Heimsmynd - 15.01.1990, Qupperneq 91
b. Guðrún Helgadóttir (1899-1986),
kona Gunnars Viðars, hagfræðings og
bankastjóra. Böm þeirra eru 1. Einar
Viðar (1927-1984) hæstaréttarlögmað-
ur. 2. Margrét Viðar (1929-1963), kona
Jóns Hannessonar læknis. 3. Óttar Við-
ar (f. 1930), bóndi á Geirbjarnarstöð-
um í Köldukinn.
c. Sólveig Helgadóttir (1901-1986),
kona Aðalsteins Friðfinnssonar, versl-
unarmanns í Reykjavík. Börn þeirra: 1.
Gunnar Aðalsteinsson (f. 1933) vél-
stjóri. 2. Ragnar Aðalsteinsson (f.
1935), hæstaréttarlögmaður í Reykja-
vík, einn af virtustu lögfræðingum
landsins. 3. Unnur Aðalsteinsdóttir (f.
1940) skrifstofumaður, kona Ólafs
Friðfinnssonar sölustjóra. 4. Ása Að-
alsteinsdóttir (f. 1941) hjúkrunarfræð-
ingur, kona Guðjóns Guðmundssonar
byggingarverkfræðings.
d. Margrét Helgadóttir (f. 1903),
skrifstofumaður hjá Slippfélaginu.
e. Þorlákur Helgason (1904-1982),
verkfræðingur hjá Vita- og hafnarmála-
stjórn. Böm hans: 1. Þyrí Þorláksdóttir
(f. 1934), ekkja James R. Myers, sölu-
stjóra í Bandaríkjunum. 2. Nanna Þor-
láksdóttir (f. 1935), kona Hjartar
Torfasonar hæstaréttarlögmanns sem
hefur verið stjórnarformaður Járn-
blendifélagsins og einnig komið við
sögu hjá íslenska álfélaginu. 3. Helgi
Þorláksson (f. 1945) sagnfræðingur,
sambýliskona hans er Helga Kress
bókmenntafræðingur (sjá HEIMS-
MYND, nóv. 1989). 4. Ragnheiður
Þorláksdóttir (f. 1948), framkvæmda-
stjóri Sögufélagsins í Reykjavík.
f. Helga Helgadóttir (f. 1906), kona
Eiríks Einarssonar, arkitekts í Reykja-
vík. Böm þeirra: 1. Kristín Eiríksdóttir
(f. 1938) bankaritari, kona Sigurðar
Pálmars Gíslasonar viðskiptafræðings.
2. Margrét Helga Eiríksdóttir (f. 1942),
gift Emi Isebarn húsasmið. 3. Einar
Eiríksson (f. 1944) framkvæmdastjóri.
4. Helgi Eiríksson (f. 1951) vélstjóri.
g. Nanna Helgadóttir (f. 1907), gift
Anker C. Ohlson, yfirforingja í sjóher
Dana.
h. Sveinn Helgason (1908-1967), stór-
kaupmaður í Reykjavík. Sonur hans er
Árni Bergþór Sveinsson (f. 1939),
framkvæmdastjóri í Reykjavík.
FORSÆTISRÁÐHERRA AF
LAUNDÓTTURINNI
Eins og áður er getið voru launbörn
Jóns Sigurðssonar á Gautlöndum tvö.
Þau voru:
10. Sigrún Jónsdóttir (1870-1929),
kona Steinþórs Björnssonar bónda og
steinsmiðs í Álftagerði og á Litlu-
strönd. Hann var oddviti sveitar sinnar
og lét til sín taka í kaupfélagsmálum
Þingeyinga, eins og mágar hans, var
bæði endurskoðandi og deildarstjóri
Kaupfélags Þingeyinga. Börn þeirra
voru þessi:
a. Steingrímur Steinþórsson (1893-
1966) forsætisráðherra. Hann var bú-
fræðingur að mennt og skólastjóri
Bændaskólans á Hólum 1928 til 1935 er
hann var skipaður búnaðarmálastjóri.
Steingrímur var alþingismaður Skag-
firðinga fyrir Framsóknarflokkinn með
hléum á árunum 1931 til 1959. Hann
var forsætisráðherra 1950 til 1953 og
landbúnaðarráðherra 1953 til 1956.
Steingrímur var mikill persónuleiki og
áhrifamikill stjórnmálamaður eins og
frændur hans margir og var einn af
mótendum íslenskrar landbúnaðar-
stefnu um áratugaskeið. Kona hans var
Theódóra Sigurðardóttir. Böm hans
voru: 1. Steinþór Steingrímsson (f.
1929) hljómlistar- og myndlistarmaður
(meðal barna hans er Hrefna Stein-
þórsdóttir (f. 1949), kona Þorsteins
Jónssonar ættfræðings, forstjóra út-
gáfufyrirtækisins Lífs og sögu). 2.
Hreinn Steingrímsson (f. 1930) tónvís-
indamaður. 3. Sigurður Örn Stein-
grímsson (f.1932), guðfræðingur og
tónvísindamaður (meðal barna hans
kunsfe
RAKARA-S HARGREIÐSLUSTOFA
HVERFISGOTU 52 101 REYKJAVIK SIMI 13314
Vagn, Haukur, Símon, Fausto, Ómar.
Anna, Þuríður, Snjólaug, Hrafnhildur.
HEIMSMYND 91