Heimsmynd - 15.01.1990, Qupperneq 90
mjög pennafær. „Ég var meðvitaður
um þetta en um leið gapandi af undr-
un. Bókin kom út þegar ég var 36 ára
og fékk frábæra dóma. Þetta var fyrsta
bókin á Vesturlöndum, sem skrifuð var
á skiljanlegu og skýru máli, um
stjörnuspeki hindúa.“
Önnur bók James Braha kom út á
síðasta ári og er ætluð almenningi til
skilnings á fyrirbærunum austræn og
vestræn stjörnuspeki. Hann er þeirrar
skoðunar að jarðarbúar séu á krossgöt-
um þar sem stjörnu- og dulspeki eigi
meira erindi en nokkru sinni fyrr. „Við
Ufum nú á öld vatnsberans. Pessi nýja
öld er gerólík öld fiskanna sem varði í
tvö þúsund ár og einkenndist af blindri
trú. Nýja öldin er öld upplýsingar og
æðri þekkingar, friðar, jafnvægis og
jafnvel andlegrar uppljómunar.
Stjörnuspekin hefur náð mikilli út-
breiðslu á undraverðum tíma og fólk er
opnara fyrir dulspeki en nokkru sinni
fyrr. Gömul kerfi hrynja eins og við
höfum orðið vitni að á undanförnum
mánuðum. Konur sækja inn á svið
karla og fólk leitar inn á ný hugmynda-
svið. Einstaklingar skynja einnig þessar
miklu breytingar - þeirra innri kerfi
eru líka mörg að hrynja.“
Aður en James yfirgaf landið í lok
janúar og hélt áleiðis til sólarinnar á
heimaslóðum í Flórída dró hann upp
hindúa-kort fyrir lýðveldið ísland.
„Undanfarin tvö ár hafa verið íslend-
ingum afar erfið. Og það hefur verið
mikill þrýstingur innan ríkisstjórnar-
innar. Það léttir til núna í mars, apríl
og maí en ekki að fullu fyrr en í nóv-
ember næsta haust og árið 1991 verður
auðveldara. Tímabílið frá júh' f990 til
ágúst 1991 verður sérlega hagstætt í
tengslum við útlönd. Það er eins og ís-
lendingum berist hjálp að utan. í öllu
falli eru tengsl við erlend ríki góð.
Samkvæmt stjömukorti lýðveldisins
eru íslendingar heimspekilega sinnað-
ir, greindir og gæddir áhuga á öllu dul-
rænu. Stjórnkerfið er hins vegar stirt
og afturhaldssamt þótt innan þess rúm-
ist einnig væntumþykja í garð þjóðar-
innar. Um mitt ár 1992 verða breyting-
ar hér sem styrkja stöðu landsins fram
til ársins 1993 og er það gott tímabil í
íslandssögunni. En árið 1993 eiga sér
stað miklar breytingar á alþjóðavett-
vangi sem íslendingar fara ekki var-
hluta af. Þetta verður byltingakennt
ástand sem varir í tólf ár og verður tími
mikilla hreinsana á þessari jarðkúlu.
Undanfari þessara breytinga er þeg-
ar orðinn, ekki bara í Austur-Evrópu
heldur hér og annars staðar sem og í
persónulegu Iífi einstaklinga. Öll göm-
ul kerfi, sem ekki eru af hinu góða,
riða til falls.“D
Gautarnir. . .
framhald af bls. 57
9. Krístjana Jónsdóttir (1870-1908)
var tvíburasystir Þorláks. Hún var gift
Helga Sveinssyni sem var bankastjóri
við Islandsbanka á Isafirði á árunum
1904 til 1922. Hann tók virkan þátt í
stjórnmálum á Isafirði, sat þar í bæjar-
stjórn og lét bindindismál mikið til sín
taka eins og svili hans, séra Guðmund-
ur frá Gufudal. Hann var talinn ákafa-
maður, flugmælskur, hvass í ádeilu og
rökvís. Síðar fluttist hann til Reykja-
víkur og stundaði þar fasteignasölu.
Börn þeirra Kristjönu voru þessi:
a. Guðný Helgadóttir (f. 1897), gift
Brynjólfi Jóhannessyni, hinum þjóð-
kunna leikara hjá Leikfélagi Reykja-
víkur og bankaritara í Utvegsbankan-
um. Börn þeirra voru: 1. Kristjana
Brynjólfsdóttir (f. 1923), gift Bjarna
Björnssyni, forstjóra í Dúki hf. í
Reykjavík (meðal barna þeirra er
Brynjólfur Bjarnason (f. 1946) hag-
fræðingur, forstjóri Granda hf.). 2.
Anna Pálína Brynjólfsdóttir (f. 1927),
gift Sigfúsi Daðasyni skáldi. 3. Helga
Brynjólfsdóttir (f. 1931), kona Hrafns
Tuliníusar, prófessors í læknisfræði,
(meðal barna þeirra er Þór Tuliníus (f.
1959) leikari). 4. Birgir Brynjólfsson (f.
1933), leikari og sölumaður.
NÚ GETUR ÞÚ BORGAD
RAFNIAGNS- 0G
HITAVEITUREIKNINGINN
MED BODGREWSIUM SAMKORTS
Hafðu samband við skrifstofur Rafmagnsveitu Reykjavíkur
og Hitaveitu Reykjavíkur.
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
SUÐURLANDSBRAUT 34 SÍMI 68 62 22
ff HITAVEITA REYKJAVIKUR
GRENSÁSVEGI 1, SÍMI 600100
(I
90 HEIMSMYND