Heimsmynd - 01.11.1990, Page 46
HANS KRISTJÁN ÁRNASON SANNUR
SANNIR
Skilin vfiilli kynhlutverka karla og
kvenna hafa óneitanlega orðið œ
óljósari síðustu tvo til þrjá
áratugina. Með hinni títtnefndu ’68
kynslóð komu nýjar og áður óþekktar
áherslur og gildi. Jafnrétti og
bræðralag var fyrsta boðorð þessarar
byltingar og allar skilgreiningar sem
byggðu á hefðbundinni
hlutverkaskiptingu gerðar útlœgar.
Konur voru menn. En vilja konur
vera menn? Þessi spurning tók að
ágerast eftir því sem
kvennahreyfingum óx fiskur um
hrygg á áttunda og níunda
áratugnum. Með uppakynslóð
níunda áratugarins urðu skilin milli
karl- og kvenímyndar skarpari og
ungir jakkafataklœddir menn tóku að
bjóða konum út í rómantíska
eftir LAUFEYJU ELÍSABETU LÖVE
g er ægilega gamaldags," segir Hans Kristján Árna-
/J son, viðskiptafræðingur og einn af stofnendum
Stöðvar tvö. „Allar þessar gömlu siðvenjur eru í mín-
um augum mjög mikilvægar. Ég er alinn upp þannig
og þó að ég hlaupi á mig stöku sinnum þá held ég að mér sé
óhætt að segja að þessar gömlu kurteisis- og umgengnis-
venjur séu mér í blóð bornar.“ Það dylst heldur engum að
hér fer séntilmaður af gamla skólanum sem myndi ekki
hika eina stund við að standa upp fyrir konu. Hans Kristján
tekur hins vegar ekki undir þá gagnrýni íslenskra kvenna að
landar þeirra séu grófir og vanti allan elegans. „Þetta er að
verða eins og ofspiluð plata þar sem sífellt er verið að
tönnlast á sömu atriðunum. Þegar á heildina er litið held ég
að megi segja að íslenskir karlmenn séu fremur hreinir og
beinir í samskiptum við konur og blessunarlega lausir við
yfirborðsfals.“
En þar með eru íslenskar konur ekki sloppnar því Hans
Kristján bendir á að konur hér á landi séu bældar engu að
síður en íslenskir karlmenn. Þær séu þrátt fyrir allt ekki til-
búnar til að tala um tilfinningar sínar fyrr en komið er út í
mjög náin kynni. „Ætli að það sé ekki rétt að segja að bæði
konur og karlar séu jafnfeimin þegar að samskiptum við
hitt kynið kemur. Það liggur alltaf einhver spenna í loftinu
sem þarf að yfirstíga. Þegar maður hins vegar kemst í tengsl
við þá manneskju sem býr undir yfirborðinu kemur í ljós
búnt tilfinninga og drauma.“
Sjálfur vill Hans Kristján flokka sig með mjúkum mönn-
um þótt hann segist geta verið ansi hreint harður í horn að
taka þegar því er að skipta. „Ég á mér yfirleitt einhverjar
fyrirmyndir því það er alltaf einhver sem mér finnst þess
virði að líkjast. Ég geri mér hins vegar ekki grein fyrir því
SIGURÐUR SNÆVARR
AÐ HALDA I
Jigurður Snævarr hagfræðingur er kvæntur tveggja
barna faðir. Hann starfar við Þjóðhagsstofnun en
hefur þess fyrir utan fengist við kennslu í Háskóla ís-
lands. Sigurður hefur líkt og margir jafnaldrar hans
þurft að horfast í augu við þá staðreynd að kona hans er í
ábyrgðarstöðu. Að slík staða komi upp hefði fyrir fáeinum
áratugum verið næsta óhugsandi. „Þótt einkennilegt kunni
að virðast finnst mér stundum eins og í raun hafi afskaplega
lítið þokast í þá átt að breyta hefðbundinni hlutverkaskipt-
ingu kynjanna,“ segir Sigurður og bendir á niðurstöður til-
tölulega nýlegrar könnunar sem sýnir að um 45 prósent ís-
lenskra karlmanna sinnir heimilisstörfum í litlum mæli. Að
sögn Sigurðar eru heimilisstörfin óskaplegt deiluefni á
heimili hans, en bætir við að hann telji sig inna sinn skerf af
hendi engu síður en kona hans Bera Nordal, forstöðumaður
Listasafns Islands.
Sigurður bendir á að merkja megi vissar sveiflur síðustu
áratugina í afstöðu fólks til kynhlutverka. Þannig sé aftur
farið að gera meira úr þeim mun sem er á kynjunum. Kon-
ur séu uppteknari en áður af kynímynd sinni og karlmenn
ef til vill einnig. „Meðan ’68 kynslóðin var og hét hefði ekki
nokkur maður látið út úr sér að hann stundaði líkamsrækt.
Nú þykir það hins vegar ekki nema sjálfsagður hlutur.“ Að
mati Sigurðar eru konur í dag yfirleitt kvenlegar. „Ég gæti
talið upp fjöldann allan af ytri einkennum sem mér þykja
kvenleg eins og það að ganga í pilsi. I mínum huga liggja
þessi atriði þó í augum uppi og eru þar af leiðandi ekki
46 HEIMSMYND