sem fáar aðrar stjörnur gátu leikið eftir. Stundaglas- vöxtur hennar var ekki beinlínis í tísku þar sem konur áttu helst að vera flat- brjósta með grannar mjaðmir. Mae West ýtti undir áhrif vaxtalags síns í stað þess að draga úr því og er mörgum minnisstæð fyrir vikið. Þegar fór að líða á fjórða áratuginn breyttust kjólasniðin og víð pils komust í tísku. Stjörnurnar breyttu margar um hárgreiðslu og fóru að greiða hárið upp. Að mörgu þurfti að huga við hönn- unina. Engin smáatriði máttu trufla heildarsvipinn á mynd. Ginger Rogers, sem þótti afar fallega vaxin, enda dans- ari, átti til að pirra hönnuði með því að lauma aðskotahlutum, blómum eða skartgripum, á búninga sína. Passa þurfti upp á að síðkjólarnir væru ein- faldir ef atriðin voru tekin við kvöld- verðarboð. Og kjólarnir máttu ekki yf- Bette Davis með áherslu á baksvipinn 1936.

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.